Re: W123 280CE árg. 1979 í uppgerð

#62
Jæja snúðar og snældur. Er að setja inn myndir af uppgerð og ísetningu á mótor. Doktor Rúnar og hjúkkurnar hans tóku verkið að sér og stóðu sig með stakri prýði. Það er líka myndband af fyrstu gangsetningu. Næstu verk er að klára að tilkeyra hann (náðist ekki áður en hann fór undir feld síðasta haust) og þá ætlar doksi að stilla aftur, skipta um olíu og eitthvað fleira sem ég man ekki. Læt hann um að muna smáatriðin. Svo ætlum við að setja nýtt drif og plast innri bretti í sömu atrennu ásamt sandblástnum og sjænuðum pústgreinum. Svo er verið að snuðra eftir teppum og mottum til að fullkomna verkið.

Ég sá á spjallinu að það hefði einhver dekkt botnana í ljósunum hjá sér á svona bíl. Það finnst mér gegt flott og aldrei að vita nema maður dundi sér við það í sumar.
Vona að ykkur líki vel :D
Krissi
S:6967099

http://280ce.blog.is/blog/280ce/" onclick="window.open(this.href);return false;

Re: W123 280CE árg. 1979 í uppgerð

#65
Takk fyrir það. Ég reyni að fá bestu menn að verkefnunum svo allt sé eins og best verður á kosið.

Videoið er komið á sinn stað.

ps. merkið er farið af fyrir 2 árum. Á eftir að finna út hvar það á nákvæmlega að vera áður en ég set það aftur á. Einhver með málin á því eða er það bara tekið með smiðsauganu?
Krissi
S:6967099

http://280ce.blog.is/blog/280ce/" onclick="window.open(this.href);return false;

Re: W123 280CE árg. 1979 í uppgerð

#66
hoyt skrifaði:ps. merkið er farið af fyrir 2 árum. Á eftir að finna út hvar það á nákvæmlega að vera áður en ég set það aftur á. Einhver með málin á því eða er það bara tekið með smiðsauganu?
Þú getur örugglega fengið t.d. GMG til að mæla fyrir mig fjarlægðina frá neðri brún skottloksins að undirstriki merkisins og frá vinstri brún að sama undirstriki á G-71 (200 W123). Hann hefði örugglega gaman að því! :wink:

Ég er líka með R-22 niðri í skúr og get mælt þetta fyrir þig. Sennilega er þetta nokkuð stöðluð staðsetning á merkinu.
Sveinn