#12
jon skrifaði:
Frissi skrifaði:
jon skrifaði:sonax er drasl og hardwax er verra en að pissa á bílinn sinn... notaðu autoglym eða maguers :D
Maguers bónið er got en það er engin ending í því, bónhúðin fer starx af. En Autoglym er samt djöful got.
já já en miðað við það að þetta er svona showcar bón þá vil ég frekar bóan oftar og láta kvikindið glansa og hafa djupann fallegann lit,
heldur en að hafann mattann með bón sem endist lengi
Nei þú er ekki alveg að skylja mig. Autoglym bónið er jafngot (mínu mati betra) en Maguers, en Autoglymið endis lengur.

En þetta er bara mín skoðun. Ég var allavegna mjög óánægður með Maguers.


Mercedes-Benz CLK-Kompressor "99
Mercedes-Benz E-Class "96 (seldur)
VW Bjalla 1973 (Seld)
Yamaha Beluga 80 1981 (Aldrei til sölu)
[img]http://memimage.cardomain.com/member_im ... 5_full.jpg[/img]

#13
Mín reynsla af Maguers er sú að tjaran situr meira í því en öðrum tegundum bóns en það er dúndur gott og mjög gott að vinna það. Mjallarbón er líka dúndur gott en bílasprautarinn var ekki ánægður þegar hann þurfti að slípa upp fyrir mig bílinn. Hann ætlaði aldrei að komast niður úr hel$% drullunni. Ég veit svei mér ekki hvað ég ákveð að kaupa næst. Mér fannst gott bónið sem ég gat fengið á ESSO í hvítum brúsa með fjólubláum miða en ég hef ekki séð það í soldin tíma.
S'iðan var mér sagt að VISTA bón hafi virkað best hérna í gamladaga en það er víst löngu hætt að selja það. Það var í járndollum og var svona í föstu formi, svipað og mjallarbón en ekki eins erfitt að vinna það.

Ef einhver lumar á VISTA bóni þá er ég til í fá að prufa.
Guðbjartur Magnússon

Nissan Patrol 1999, 2,8 38"

W210 1997 Avantgarde, topplúga, leður ofl.
SELDUR

#14
Sonax í tjöruna. Það er alveg bókað. Ekki skemmir svo að nota annað bón á eftir ef menn hafa nennu og tíma í.

Mothers (drullubón) á sumrin. Fallegur gljái, auðveld vinna en endist anskotan ekki neitt í rigningu.

AutoGlym (drullubón). Toyotan í bóninu hér á landi. Allir lofa það og segja það besta bónið en enginn veit hvað hann er að tala um. Skilur eftir sig hvítar rákir og endist ekki vel, en gefur þó ágætis gljáa.

TurtleWax (drullubón) er eitthvað sem ég hafði enga trú á. Ég keypti mér einn brúsa og varð himinlifandi með árangurinn. Gljáir vel, endist betur en margt annað sem ég taldi upp og er auðveldara en ég veit ekki hvað að vinna með það. Gísli Jónsson (nú MotorMax) voru með svampa sem maður bleitti og þá tútnuðu þeir út í fyrra en ég veit ekki hvort þeir eru fáanlegir nú. Rakur svampur, TurtleWax og hreinn bíll og útkoman er glæsileg.

"Gamla góða" mjöllin (drullubón) sýgur að sér tjöru þegar þannig viðrar. Það er svo ótrúlega feitt bón að bíllinn er orðinn loðinn af ryki samdægurs.

Bílasmiðurinn seldi/selur bón sem kallast CarLack86 (drullubón). Það er mjög gott bón. Líkt og TurtleWax er það með Nano í sér og ver bílinn fyrir steinkasti. "Rispufrítt bón" eins og hann orðaði það. Blauti svampurinn og þetta bón eru góðir saman. Einhverjir kannast eflaust við þetta sem "bátabónið". Mælt með að bóna bílinn 2-3 á ári með því bóni. Mér var sagt að það endist svo vel að það þarf ekki að bóna hann oftar en það á ári.

Intereflon (drullubón) er bón sem fæst á öllum N1 stöðum (Esso). Erfið vinna en hún skilar sér í elegans á bílnum. Ótrúlega gott bón sem endist ansi vel. Svo er líka teflon í því. Tek fram að það er MIKIL vinna í því bóni.

GoldClass (drullubón) er bón sem einhverjir ættu að kannast við. Á svörtum eða dökkum bílum kemur það sjúklega flott út. Þetta bón er erfitt að vinna (en ekkert í samanburði við Intereflon) en ef þú hefur tíma þá er þetta bón málið. Endist fínt og bílarnir glansa vel eftir það.

