Síða 3 af 3

Innsent: 08 Feb 2007, 22:18
frá BMWaff
Ég tek eftir 3-4 rið doppum á lakkinu hjá mér... Ætla að láta yfirfaran sem fyrst... En ég mæli eindregi með w210...

Ég keypti minn vitandi að ég þyrfti að laga nokkra hluti, en ég sé þetta bara sem viðhald og þú þarft að viðhalda ÖLLUM notuðum bílum, spurningin er bara hvort þú ætlar eyða í bíl sem þig langar virkilega í eða bíl sem þú hélst að væri ódýrari að eiga en kemur svo í ljos að það kostar líka og er hundleiðinlegt að keyra :)

Innsent: 08 Feb 2007, 22:22
frá ivar
ég hef nefnilega séð gífurlegan mun á þessum bílum, og ég sé þá nú nokkuð marga, ég persónulega tæki sona 91 árgerð af 124 bíl ef ég væri að velja, verst að 320 bíllin fékst ekki þá

Innsent: 08 Feb 2007, 23:17
frá Ingvar1972
BMWaff skrifaði:.........en ég sé þetta bara sem viðhald og þú þarft að viðhalda ÖLLUM notuðum bílum.........
Þetta er bara málið, þá farnast manni vel http://en.wikipedia.org/wiki/Preventive_maintenance

það eina sem ég hef heyrt af varðandi dýra og illfáanlega varahluti í W210 er klimatronic (haft eftir gjaldkeranum) sem betur fer er minn með gömlu snú snú miðstöðinni.

Innsent: 09 Feb 2007, 14:45
frá E 220T
Ég er búinn að vera á 2002 W210 E320 cdi, ekinn 145k núna í 6 mánuði og hef ekkert þurft að gera hvað viðhald varðar.
Þetta er virkilega rúmgóður og þægilegur bíll í dags daglegum akstri sem ég mæli með. Góður á hraðbrautum upp að svona 160 km/klst en mér finnst hann ekki fara næginlega vel með meiri hraða eftir það. Ég gæti alveg hugsað mér að eiga svona sem konubíl í framtíðinni en fá mér sjalfur eitthvað aðeins meira spennandi.

Innsent: 09 Feb 2007, 19:56
frá Andri Pogo
ég fór og kíkti betur á lakkið áðan fyrst það var svona bjart úti.

ég tók eftir 2 ryðbólum við annað framljósið og svo hefur verið pússað niður ryð á þónokkrum stöðum og málað yfir (ekki í alveg sama lit) það var hjá báðum afturdekkjum, neðst á hurðunum farþegamegin og smá á framstuðara.

fyrir utan það virðist lakkið vera mjög gott