Drullusokkar á nýjan S-class benz

#1
Þar sem þetta er líklegasti staðurinn til að fá svör þá spyr ég ykkur hvort þið vitið hvar á netinu (þar sem askja er búin að klúðra þessu nokkrum sinnum) væri möguleiki að versla mud flapsa undir nýjan S-Class benz með AMG útlistspakka einsog myndin hér að neðan sýnir.

Er búinn að finna mudflapsa undir venjulegan S-class bíl en þar sem það er AMG útlistpakki á honum þá eru sílsarnir ekki eins og á venjulegu bílunum :?

Ég er búinn að googla og ég bara virðist ekki vera betur gefinn en það að ég bara finn þetta ekki.

[img]http://www.autoclub.com.au/uploaded_ima ... 774581.jpg[/img]
Seinast breytt af drundur þann 04 Ágú 2007, 13:17, breytt 1 sinni alls.

Hjalti Vignis

M.Benz E230 ´96

#3
Ég á nú ekki bílinn, málið er bara það að þegar bíllinn er keyrður í langkeyrslu þá verður hann svo grjótbarinn að það þarf að mála hann liggur við reglulega. Svo eru þeir alls ekkert svo ljótir þegar þetta er komið undir þá.
Hjalti Vignis

M.Benz E230 ´96

#4
drundur skrifaði:Ég á nú ekki bílinn, málið er bara það að þegar bíllinn er keyrður í langkeyrslu þá verður hann svo grjótbarinn að það þarf að mála hann liggur við reglulega. Svo eru þeir alls ekkert svo ljótir þegar þetta er komið undir þá.
já það er alveg magnað hvað lakk er orðið lélegt í dag.
Ásgeir Yngvi Ásgeirsson

W202 Mercedes Benz C 180 ´99 #Frúarbíllinn
W116 Mercedes Benz 280 SE '80 #Fyrsta ástin
Range Rover 4,0 SE ´01 #aldrei lærir maður
Subaru 1800 DL ´92 #Forstjórabifreiðin

#6
Frissi skrifaði:Hvað fær þig til að láta drullusokkar á svona flottan bíll.......?
sammála

settu frekar glæra plast filmu á bretta bogana að neðanverðu .... eða eitthvað í þá áttina
Sv.H

E30 CABRIO V12 M70B50 ///
ALPINA B10 BITURBO 346 @ 507

http://alpina.123.is/pictures/

Re: Drullusokkar á nýjan S-class benz

#7
drundur skrifaði:Þar sem þetta er líklegasti staðurinn til að fá svör þá spyr ég ykkur hvort þið vitið hvar á netinu (þar sem askja er búin að klúðra þessu nokkrum sinnum) væri möguleiki að versla mud flapsa undir nýjan S-Class benz með AMG útlistspakka.
Ég get nú ekki verið sammála því að Askja sé búinn að klúðra þessu neitt mörgum sinnum. Það er bara einfaldlega svo að aurhlífar á AMG stuðara eru bara ekki framleiddar og það ekki á neinn Benz. Þess vegna getur Askja ekkert boðið upp á þessar aurhlífar frekar heldur en nokkur annar aðili í heiminum. Þetta er einfaldlega ekki til.

Þetta líf er einfaldlega svo að stundum þarf að fórna einu fyrir annað og þannig er það einnig í þessu dæmi. Ef menn taka ákvörðun um að fegra bílinn sinn með AMG aukahluta pakka að þá er ýmislegt sem þarf að fórna í staðin og má þar nefna aurhlífarnar. Sama er með ef að ML eigandi vill gangbretti á bílinn sinn að þá fórnar hann aurhlífunum að framan fyrir það.

Ég held að þessi leit eigi eftir að bera lítinn eða jafnvel engan árangur hjá þér því miður. :?
Rúnar Sigurjónsson
Herr Doktor
http://www.doktorinn.is" onclick="window.open(this.href);return false;
s. 552-5757

Þeir gagnrína ávallt Benzann mest, þeir sem hafa ekki efni á að eiga hann... ;)

Re: Drullusokkar á nýjan S-class benz

#8
Mercedes-Benz skrifaði:

Rúnar 1 drundur 0
Halldór Björn Audi 1.8T Quattro Turbo
Mercedes Benz C36 ///AMG - Seldur
Olbogi skrifaði:
valdi skrifaði:þú þyrftir að finna þér nýtt grill.... það er farið að ryðga smá grillið í honum hjá þér :wink:
og afhverju stendur hann uppá bílasölu???
ef égætti svona þá fengi þetta aldrei að kólna... :mrgreen:
ef þú ættir svona væri hann bilaður
http://www.thunderbird.is" onclick="window.open(this.href);return false;

#9
Það sem ég átti við með að askja klúðari þessu er einfaldlega það að þeir hefðu þá getað sagt eiganda bílsins það að þetta væri ekki framleitt. Það voru pantaðar aurhlífar2 sinnum hjá öskju og einu sinni hjá aðila úti á landi og alltaf kom vitlaus tegund, sem segir sig sjálft þegar þetta er ekki framleitt, meira að segja sögðu þeir hjá öskju að þegar þær pössuðu ekki í fyrsta skipti að þeir vissu þá hvaða tegund átti að panta næst, sem að sjálfsögðu passaði þá ekki heldur.. Umboðið greinilega veit ekki betur en það er þó gott að vera kominn með svar við þessu og þakka ég fyrir það.
Hjalti Vignis

M.Benz E230 ´96

#10
Gallinn við að ráða starfsfólk í vinnu í dag að það er svo erfitt að fá fólk sem kemur til vinnu fyrsta daginn fullþjálfað og veit ALLT. Það eru ekki allir sem vita allt jafnvel þó þeir vinni hjá umboðinu. :roll:
Rúnar Sigurjónsson
Herr Doktor
http://www.doktorinn.is" onclick="window.open(this.href);return false;
s. 552-5757

Þeir gagnrína ávallt Benzann mest, þeir sem hafa ekki efni á að eiga hann... ;)