Mercedes-Benz skrifaði:drundur skrifaði:Mercedes-Benz skrifaði:Gallinn við að ráða starfsfólk í vinnu í dag að það er svo erfitt að fá fólk sem kemur til vinnu fyrsta daginn fullþjálfað og veit ALLT. Það eru ekki allir sem vita allt jafnvel þó þeir vinni hjá umboðinu.

Voðalega taka menn nærri sér þegar skotið er á öskju. Get nefnt fleirri dæmi en enginn er fullkominn, þessi þráður var ekki gerður til þess að skjóta né verja umboðið. Einungis var verið að leita eftir aurhlífum á þennan bíl. Þar sem þær virðast ekki vera til þá er greinilegt að eigandi samskonar bíls í bretlandi hefur látið sérsmíða á sinn bíl sem eigandi þessa bíls sá. Því er lítið annað í stöðunni en að ath hvort slíkt væri hægt.
Þakka ég hinsvegar fyrir hjálpina.
Ég er ekki að taka þetta nærri mér, síður en svo. Ég er bara að benda á staðreyndir til
að útskýra "KLÚÐRIÐ" eins og þú orðaðir það. Ég veit að enginn er fullkominn, hvorki ég eða þú og geri líka ráð fyrir því. Ég svara samt hér bara í sama tón og ég er ávarpaður í.
Það eru þá kanski vinsamleg tilmæli til þín að orða ekki í framtíðinni gagnrýni eins og um fullkomið skítkast sé að ræða.
Hinsvegar er ég réttilega sammála um að það er örugglega eitthver sem getur sérútbúið aurhlífar á bílinn, og jafnvel þá breytt hlífum af venjulegum S-bíl, eða allavega notað þær sem fyrirmynd. Eitthverntíman rámar mig í að hafa komið með þá tillögu vegna eitthvers svona vandamáls. Þetta bara tekur allt tíma og gæti orðið dýrt, en kanski ekki svo ef það er staðreynda að það þurfa að sprauta bílinn einu sinni í viku vegna utanveganotkunar....

ÚPPPPS.
Hvernig mundir þú útskýra þetta öðruvísi en klúður að hálfu öskju? ég á ekkert annað orð yfir það allavegana.
Og hvað þetta skítkast varðar, þá hafði enginn pælt í því fyrr en þú minntist á það. Menn svöruðu spurningunni sem ég bar fram frekar en að pæla í mistökum öskju. Ef við eigum að fara að koma fram skítköstum á umboðið þá væri ég löngu búinn að því
Og hvað lakkið varðar þá er þessi bíll mikið notaður í langkeyrslu og það vill nú þannig til að þar sem brotið kemur á milli orginal sílsa og AMG þá er dekkið aðeins breiðara og nær örlítið útfyrir bæði að framan og aftan sem veldur því að á þessum "æðislega" þjóðvegi okkar þá er oftar en ekki minnst ein vegaframkvæmd ef menn ætla sér að fara lengra en í 100km radíus út frá höfuðborginni, og þar af leiðandi þá kastast grjót í lakkið og sér mikið á því á smá kafla. Ekkert hrikalega, en leiðinlegt á nýjum bíl að láta sjá á honum.
Skulum ekki pæla frekar í þessu því það mundi enda í rifrildi eflaust. Ég er búinn að fá þau svör sem ég þarf og því er málinu lokið að minnihálfu.
p.s. ég vil benda á það að ég var alls ekki að ávarpa þig einsog ég væri að tala niður til þín, sýnist á öllu að þú vinnir í öskju eða hafir einhverra hagsmuna að gæta sem ég vissi ekki. en sé það hvergi að ég hafi ávarpað þig á neikvæðan hátt.