#12
Eitthvað töff einkanúmer á þetta og málið er dautt :!: 8)


....humm GMG plöturnar myndu nú lúkka vel á honum Gunnar ;)



EN DJÖFULL ER ÞETTA FALLEGT ÖKUTÆKI !!!
Ásgeir Yngvi Ásgeirsson

W202 Mercedes Benz C 180 ´99 #Frúarbíllinn
W116 Mercedes Benz 280 SE '80 #Fyrsta ástin
Range Rover 4,0 SE ´01 #aldrei lærir maður
Subaru 1800 DL ´92 #Forstjórabifreiðin

#15
Þetta er algjör moli, en það er spurning um felgurnar finnst þær ekki alveg passa fyrir þennan bíl (bara mitt álit)
Ólafur Kolbeinsson
Gsm 820-6419

#16
Smá viðbót vegna innleggs ..gmg


Bíllinn var auglýstur þann 26.11 2000 á mobile og autoscout.
Bíllinn kom ekki úr dánarbúi heldur var eigandi hans forríkur þjóðverji búsettur í Dusseldorf.
Hann hafði keypt bílinn nyjann og átti safn annarra bíla.
Hann seldi bílinn einungis vegna þess að bílageymslan hans var orðin full og það þurfti að rýma til fyrir nyju "leikfangi".
Bíllinn var gríðarlega góður nánast eins og nyr þegar Smári skoðaði hann og keypti í byrjun desember 2000 fyrir núverandi eiganda hans.
Smári setti bílinn fyrst á sitt nafn í eitt ár á exportnumer í þýskalandi.
Numerið sem var á bílnum var D 480E.

Það gekk ekki þrautalaust fyrir Smára að kaupa bílinn.
Fyrst hringdi hann í seljanda og fékk allar upplýsingar.
Mjög skilmerkilega frá öllu sagt og engu leynt.Enda engu að leyna þar sem um toppbíl var að ræða.
Bíllinn tjónlaus , allar skoðanir frá MB, eða eins og maður vill hafa það.
Fáeinum dögum seinna fór Smári til Dusseldorf að kaupa bílinn.
Þegar þangað var komið og Smári stendur fyrir utan hús Herra Jost Eickelkamps eiganda bílsins tilbúinn að ganga frá öllu saman , fékk hann þessi svör frá Herra Jost.
"Þér truflið mig við matarborðið, gjörið svo vel að koma aftur eftir nokkra daga".

Eftir svona móttökur ákvað Smári að kaupa alls ekki þennan bíl og sagði nuverandi eiganda hvernig móttökur hann hafði fengið.

Tæpri viku síðar fær Smári símtal frá Audi umboði í Dusseldorf og í símanum er sölustjóri þess.
Hann tjáir Smára að Herra Jost Eickelkamop hafi látið sig hafa símanumerið og beðið hann um að ganga frá þessu.
Smári sagðist ekki hafa nokkurn áhuga á að kaupa bíl af svoka hrokapungi og hann gæti bara átt bílinn sjálfur.
Þa sagði sölustjórinn Smára ansi merkilega sögu.
Umræddur eigandi bílsins væri forríkur hrokagikkur sem ætti stórt fyrirtæki í Dusseldorf.
Hann keypti 1 nyjan Audi í mánuði allt árið í kring og hefði gert í mörg ár.Bíla fyrir sitt fyrirtæki og hans starfsfólk.
Svona gamall Mercedes ætti ekkert erindi inn í Audi umboð en þeir gætu ekki sagt nei við hann því þeir yrðu að "sleikja á honum ras.....ð
Hann skyldi sjá til þess að allt yrði gert án þess að Smári þyrfti að hitta seljandann og hann skyldi sjá um allt saman.
Þetta stóðst allt saman.
Bílinn var greiddur brúttó og fékkst skatturinn endurgreiddur ári seinna þegar bíllinn var sendur úr landi.

Það er því ranglega farið með mál þegar sagt er að bíllinn sé ur dánarbúi.
Bílinn keypti hann með milligöngu Smára í Hamburg, sem hefði aldrei farið að kaupa þennan bíl ef hann hefði ekki verið eins góður og hann var.

En síðan þetta gerðist hafa W107 bílar hækkað gríðarlega, og fyrir það fé sem þessi bíll fékkst á sínum tíma fær maður einungis búðing í dag.

kv. Sveinbjörn Hrafnsson

#18
Já þakka þér fyrir Rúnar. Það hefur bara ekkert viðrað til myndatöku undanfarið, éljagangur
og óstöðugt veður ;-) Ég er að fá nýjar númeraplötur á hann, þá verður tilvalið að fara í myndatöku. Ég reyni að koma á næsta "Gathering" ef vinna og veður leyfa.
Mit freundlichen Grüssen
Ingvar T

Mercedes-Benz E320 - 1996

#19
Ingvar1972 skrifaði:Já þakka þér fyrir Rúnar. Það hefur bara ekkert viðrað til myndatöku undanfarið, éljagangur
og óstöðugt veður ;-) Ég er að fá nýjar númeraplötur á hann, þá verður tilvalið að fara í myndatöku. Ég reyni að koma á næsta "Gathering" ef vinna og veður leyfa.
Einkanúmer :?: hvernig þá :)
Delorean 1981_______________Swift 1992 Cabrio
[img]http://myndir.5aur.net/gallery2/d/39785-2/dmc.jpg[/img][img]http://myndir.5aur.net/gallery2/d/13305 ... Dsmall.jpg[/img][img]http://myndir.5aur.net/gallery2/d/36714 ... 3small.jpg[/img]
______________Benz 300D 1977______________
Stefán Örn Stefánsson - 869-6852 - ztebbi@simnet.is

#20
Þessi græni 280SLC er glæsilegur, það eru fleiri á landinu en mig grunaði, gaman að því! Felgurnar dálítið glannalegar, hann væri góður á samlituðu stálkoppunum, maður er ekkert nema íhaldssemin.

Nýjar "nýjar" númeraplötur já, Rúnar vill sennilega setja mig á steðjanúmer en ég vil geta notað original krómplöturnar undir sem nýju númeraplöturnar smellpassa í. Fæ þær vonandi
á föstudaginn 8)
Mit freundlichen Grüssen
Ingvar T

Mercedes-Benz E320 - 1996