#21
Ásgeir Yngvi skrifaði:Já mig langaði í þennan bíl, station með krók 8)


En menn í námi sem aka um á Range Rover þeir kaupa sér ekki fleiri bíla :lol: :lol:
Helvítis vesen að þú hafir ekki náð að losna við jeppann til að kaupa E300T 4matic-inn. Það er gull af bíl, með krók og allt. 8)


Jón Birgir Valsson
GSM:6990019

#22
Jæja, þá er aðeins kominn reynsla á gripinn og er hún bara ágæt að mestu. Það sem er aðkallandi er að skipta um vatnskassa og afturhjólalegur. Á mánudaginn mun Herr Doktor fara í vatnskassaskiptin ásamt því að skipta um kælivatn, síu í sjálfskiptingu og sjálfskiptivökva. Vonandi verður hægt að fara í leguskiptin seinna í vikunni. Annars fór ég með bíllinn í Aðalskoðun hvar hann rann athugasemdalaust í gegn á föstudaginn var. Eitt sem pirrar mig aðeins varðandi bílinn. Að fyrir nokkrum árum var skipt um gorma allan hringinn og hafa augljóslega verið settir rangir gormar og því er bíllinn allt of hár. Þarna hefur að líkindum verið pantaðir gormar án þess að taka fram að um sportline Benz væri að ræða. Útkomuna má glögglega sjá á myndinni.
[img]http://img225.imageshack.us/img225/4140 ... 001mb7.jpg[/img]
Eins og sjá má þá er ég búinn að fjarlægja plastdraslið af þakinu og er bíllinn mun betri ásýndar á eftir. Nú er ég í þeim pælingum hvort ég eigi að skipta út "appelsínunum" fyrir hvít stefniljós eða að halda þeim. Ég er svona meira á því að halda "appelsínunum" þar sem mér finnst það fara þessum lit og bíl aðeins betur. En er þó á báðum áttum. :? Það væri ágætt að fá skoðun ykkar á því máli. Þ.a.l. ætla ég að setja mynd af bílnum eins og hann er í dag og svo mynd af öðrum í sama lit með hvít stefnuljós sem ég tók úr söluþræðinum. Hvort andlitið er að gera sig betur?
[img]http://img225.imageshack.us/img225/485/13092008xn5.jpg[/img]
[img]http://pic80.picturetrail.com/VOL2063/1 ... 760106.jpg[/img]
Annað sem þarf að laga er bílstjórasæti þar sem gormarnir eru orðnir slappir ásamt því að þurfa að bæta þessa týpísku rifu á áklæðinu sem virðist vera standard í W124, þá þarf einnig að hjólastilla bílinn. Örlitlar ryðbólur eru til staðar sem reynt verður að laga sem fyrst ásamt tveimur rispum og smávægilegri dæld. Miðað við aldur og akstur bílsins þá er þetta ekki stórvægilegt...7,9,13. :wink:
Jón Birgir Valsson
GSM:6990019

#23
Til hamingju með þennan JBV, þetta er hinn eigulegasti vagn ;)

Ég á glær framljós + stefnuljós handa þér ef þú villt fyrir sanngjarnt verð :wink:
Reynir Ari Þórsson
848-8699

W124 - Mercedes Benz E 420
W124 - Mercedes Benz 300 Diesel

#24
ég segi glær í þetta skiptið.
Ásgeir Yngvi Ásgeirsson

W202 Mercedes Benz C 180 ´99 #Frúarbíllinn
W116 Mercedes Benz 280 SE '80 #Fyrsta ástin
Range Rover 4,0 SE ´01 #aldrei lærir maður
Subaru 1800 DL ´92 #Forstjórabifreiðin

#26
Æ strákar mínir....Glær ljós ... er eins og þegar ljóshærð kona setur ekki á sig augnfarða, er ennþá flott en, flottari með smá lit....ég segi halda Orginal Orange.... 8)
Halli H. - GSM 695-5477

1995 Grand Cherokee Limited 5,2 V8
2001 VW Golf 1,6

Vantar MB G Wagon ...einhver?

#28
ég er fylgjandi orange í mörgum tilfellum... fer alveg eftir bílum.
Ásgeir Yngvi Ásgeirsson

W202 Mercedes Benz C 180 ´99 #Frúarbíllinn
W116 Mercedes Benz 280 SE '80 #Fyrsta ástin
Range Rover 4,0 SE ´01 #aldrei lærir maður
Subaru 1800 DL ´92 #Forstjórabifreiðin

#29
Reynir Ari skrifaði:Til hamingju með þennan JBV, þetta er hinn eigulegasti vagn ;)

Ég á glær framljós + stefnuljós handa þér ef þú villt fyrir sanngjarnt verð :wink:
Takk fyrir gott boð Reynir Ari. Gott að vita af þessum ljósum hjá þér. En eins og er þá er ég mikið að spá í að halda "andlitinu" original. :wink:
Jón Birgir Valsson
GSM:6990019