Síða 2 af 3

Innsent: 08 Feb 2007, 01:00
frá Andri
JBV skrifaði:'99 Benzinn sem ég var á gegst undir ryðendurbætur eins og sumir ykkar munið kanski eftir. Þær endurbætur heppnuðust mjög vel og var bíllinn eins og nýr á eftir. Ekki er gott að segja hvaða árgerð af w210 bíll sé skárstur á boddýi gagnvart ryði. Það eina sem hægt er að ráðleggja væntanlegum kaupendum af w210 Benz er að skoða boddýið vel eins og hér að ofan er lýst. Til að ganga úr skugga um að bíllinn sé ryðlaus eða allt að því. Því inn á milli reynast eintök sem hafa svo til sloppið við að ryðga. Ekki er verra ef liggur fyrir staðfesting um að bíllinn hafi undirgengist ,,claim" þ.e. endurnýjun boddý hluta og málun.
Hef nú skoðað þá nokkra en eini w210 bíllinn sem ég hef skoðað og fékk 10 hjá mér er bíllinn hans Ingvars, en hann er 320 1996, alveg rosalega flottur bíll og alveg óryðgaður. Ég gat ekki séð að hann hafi gengið undir claim meðferð.

Eitt sem menn gleyma er að þessir bílar sem gangast undir þetta claim, það er jú skipt um lausu boddy stykkinn, en afturbretti, sílsar og allt boddyið á bílnum er ennþá ónýta stálið sem er bara búið að ryðhreinsa og mála aftur.

Innsent: 08 Feb 2007, 01:24
frá ivar
það er nefnilega málið andri, ég er búin að sjá bíla sem var claimað og eru byrjaðir aftur,

Innsent: 08 Feb 2007, 10:03
frá Þröstur
Ég verð að vera sammála Ívari þarna.

Innsent: 08 Feb 2007, 10:30
frá ivar
ég er sammála því að þú sért sammála mér

Innsent: 08 Feb 2007, 11:08
frá GUMMCO
ivar skrifaði:nei bílarnir eldri en 97 eru ekki smíðaðir úr því, þeir ryðga meira ef eitthvað er, síðustu w124 bílarnir finnst mér líka ryðga eins og..
Mín reynsla í þessum ryðmálum er að eftir E look kom þá virðist þeir fara byrjað að nota gamla ónyta niðurbrædda rússatogara í stálið hjá sér,sorry ekki gott mál :(

Innsent: 08 Feb 2007, 11:11
frá Ztebbsterinn
GUMMCO skrifaði:
ivar skrifaði:nei bílarnir eldri en 97 eru ekki smíðaðir úr því, þeir ryðga meira ef eitthvað er, síðustu w124 bílarnir finnst mér líka ryðga eins og..
Mín reynsla í þessum ryðmálum er að eftir E look kom þá virðist þeir fara byrjað að nota gamla ónyta niðurbrædda rússatogara í stálið hjá sér,sorry ekki gott mál :(
Það er einmitt ástæða þess að þegar ég auglýsti eftir w124 bíl til kaups, þá óskaði ég eftir bíl ekki yngri en "92.
Hvenær kom annarz E lookið? var það ekki "93? :hmm:

Innsent: 08 Feb 2007, 11:26
frá Hlynzi
Ztebbsterinn skrifaði:
GUMMCO skrifaði:
ivar skrifaði:nei bílarnir eldri en 97 eru ekki smíðaðir úr því, þeir ryðga meira ef eitthvað er, síðustu w124 bílarnir finnst mér líka ryðga eins og..
Mín reynsla í þessum ryðmálum er að eftir E look kom þá virðist þeir fara byrjað að nota gamla ónyta niðurbrædda rússatogara í stálið hjá sér,sorry ekki gott mál :(
Það er einmitt ástæða þess að þegar ég auglýsti eftir w124 bíl til kaups, þá óskaði ég eftir bíl ekki yngri en "92.
Hvenær kom annarz E lookið? var það ekki "93? :hmm:
Ekki man ég hvenær W210 lúkkið kom nákvæmlega en W124 er svona ef ég man rétt:

1986-1989 (fyrsta W124 útlitið)
1989-1993 (facelift) http://www.simnet.is/hlynzi/whitebenz.jpg (þetta hérna)
1993-1995 (final útlit) eins og E420 t.d. (nýtt skottlok, húdd og ljós)

Ég hef persónulega ekki tekið eftir ryðmun á 94 árgerðinni minn og 91 árgerðinni, báðir með smá ryð á typical stöðum.

Innsent: 08 Feb 2007, 11:50
frá ivar
stebbi þetta er akkurat sama ástæðan og ég óskaði eftir 90-92 bíl líka, vill helst ekki 94 og 95 bílana,

Innsent: 08 Feb 2007, 11:59
frá GUMMCO
ivar skrifaði:stebbi þetta er akkurat sama ástæðan og ég óskaði eftir 90-92 bíl líka, vill helst ekki 94 og 95 bílana,
'Atti um daginn tvo 124,annar 88 300 e og hinn E 220 94,bílarnir stóðu hlið við hlið og það var stórmunur á lakki á þeim,94 bíllinn fór viku vinna í það að málan og ryðhreinsa,voru ryðblettir á miðjum stykkjum og ógeð,en 88 bíllinn eytti ég einum degi í shine og samlitaði stuðara ofl,hef reyndar séð úti E look bíla sem ekkert þarf að gera,við reyndar söltum göturnar hér og það er bara vont fyrir bílanna