Mercedes Benz 300E W124 með 8 cyl Chevy mótor

#1
Einn af spjallverjum mætti á þessum w124 á síðustu samkomu, sem virtist í fyrstu ósköp venjulegur 300E að sjá.
[img]http://img201.imageshack.us/img201/5811/dsc08226ao0.jpg[/img]
En annsi var eitthvað mikið lagt í þetta púst!
[img]http://img201.imageshack.us/img201/6395/dsc08232me9.jpg[/img]
Og nokkuð breiðir barðar að aftan!
[img]http://img201.imageshack.us/img201/3931/dsc08233wj1.jpg[/img]
Afhverju er þessi snúningshraðamælir ofan á mælaborðinu? Er hinn bilaður eða hvað? :shock:
[img]http://img201.imageshack.us/img201/8229/dsc08240fy8.jpg[/img]
Nei, bíddu nú hægur!! Chevy vél í Benz!???
[img]http://img201.imageshack.us/img201/4710/dsc08238yk7.jpg[/img]
Sigurbirni er skemmt en upplitið á Rúnari segir meira en mörg orð!! :lol: :lol: :lol:
[img]http://img201.imageshack.us/img201/3350/dsc08241kn1.jpg[/img]
Hérna er sennilega fyrsti Mercedes Benz W124 fólksbíllinn á Íslandi með 8 cylindra Chevy vél sem á að skila einhverjum 380 hp út í hjól.
[img]http://img201.imageshack.us/img201/2213/dsc08244tu9.jpg[/img]
[img]http://img201.imageshack.us/img201/4088/dsc08243wa2.jpg[/img]
Það þurfti að sér smíða olíu pönnuna..
[img]http://img201.imageshack.us/img201/2116/dsc08245gt7.jpg[/img]
Þetta hlýtur að hafa verið vandasamt að koma þessari maskínu fyrir.
[img]http://img201.imageshack.us/img201/1769/dsc08246kf0.jpg[/img]

Gaman væri að fá málefnalega umræðu um þessa breytingu. Hvað finnst mönnum um þessi ,,helgispjöll" eða ,,betrumbætur" á þessum bíl?


Jón Birgir Valsson
GSM:6990019

#3
VD290 :shock:

Er þetta Viðar sjálfur sem að setti mótorinn í húddið á Benz.. eða seldi hann bílinn :?:
Viktor Agnar Falk Guðmundsson
Sími:8462367
BMW E46 320i - MY01 - Schwarz II - Daily
BMW E36 3**i - MY00 - Cosmicschwarz - ///M
BMW E38 750i - MY96 - Orientblau - Induvidual
Dodge Ram Cummins 5.9 12v - MY96 - P-7100

hrikalegur w124

#4
0hvað er að fólki að setja chevy í húddið á benz það eru helgispjöll allt er nú betra en chevy ég hefði nú sett ford í húddið frekar :lol: neinei þetta er flott en ég hefði aldrei gert neitt svona við w124 frekar við 190e eða eitthvað léttara og miklu skemmtilegra 8)
en djöfull verð ég nú að fá að sitja í þessum og sjá virknina (ofvirknina)
kveðja valdi
Þorvaldur Björn Matthíasson

Mercedes Benz E55 kompressor 05 ÞBM

Re: hrikalegur w124

#5
valdi skrifaði:0hvað er að fólki að setja chevy í húddið á benz það eru helgispjöll allt er nú betra en chevy ég hefði nú sett ford í húddið frekar :lol: neinei þetta er flott en ég hefði aldrei gert neitt svona við w124 frekar við 190e eða eitthvað léttara og miklu skemmtilegra 8)
en djöfull verð ég nú að fá að sitja í þessum og sjá virknina (ofvirknina)
kveðja valdi

ætli þetta vélarrými hafi nú ekki verið nógu þröngt.... eflaust helvíti erfitt að fara að troða þessu ofaní 190 bíl.
Ásgeir Yngvi Ásgeirsson

W202 Mercedes Benz C 180 ´99 #Frúarbíllinn
W116 Mercedes Benz 280 SE '80 #Fyrsta ástin
Range Rover 4,0 SE ´01 #aldrei lærir maður
Subaru 1800 DL ´92 #Forstjórabifreiðin

#6
Þetta er helvíti töff, alltaf gaman þegar fólk er að leika sér svona.
Halldór Björn Audi 1.8T Quattro Turbo
Mercedes Benz C36 ///AMG - Seldur
Olbogi skrifaði:
valdi skrifaði:þú þyrftir að finna þér nýtt grill.... það er farið að ryðga smá grillið í honum hjá þér :wink:
og afhverju stendur hann uppá bílasölu???
ef égætti svona þá fengi þetta aldrei að kólna... :mrgreen:
ef þú ættir svona væri hann bilaður
http://www.thunderbird.is" onclick="window.open(this.href);return false;

#7
Þetta er svosem allt í lagi ef menn setjast aðeins niður með reiknivélina áður en farið er í smíðina. Í fyrsta lagi þarf svona bíll að vera með ASD búnað svo hann standi ekki bara kjurr og spóli eins og asni á einu hjóli annars er alveg hægt að kyssa öxlana strax bless. Í öðru lagi þarf að setja svona vél upp í þennan bíl til að skila meira togi en sparki, 230-270 hestar og 330-380 NM í tog væri mjög skemmtilegt í þessum bíl. Í þriðja lagi má rokkurinn ekki vera of þungur því þá missir hann alla aksturseiginleika helst má hann ekki vera nema mest 20% þyngri en upphaflega sex cyl rellan. Í fjórða lagi þarf að hugsa um hávaða það er ekkert gaman að ferðast með vini sínum hausverknum.
Þröstur Reynisson 893-4172
tr105@outlook.com

600SEL '91 ekinn 195000
300E 4Matic '88 ekinn 300000
240D '83 ekinn 160000 "Hjólið"
350SE '73 ekinn 175000 Gullvagninn.
280SE '77 ekinn 150000

..

#8
Mér finnst þetta bara geggjað!! gaman þegar menn gera eitthvað svona öðruvísi, og þessi bíll er vissulega það sem kallað er "sleeper" haha væri gaman að sjá framan í marga þegar gamall "taxa" benzi skilur þá eftir í reyk á japönsku dollunum sínum
Guðmundur Kristinn Guðmundsson

Mercedes Benz 300 ce-24v sportline 1993' (C124)

#9
Það er mikið hættara við að þessi verði skilinn eftir í sínum eigin reyk spólandi á einu hjóli. Með enga driflæsingu og þennan þunga rokk í hinum endanum.
Þröstur Reynisson 893-4172
tr105@outlook.com

600SEL '91 ekinn 195000
300E 4Matic '88 ekinn 300000
240D '83 ekinn 160000 "Hjólið"
350SE '73 ekinn 175000 Gullvagninn.
280SE '77 ekinn 150000

Spól....

#10
Sælir
Spól ?? jú mikið rétt,en eftir að ég verslaði götu radial slikka frá Mikka Thomps.(hljómar eins og auglysing)þá gjörbreittist það,heppinn ef ég get spólað 3-4 metra,í stað 20-30m áður.Þyngdaraukning er nákvæmlega 70 kg með slikkunum,eða 65kg á framm öxul og einhver 5kg aftur öxul,svo er þessi vél meira fyrir aftan frammhjól en orginalin,er það ekki betra??Aksturseiginleikar eru bara góðir,helmingi meira afl (rúmlega það),og sem betur fer þekki ég engan sem fær hausverk af V8 hljóði!!! Jú mikið rétt Viktor þetta er Benzin minn,ég er búinn að vera að dunda mér við þetta í heillt ár,og þú kíkir aldrei á frænda!!!
Með KV.