#11
Mér finnst þetta nú bara frekar fallegur bíll, finnst Lexus yfir höfuð frekar flottir bílar.


Halldór Björn Audi 1.8T Quattro Turbo
Mercedes Benz C36 ///AMG - Seldur
Olbogi skrifaði:
valdi skrifaði:þú þyrftir að finna þér nýtt grill.... það er farið að ryðga smá grillið í honum hjá þér :wink:
og afhverju stendur hann uppá bílasölu???
ef égætti svona þá fengi þetta aldrei að kólna... :mrgreen:
ef þú ættir svona væri hann bilaður
http://www.thunderbird.is" onclick="window.open(this.href);return false;

#12
Mér finnst þetta flott hjá kallinum, LÖNGU tímabært að senda gamla Daimlerinn í endurvinnslu ásamt Cadillac brakinu, nú er bara að sækja Packardinn og þá munum við eiga flottasta Forseta í heimi, allavega hvað bílakost varðar.
Bjarni Þorgilsson
S 772-7722

#13
Gizmo skrifaði:Mér finnst þetta flott hjá kallinum, LÖNGU tímabært að senda gamla Daimlerinn í endurvinnslu ásamt Cadillac brakinu, nú er bara að sækja Packardinn og þá munum við eiga flottasta Forseta í heimi, allavega hvað bílakost varðar.
Það eina sem vantar er Forseti sem hægt er að vera stoltur af Bjarni :wink:

Þessi maður er snákur í mannslíki og ekkert annað. :evil:
það ágætt að hafa nokkrar lausar skrúfur.
Á einn Benz >124-220E-1993<
Sælir eru fattlausir , því þeir fatta ekki hvað þeir eru vitlausir.
[img]http://www.killbillet.com/images/smilie ... s04247.gif[/img]

#15
Þröstur skrifaði:Fyrst við erum að tala um umhversvæna bíla:

Fyrsti umhverfisvottaði bíllinn

já akkúrat það sem ég var að hugsa.
Ásgeir Yngvi Ásgeirsson

W202 Mercedes Benz C 180 ´99 #Frúarbíllinn
W116 Mercedes Benz 280 SE '80 #Fyrsta ástin
Range Rover 4,0 SE ´01 #aldrei lærir maður
Subaru 1800 DL ´92 #Forstjórabifreiðin

#16
Mér fannst alveg frábært að sjá þetta. Í fyrsta lagi þá orðaði forsetinn okkar það þannig að eina hljóðið sem heyrist í Toyoutunni er vegahljóð. Og þetta bull með að mengunin sé að drepa okkur og allt það, hvað hefur einn bíll með það að gera?

Í hvert skipti sem ég sé svona "vistvænan" bíl langar mig til að kaupa mér pakka af sígarettum og keðjureykja hann, kaupa mér einn benzínák á hvern svona bíl í umferðinni og moka út benzíninu með því að spóla í hringi einhversstaðar í mosagrænni náttúrunni.

Nei án djóks, heyrðuð þið viðtalið við hann? Það var eins og þessi eini bíll skipti heiminn öllu máli varðandi umhverfismál. Plánetunni bjargað. Það er ekki eins og framleiðslan á þessum bílum sé eitthvað vistvænni en á öðrum bílum. Náttúruunnendabull :roll:

Afsakið neikvæðnina, mér finnst bara lélegt að hann skuli fá sér rándýran Lexus eftir að vera búinn að kvarta yfir því að Benz sé of dýr. Þið sem sáuð viðtalið hljótið nú að hafa tekið eftir því hvað það var þröngt þarna afturí hjá honum.
Andri Hrafn
---



Mercedes Benz E220 W124 1995
Subaru Forrester 2005,
Yamaha WR 450 F 2004

#17
Frissi skrifaði:Er þetta ekki skandal að þjóðarhöfðingi skuli láta sjá sig á Japanskri dollu
Þessi svokallaða japanska "dolla" hefur nú verið áreiðanlegasti bíll síðustu 10 ára í USA hvað varðar bilanir og galla rétt á undan kóreskri "dollu" sem kallast Hyundai.... Held að okkar ástsæli Benz nái varla inn á topp 10.....

Þannig að ég held það sé alveg kominn tími til að hætta að tala niður til þessara fínu bíla...

Kveðja
Björgvin Pétursson
280 SEL W126
E420 W124
230CE W123
230C W123
S320 W140
190E 2.6 W201
C36 AMG W202
C320 Brabus W203
E320 W124
230CE W124

http://www.cardomain.com/ride/3891358/1 ... nz-e-class" onclick="window.open(this.href);return false;

#18
andrz skrifaði: Og þetta bull með að mengunin sé að drepa okkur og allt það, hvað hefur einn bíll með það að gera?

Í hvert skipti sem ég sé svona "vistvænan" bíl langar mig til að kaupa mér pakka af sígarettum og keðjureykja hann, kaupa mér einn benzínák á hvern svona bíl í umferðinni og moka út benzíninu með því að spóla í hringi einhversstaðar í mosagrænni náttúrunni.

Nei án djóks, heyrðuð þið viðtalið við hann? Það var eins og þessi eini bíll skipti heiminn öllu máli varðandi umhverfismál. Plánetunni bjargað. Það er ekki eins og framleiðslan á þessum bílum sé eitthvað vistvænni en á öðrum bílum. Náttúruunnendabull :roll:
Ef allir myndu hugsa þannig að einn bíll skipti engu máli þá væru þessar bílar ekkert til en sannleikurinn er sá að einn bíll skiptir miklu máli.... Og það að þjóðhöfðingjar séu að velja svona bíl hefur mikið auglýsingagildi og ýtir undir útbreiðslu vistvænna bíla.... þannig að ég er eins ósammála þér með þetta og hægt er.....

Kveðja
Björgvin Pétursson
280 SEL W126
E420 W124
230CE W123
230C W123
S320 W140
190E 2.6 W201
C36 AMG W202
C320 Brabus W203
E320 W124
230CE W124

http://www.cardomain.com/ride/3891358/1 ... nz-e-class" onclick="window.open(this.href);return false;

#20
Já, það þykir hverjum sitt um þennann bíl.

Persónulega þá tel ég að það sé allt of mikið gert úr umhverfisvæna þættinum á þessu tæki. Hann eyðir næstum því jafn miklu bensíni og S500 bíll á langkeyrslunni, þrátt fyrir að vera með þetta "Hybrid" kerfi og ég efa stórlega að hann komist með tærnar þar sem S500 hefur hælana í því að vera smíðaður úr endurunnum efnum.

Varðandi lága bilanatíðni asíubílanna, sem mönnum hefur orðið tíðrætt um í þessari umræðu, þá er núna búið að tala um það í tíu ár að Hyundai sé með lægstu bilanatíðni af öllum bílum í heiminum. Ég spyr, hvað eru margir tíu ára gamli Hyundai bílar á götunni? Svarið er ábyggilega: "Enginn" eða í það minnsta afar fáir. Ástæðan fyrir þessu er þær áherslur sem farið er eftir í framleiðslu þessara bíla og að sama skapi hvaða viðmið eru notuð þegar tekið er tillit til bilanatíni í könnunum.

Þessar kannanir sýna allar bilanatíðni á fyrstu tveimur til þremur árunum frá framleiðsludegi bíla. Þar ætla ég ekki að reyna að draga í efa að asíubílarnir standa evrópskum vögnum fetinu framar. En hvað gerist svo? Asíubílarnir fara fljótlega í pressuna en gömlu evrópsku stöðutáknin, þau halda bara áfram að rúlla um strætin með sínum einstöku sérviskubilunum.

Ég er einhvernvegin þannig gerður að ég get seint litið á Lexus sem eitthvað í líkingu við Mercedes Benz. Ástæðan er ekki eingöngu sú að ég held mikið upp á Benza gamla, heldur einnig það að mér þykir það hálf hinsegin að troða sér fram á sjónarsviðið með stóra Corollu, sem er ábyggilega ágæt sem slík, og fullyrða að hún sé orðinn einhver klassi bara af því að það er búið að skipta um nafn á henni og setja í hana afturhjóladrif.

En öðrum er hjartanlega velkomið að vera á örðu máli :D
Lincoln Mark LT '06
W140 500SEC '95
VW Golf TDI 1,9 '00
VW Golf GL 1,4 '96
W126 560SEC Lorinser '86
Subaru Justy '89
UAZ ca '80
BMW 323i '87
VW Bjalla '72
VW Jetta '85
VW Jetta '84


Heimir Arnar Birgisson