Mercedes-Benz skrifaði:Hvað er að ykkur..... ???Louis Cyphre skrifaði:Nákvæmlega!!!!Björgvin skrifaði:Skil bara ekki afhverju þessir blessuðu ráðherrar þurfa alltaf að taka dýrustu bílana á markaðnum.... Segja "almúganum" að það sé ekki tilefni til að hækka laun vegna erfiðleika í samfélaginu en skella sér svo í Öskju og kaupa sér dýrustu sort af bíl bara til að komast frá a til b..... Bara hræsni og aumingjaskapur.....
Kveðja![]()
Hvað er að því þó að bílar ráðherra séu reglulega endurnýjaðir með ágætis bílum eða allavega sambærilegum í verði og þeir gömlu voru... Ég sé ekkert að því þó svo að það sé settar nokkrar millu á ári í að endurnýja þessa bíla fyrst það er verið að skaffa þeim þessa bíla á annað borð. Ekki viljið þið frekar að ráðuneitin láti bílana verða of gamla og eyði miljónum á hverju ári í að halda þeim gangandi og gera við þá. Ég er líka viss um að þið vilduð frekar láta skaffa þessa bíla frekar en að ráðherrum yrðu greiddir bílastyrkspeningar fyrir að nota eigin bíl í vinnunni... Það yrði margfalt dýrara..
Því miður eru engir grúskarar í vinnu hjá ríkinu við að laga eitthvað smotteri, skipta um stýrisenda og spindilkúlur í ráðherrabílum. Þeir fara bara á verkstæði með tilheirandi og eins dýrum kostnaði og mögulegt er. Ég bendi á að raunkostnaður ríkissjóðs af 5 miljón króna bíl sem er með 2.0 lítra vél + er um 2,7- 2,8 miljónir, bíl sem er í ábyrgð í tvö ár og þá er timi til kominn að fá bara annan. Svo eftir tveggja ára notkun fara þessir bílar í Innkaupastofnun og eru seldir á 2,5- 3 millur og hver er þá heildarkostnaðurinn við að kaupa bílinn.?
Þetta kemur í öllum tilfellum til með að verða ódýrasti kosturinn fyrir ríkið að endur´nýja svona bíla reglulega. Það hefur aldrei farið vel þegar ríkið ætlar að fara að gera út eitthvað gamalt dót. Ég er búinn að sjá mörg dæmi um vonlausan og yfirgengilega mikin fjáraustur ríkisins í að halda úti eitthverju gömlu og vonlausu drasli af því að það er ekki fjárveiting til að kaupa nýtt....
Svo er bara annað sem að þið verðið að hafa í huga að þið sumir mættuð vera ánægðir með að keyptur skuli vera Mercedes-Benz. Eitthverjir verða að kaupa nýju Benzana svo að þið hinir sem ekki hafi efni á því geti keypt þá gamla.
Það var mikið að einhver kom með vitrænt innleg varðandi þennan þráð.