Kæru félagar
Langt síðan ég póstaði hér inn. Fyrir nokkru síðan var ég tengdur hér á öðru nafni. En eins og lög gera ráð fyrir er ég að sjálfsögðu búinn að gleyma bæði nafninu og lykilorðinu.
Var að setja á götuna 560SEC bílinn sem ég hef átt í um sex ár. Hann er búinn að vera meira og minna í geymslu í þrjú ár. Stífbónaður á upphituðum stað að sjálfsögðu.
Ætla að fara að taka góðar myndir af honum. En hérna eru nokkrar gamlar:
Smá upplýsingar um gripinn:
Almennt:
Mercedes Benz 560SEC EURO 1987 Astral-Silver (W126)
5.6L V8 vél sem skilar tæplega 300 hrossum. Bíllinn er ekinn 141.180 km.
Búnaður:
ABS helmar - spólvörn - tvívirk samlit topplúga með rafmagni - tvívirk Autobahn flauta - rafmagn í speglum - rafmagn í sætum - minniskubbur í sætum - hleðslujafnari - rafmagn í hauspúðum - rafmagn í loftneti - rafmagn í rúðum - hiti í sætum - armpúði - vökva- og veltistýri - rafmagnsstillingar í stýri - cruise control.
Hjólabúnaður:
17" AMG álfelgur sem eru 10" breiðar að aftan en 9" að framan - ný low profile dekk.
Aukabúnaður:
Tvöfalt kraft/króm Lorintzer púst. - krómlistar á hliðum - ljóskastarar - dökkar rúður frá framleiðanda - blá innrétting - viður - blátt leður - blátt teppi - bláar mottur - armpúði á milli aftursæta - 12V tengi í aftursætum - vínkælir undir armpúða á milli aftursæta - rúðusprauta á framljósum.
Tæki og tól:
Fjarstýrðar samlæsingar - Clifford þjófavarnakerfi - Pioneer DEH - P8100 geislaspilari með fjarstýringu - fade stilling í innréttingu - tveir 400W magnarar - 400W bassakeila - 6 hátalarar - blá neonljós við gólf inní bílnum.
Bíllinn á netinu:
Amerískur SEC klúbbur
http://www.mbcoupes.com/memberscars/B/u ... arndal.htm
Evrópskur SEC klúbbur
http://mbcoupes-europe.com/Bjarndal.html
Myndasíða bílsins
http://www.picturetrail.com/gallery/vie ... id=2686151
Öll komment vel þegin. Spurningar, athugasemdir eða hvaðeina sem ykkur dettur í hug.
USB
usb@cicero.is
560SEC frá USB
#1Ákvað að henda þessu hérna inn svo menn gætu aðeins rætt meira um annars þennan umtalaða bíl! Fallegasti Benz á landinu að mínu mati.