[img]http://www.autobarndeals.com/catalog/chg-7016.jpg[/img]



*Drullubón flokka ég sem það bón sem er ekki í vökvaformi eins og Sonax, svona til að taka allann vafa úr málinu!
Andri Hrafn
---



Mercedes Benz E220 W124 1995
Subaru Forrester 2005,
Yamaha WR 450 F 2004

#16
Mercedes-Benz skrifaði:Mjallarbón.. ;)

Bera fyrst á allan bílinn og svo hraðbón yfir á eftir. Þurrka svo af með örtrefjaklút...

Svolítil vinna en það virkar...

.... og glansinn á mínum gamla hefur aldrei verið svona flottur ;)
Þetta er aðferð að mínu skapi ;)
Ásgeir Yngvi Ásgeirsson

W202 Mercedes Benz C 180 ´99 #Frúarbíllinn
W116 Mercedes Benz 280 SE '80 #Fyrsta ástin
Range Rover 4,0 SE ´01 #aldrei lærir maður
Subaru 1800 DL ´92 #Forstjórabifreiðin

#17
Ásgeir Yngvi skrifaði:
Mercedes-Benz skrifaði:Mjallarbón.. ;)

Bera fyrst á allan bílinn og svo hraðbón yfir á eftir. Þurrka svo af með örtrefjaklút...

Svolítil vinna en það virkar...

.... og glansinn á mínum gamla hefur aldrei verið svona flottur ;)
Þetta er aðferð að mínu skapi ;)
Tók einn bílinn enn hjá mér í dag með þessu og sá er ekkert smá flottur. Þetta bón er alveg að gera sig fyrir hvern svitadropann :roll: ... (án þess þó að þetta sé neitt þrælapúl)
Rúnar Sigurjónsson
Herr Doktor
http://www.doktorinn.is" onclick="window.open(this.href);return false;
s. 552-5757

Þeir gagnrína ávallt Benzann mest, þeir sem hafa ekki efni á að eiga hann... ;)

#18
Mercedes-Benz skrifaði:
Ásgeir Yngvi skrifaði:
Mercedes-Benz skrifaði:Mjallarbón.. ;)

Bera fyrst á allan bílinn og svo hraðbón yfir á eftir. Þurrka svo af með örtrefjaklút...

Svolítil vinna en það virkar...

.... og glansinn á mínum gamla hefur aldrei verið svona flottur ;)
Þetta er aðferð að mínu skapi ;)
Tók einn bílinn enn hjá mér í dag með þessu og sá er ekkert smá flottur. Þetta bón er alveg að gera sig fyrir hvern svitadropann :roll: ... (án þess þó að þetta sé neitt þrælapúl)
[img]http://www.simnet.is/hlynzi/benz/benz1.jpg[/img]


Þessi bíll var tekinn með hraðbóninu frá mjöll vikulega í heilt sumar, glimrandi ástand á lakkinu á honum, varla til rispur.
Ég notast núna helst eingöngu við autoglym vörurnar, en undirvinnan byrjar á intensive tar remover (eða sonax hardwax) svo er farið í lakkhreinsi/sonax extreme (helst vil ég nota þessa dagana New horizone frá concept, með vél) svo Autoglym ultra deep shine og yfir allt draslið með extra gloss protection. Ég get lofað því að menn verða ekki sviknir af þessari aðferð og segi bara Meguars hvað.
Hlynur S. - - - Sími: 869-6226

Mercedes Benz - E220
Mercedes Benz - E420 Sportline V8 - - - ///AMG kit, Eilfíðarverkefni
\\\Bón, Mössun, Alþrif
Fyrri bílar: Toyota Corolla Si, 7x W124, Justy, Volvo.
amigo.is

#19
Benni skrifaði:Ég kaus en sleppti að bóna. Sé ekki eftir því :lol:
Sama hér... verst að allt kom fyrir ekki og stjórnin stóð eftir allt saman. Alveg fáránlegt að framboð Íslandshreyfingarinnar skuli hafa bjargað ríkisstjórninni og stóriðjustefnunni sem þeir voru einmitt að reyna að fella (eins og ég skil þetta asnalega þingmannakerfi allavega þá hefðu þessi 3,3% sem ómar fékk gefið vinstri grænum 1-2 þingmenn ef Íslandshreyfingin hefði ekki boðið sig fram og fellt stjórnina, annars er ég ekki beint neinn sérfræðingur í þessu :roll: ).

En jæja þetta er víst ekki stjórnmálaspjallsíða... rétt eins og í hinum bónþræðinum þá eru auðvitað allir ósammála hérna og erfitt að finna eitthvað bón sem einhver kallar ekki algert rusl, en ætli ég verði ekki bara að prufa eitthvað af þessu sjálfur og finna eitthvað sem mér líkar við þá. Ég get þá verið með í rifrildinu næst og kallað allt nema það sem ég nota rusl :lol: