#1
Skemmtileg mynd! ...það vekur líka upp minningar að sjá boltaskóna sem þú ert í :wink: :lol:

Bíllinn á myndinni er 190, árgerð á bilinu 1961-1964. A.m.k. af fyrri kynslóðinni (sést á stefnuljósinu við framhurðina), en sú seinni kom 1965 og hafið 200 mótor eins og '66 bíllinn minn. Það þyrfti að fletta upp í bifreiðaskrá til þess að finna árgerðina nákvæmlega út, ef hægt er á annað borð að fletta þannig í sögu númera.


Sveinn

Ford Taunus

#2
Sælir

Er þetta ekki árgerðin sem kom með rauðu koppunum?

Sýnist þetta vera Ford Taunus 17M árg 1964 þarna í baksýn. Það voru gríðarlega skemmtilegir bílar í þá daga, eyðslugrannir og þóttu liggja vel á vegi.

Kv.
Sprautarinn

#4
sveinn skrifaði:Skemmtileg mynd! ...það vekur líka upp minningar að sjá boltaskóna sem þú ert í :wink: :lol:

Bíllinn á myndinni er 190, árgerð á bilinu 1961-1964. A.m.k. af fyrri kynslóðinni (sést á stefnuljósinu við framhurðina), en sú seinni kom 1965 og hafið 200 mótor eins og '66 bíllinn minn. Það þyrfti að fletta upp í bifreiðaskrá til þess að finna árgerðina nákvæmlega út, ef hægt er á annað borð að fletta þannig í sögu númera.
Minn 190 Benz var árgerð 1965 en var með stefnuljósunum ofan á brettunum.Auk þess sem mér minnir að 200 bíllinn hafi fyrst komið 1966
Sigurbjörn H.

#5
Benz skrifaði:Minn 190 Benz var árgerð 1965 en var með stefnuljósunum ofan á brettunum.Auk þess sem mér minnir að 200 bíllinn hafi fyrst komið 1966
Það er rétt að 190 bíllinn var framleiddur framundir mitt ár 1965, en það er ekki rétt að 200 bíllinn hafi komið fyrst 1966. Hann kemur aðeins áður en framleiðslu á 190 bílnum er hætt.

Úr upplýsingasafni DC:

190c 04.1961 - 08.1965
190Dc 04.1961 - 08.1965

200 07.1965 - 02.1968
200D 07.1965 - 02.1968
Sveinn

#6
Ég var að taka eftir því að hliðarspegillinn er á hurðinni, þannig að þessi bíll er 1963 til 1965 módel (þeir voru á frambrettinu 1961-1963). Reyndar voru menn örugglega líka að setja spegla á þessa bíla eftirá ef þeir komu ekki þannig frá verksmiðjnni (eins og líklega í tilviki Sigurbjörns). Auk þess er þokuljósið með nýja laginu (eftir 1963).

...þetta þrengist aðeins... :wink: :lol:

Spurning hvort rauða-miðjan á koppunum geti leyst nákvæmar úr þessu? :wink:
Sveinn

#7
sveinn skrifaði:Ég var að taka eftir því að hliðarspegillinn er á hurðinni, þannig að þessi bíll er 1963 til 1965 módel (þeir voru á frambrettinu 1961-1963). Reyndar voru menn örugglega líka að setja spegla á þessa bíla eftirá ef þeir komu ekki þannig frá verksmiðjnni (eins og líklega í tilviki Sigurbjörns). Auk þess er þokuljósið með nýja laginu (eftir 1963).

...þetta þrengist aðeins... :wink: :lol:

Spurning hvort rauða-miðjan á koppunum geti leyst nákvæmar úr þessu? :wink:
Það er líka búiða að retrofitta ljós fyrir neðan framljósin á honum af svona 200 bíl. Það var nokkuð algengt aða það væri gert í þá daga.
Rúnar Sigurjónsson
Herr Doktor
http://www.doktorinn.is" onclick="window.open(this.href);return false;
s. 552-5757

Þeir gagnrína ávallt Benzann mest, þeir sem hafa ekki efni á að eiga hann... ;)

#9
Mercedes-Benz skrifaði:
sveinn skrifaði:Ég var að taka eftir því að hliðarspegillinn er á hurðinni, þannig að þessi bíll er 1963 til 1965 módel (þeir voru á frambrettinu 1961-1963). Reyndar voru menn örugglega líka að setja spegla á þessa bíla eftirá ef þeir komu ekki þannig frá verksmiðjnni (eins og líklega í tilviki Sigurbjörns). Auk þess er þokuljósið með nýja laginu (eftir 1963).

...þetta þrengist aðeins... :wink: :lol:

Spurning hvort rauða-miðjan á koppunum geti leyst nákvæmar úr þessu? :wink:
Það er líka búiða að retrofitta ljós fyrir neðan framljósin á honum af svona 200 bíl. Það var nokkuð algengt aða það væri gert í þá daga.
Ljósið fyrir neðan framljósið er þokuljós, en það var option frá upphafi (held ég) alveg til 1965 (leit samt aðeins öðruvísi út, örlítið kantaðara) og var glært. Ef bíll var ekki með þokuljós, þá var ekkert ljós þarna. 1965 er stefnuljósið flutt af brettinu við hurðina fram í þetta sama ljós og var það tvískipt ef bíllinn var með þokuljós (glært nær grillinu, en apelsínugult á ytri kantinum). Bíllinn var þá alltaf með þetta ljós. En ef bíllinn hafði ekki þokuljós (eins og minn 1966) þá var þetta ljós allt apelsínugult og var aðeins stefnuljós. Þetta ljós er því líklega original þokuljós á þessum bíl pabba hans Björgvins.

Efast samt ekki um að menn hafi verið að retrofitta þetta.
Sveinn
cron