W 126 Benz 500SEC

#1
Þetta er nýja leiktækið sem verður gert upp í vetur. Benz 500 SEC 1984.
Allt verður lagað í innréttingunni, litaðar rúður og svo er hugmyndin að
lækka hann um 1" að framan.
Allir þeir sem telja sig luma á góðum uppl um þessa bíla
eða hafa skoðun á honum endilega tjá sig.
Einnig þætti mér vænt um ef einhver veit um fyrirtæki t.d.
í Þýskalandi sem selur innréttingar í hann á góðu verði. :)
Kveðja
RIP


#3
er þessi blár og stóð í kópavoginum?
W126 500se 85'
Ford Mustang GT 01'
Ford Econoline 79'
John Deere Model M 49'
John Deere Model M 50'
MF 135

Hjalti Þórhallsson

#4
W126 Coupé er bara snilldarbílar, til lukku með þennan og gangi þér vel með uppgerðina.

Fyrsta alvöru tryllitækið sem ég prófaði var akkúrat 500SEC :wink:
Benedikt Hans Rúnarsson

#6
Hjalti skrifaði:er þessi blár og stóð í kópavoginum?
Sá bíll er alveg handónýtur og varla þess virði að gera upp þar sem það kostar örugglega minna að flytja inn gott eintak.
Rover Mini cooper 1.3 '92

#7
Þessi bíll var á AK seinustu á þar sem hann hefur verið tekin í gegn. Hinsvegar á eftir að
laga hann að innan og vélin gengur fínt en ég veit ekki nákvæmlega ástandið á henni.
Held að hann sé ennþá þess virði að laga aðeins til, það er planið í vetur.
Endilega sendið inn áthugasemdir. Ætla að koma inn myndum af honum meðan ég er að vinn í honum.

#9
Að setja myndir hérna inn er meira en að segja það. Einhver sem nennir að útlista þetta í smáatriðim :shock:

En er einhver hérna sem veit um fyrirtæki úti sem selur innréttingar eins og
leðursæti og timprið í mælaborðið og fleirra ?

Kveðja
Raggi

#10
oki þegar þú skrifar innlegg, sérðu Img hnapp að ofanverðu.

ýtir einu sinni á hann og færð: [img]og%20þar%20sem%20ég%20er%20að%20skrifa%20akkúrat%20núna%20seturu%20vefslóðina%20á%20myndina.%20Og%20síðan%20ýtiru%20aftur%20á%20hnappinn%20svona[/img]

Þá kemur myndin ;)

Mundu, vefslóðin á myndina (url) á milli ;)
Ásgeir Yngvi Ásgeirsson

W202 Mercedes Benz C 180 ´99 #Frúarbíllinn
W116 Mercedes Benz 280 SE '80 #Fyrsta ástin
Range Rover 4,0 SE ´01 #aldrei lærir maður
Subaru 1800 DL ´92 #Forstjórabifreiðin