ringi skrifaði:Þjóðverjar hafa einmitt notfært sér þetta "ástand" með því að kaupa bíla ótollaða frá danmörku. Danskir bílasalar hafa fengið ódýrara verð frá verksmiðju, til að vega upp á móti svívirðilegri hárri tollareglum.
Síðan er hægt að fá t.d. ML bílinn á rauðun númerum, útbúinn sem "lastebil" þá er búið að breyta honum í vsk. bíl, nema að hver sem er má nota hann sem slíkann. Þess vegna eru allir flottu bílarnir t.d. C36 AMG staition, útbúnir sem sendibílar!
T.d kostar ML í sendibíla útgáfu aðeins 4,3 á móti 9,8 í venjulegri útgáfu
Furðulegar reglur

Já ekki nóg með það, heldur eru til að mig minnir 3 mismunandi útgáfur af þessum moms reglum (vsk reglur)
Það er hægt að kaupa bíl með gulum plötum sem má nota eins og manni sýnist.
Svo er hægt að kaupa bíl með gulum plötum sem má ekki fara á yfir landamærin, nema að sækja um sérstakt leyfi.
Og svo er hægt að kaupa bíl á gulum plötum sem má eingöngu nota í fyrirtækjarekstur.
Tollar á bíla eru í kringum 180% þarna, sem er samt ekki flokkaður sem tollur því EU bannar þeim að rukka svona mikinn toll. Þessvegna er þetta kallað "grønafgift" sem er einsskonar umhverfisgjald. Þess vegna má sjá margar bíltegundir í danmörku sem maður hélt að væru úttdauðar í fínu standi. Menn halda úti gömlu vögnunum eins lengi og það tollir á hjólunum.
En svo eru tollar á atvinnutæki ekki nema 20% og þessvegna eru mjög margir fínir leigubílar, sendibílar, og flutningabílar í danmörku.
Ég spurði nokkra af hverju það væri svona svívirðulega háir skattar af bílum hjá þeim og þeir sögðu flestis að þetta væri gert til þess að stemma við viðskiptahalla við útlönd sem er svo sem ágæt útskýring og gæti örugglega virkað hérna hjá okkur. En ég er ekki endilega hlynntur þessari aðferð frænda okkar.
Jamm danir eru soldið skrýtnir