Síða 4 af 4
Innsent: 04 Nóv 2007, 11:23
frá Mercedes-Benz
Stinnitz skrifaði:Meginreglan varðandi allan innflutning er að stofn til gjalda er það sem þú raunverulega borgaðir fyrir vöruna. Ef þú borgaðir raunverulega þetta verð fyrir bílinn og getur sannað það með útprentunum á bankamillifærslum og staðfestingu frá seljanda þá ertu í ágætis stöðu. Reyndar ef bíllinn er undir viðmiðunarverði þá er verðinu hafnað og ávallt leitað frekari skýringa frá innflytjandanum.
Ástæðan fyrir tortryggni yfirvalda á bílainnflutningi er það gífurlega mikla svindl sem hefur viðgengist þar. Miklir hagsmunir eru í húfi þar sem þetta er hágjaldavara sem vel að merkja er ekki tollgæslunni að kenna heldur þeim sem ráða upp í fjármálaráðuneyti sem og á háa Alþingi. Tollurinn er bara að vinna eftir þeim reglum lögboðnu reglum sem honum ber að vinna eftir. Sjálfsagt eru til leiðinlegir tollarar eins og það er til leiðinlegt fólk í öðrum stéttum.
Ef þú ert með allt þitt á hreinu þá ættirðu að vera í góðum málum...
Fagmannlega mælt...

Innsent: 07 Nóv 2007, 20:10
frá Hlynzi
Netbílar skrifaði:Þetta er einelti og ekkert annað það þarf eitthvað mikið að gerast bíllinn var ávætlaður
ca 8.000.000 kr og aðfluttningsgjöld 3.438.000.-
Ég er að staðfesta hér að um einelti sé að ræða þetta er eins og vera í rússlandi.
Það var sagt við mig að þeir verði að fara eftir dat verði sem er alþjóðlegt verð sem er
ca 22500 netto bíllinn er hækkaður í ca 45.000 eur og nú ætla þeir bara frekar að reikna út frá nývirði á íslandi sem á að vera ca 16milljónir ,
Bíllinn er ekki keyptur á íslandi heldur í þýskalandi og ég efa að einhver svona bíll hafi verið keyptur í umboði frá 2000-2004 þetta er bara rugllllllll
Hvað finnst ykkur og vitið þið um góðan lögfræðing.
kv Baldur
Varstu búinn að tala við Óla (spiderman) hann er reyndar lögfræðinemi en ætti að geta bent þér á einhvern góðann.
Innsent: 07 Nóv 2007, 21:33
frá Halldór Björn
Fáðu þér bara lögfræðing sem sérhæfir sig í bílamálum, þá held ég einhvern vegin að þú sért ágætlega staddur.
Innsent: 08 Nóv 2007, 18:34
frá ringi
off topic en tengist umræðuefninu
Hér í Danmörku er öðruvísi tekið á tollum á innfluttum bílum.
Þótt tollurinn sé hár 180% + 25% vsk þá reikna þeir út toll-verð á notuðum bíl, í hlutfalli við hvað tollurinn var af nýjum alveg eins bíl.
Það þýðir að tollinum er alveg sama hvað þú borgaðir fyrir bílinn úti heimi. Tollurinn á þessari týpu er bara föst tala.