Fréttatilkynning frá Öskju

#1
**************************************************************************

Askja opnar fullbúið Mercedes-Benz vöru- og vinnubílaverkstæði í Hafnarfirði

Bílaumboðið Askja, sem er viðurkenndur sölu- og þjónustuaðili Mercedes-Benz hefur nú opnað mjög vel búið vöru- og vinnubílaverkstæði við Skútahraun 2a í Hafnarfirði, við hliðina á nýju slökkvistöðinni í Hafnarfirði. Í Skútahrauni verður öll starfsemi Öskju sem lítur að vöru- og vinnubílum, s.s. söludeild, verkstæði og varahlutadeild. Um er að ræða 1.200 m2 húsnæði, búið lyftum, gryfju og bremsuprófara auk þess sem öll þau tæki sem Mercedes-Benz gerir kröfu um til umboðsmanna sinna eru til staðar. Boðið er upp á allar viðgerðir, reglubundið viðhald og smurþjónustu.

Askja hóf starfsemi 1. mars 2005 og er eini viðurkenndi sölu- og þjónustuaðili Mercedes-Benz á Íslandi. Starfsmenn Öskju eru 25 talsins og eru starfsstöðvar tvær. Sala, þjónusta og afgreiðsla bílavarahluta fer fram á Laugavegi 170 í mjög vel búnu 1.400 m2 húsnæði. Þar er meðal annars að finna eitt fullkomnasta bílaverkstæði landsins og rúmgóðan og bjartan sýningarsal fyrir Mercedes-Benz fólksbifreiðar. Vöru- og vinnubílahlutinn verður nú alfarið í húsnæði Öskju við Skútahraun í Hafnarfirði.

"Þetta er mikil lyftistöng fyrir okkur enda eftirspurn eftir þjónustu við Mercedes-Benz bifreiðir verið mikil hjá okkur frá opnun, ekki síst fyrir vinnu- og vörubifreiðar. Við erum núna að bæta við okkur starfsfólki og leitum sérstaklega eftir bifvéla- og vélvirkjum. Á næstu árum mun Mercedes-Benz bifreiðum vonandi fjölga mikið en frá því við hófum starfsemi í byrjun mars þá hefur Askja afhent um 200 fólks-, vinnu-, og vörubíla. Okkur er það kappsmál að veita Mercedes-Benz eigendum fyrirtaks þjónustu á öruggan og vandaðan hátt og ný aðstaða í Hafnarfirði er því mikilvæg". Hannes Strange, framkvæmdastjóri Öskju

********************************************************************

Með kveðju

Starfsfólk Öskju

#2
Flott framtak, til hamingju Öskju-fólk. Það verður gaman að kíkja á þetta hjá ykkur þarna út í Hafnarfirði.
Ein spurning; er verkstæðisþjónustan við Vito Benzana, í Hafnarfirði eða Reykjavík?
Jón Birgir Valsson
GSM:6990019

#3
JBV skrifaði:Flott framtak, til hamingju Öskju-fólk. Það verður gaman að kíkja á þetta hjá ykkur þarna út í Hafnarfirði.
Ein spurning; er verkstæðisþjónustan við Vito Benzana, í Hafnarfirði eða Reykjavík?
vito hlýtur að flokkast undir vinnubíl og á þá því heima í Hafnarfirði :)

...án þess að ég sé með staðfestar heimildir um það :oops: ;)
Ásgeir Yngvi Ásgeirsson

W202 Mercedes Benz C 180 ´99 #Frúarbíllinn
W116 Mercedes Benz 280 SE '80 #Fyrsta ástin
Range Rover 4,0 SE ´01 #aldrei lærir maður
Subaru 1800 DL ´92 #Forstjórabifreiðin

#4
Ásgeir Yngvi skrifaði:
JBV skrifaði:Flott framtak, til hamingju Öskju-fólk. Það verður gaman að kíkja á þetta hjá ykkur þarna út í Hafnarfirði.
Ein spurning; er verkstæðisþjónustan við Vito Benzana, í Hafnarfirði eða Reykjavík?
vito hlýtur að flokkast undir vinnubíl og á þá því heima í Hafnarfirði :)

...án þess að ég sé með staðfestar heimildir um það :oops: ;)
Reyndar er hann mest notaður til fólksflutninga í mínu tilfelli þó aðrir flutningar komi líka við sögu. Eins og þú bendir réttilega á Geiri, þá hlýtur hann samt sem áður að flokkast undir vinnubíla. En maður þarf að vera vissssssssssssss! :yawn:
Jón Birgir Valsson
GSM:6990019

#6
JBV skrifaði:

Ef þú notar hann aðalega til fólksflutninga er hann fólksbíll :o

..sama gidir þá um rútur :P
Delorean 1981_______________Swift 1992 Cabrio
[img]http://myndir.5aur.net/gallery2/d/39785-2/dmc.jpg[/img][img]http://myndir.5aur.net/gallery2/d/13305 ... Dsmall.jpg[/img][img]http://myndir.5aur.net/gallery2/d/36714 ... 3small.jpg[/img]
______________Benz 300D 1977______________
Stefán Örn Stefánsson - 869-6852 - ztebbi@simnet.is

#7
Fólksbíll, sendibíll, smárúta gildir einu! Vito getur flokkast undir þetta allt saman. Það sem ég er aðallega að leita eftir er hvort af þessum tveimur verkstæðum muni þjónusta Vito, á Laugavegi eða í Flatahrauni? :wink:
Jón Birgir Valsson
GSM:6990019

#8
JBV skrifaði:Fólksbíll, sendibíll, smárúta gildir einu! Vito getur flokkast undir þetta allt saman. Það sem ég er aðallega að leita eftir er hvort af þessum tveimur verkstæðum muni þjónusta Vito, á Laugavegi eða í Flatahrauni? :wink:
Ég heyrði það nú sagt að það ætti að vera viðgerðarþjónusta fyrir Vito á Laugaveginum. Engu að síður voru allir varahlutirnir sendir í Skútahraunið þar sem þeir eru þannig flokkaðir í kerfinu okkar. Eg skal bara fá þetta mál á hreint. Held að það sé vissara í ljósi fyrirspurnarinna.
Rúnar Sigurjónsson
Herr Doktor
http://www.doktorinn.is" onclick="window.open(this.href);return false;
s. 552-5757

Þeir gagnrína ávallt Benzann mest, þeir sem hafa ekki efni á að eiga hann... ;)

#9
JBV skrifaði:Svona til gamans, sendi ég mynd af Vito þar sem hann er brúkaður til annars en fólksflutninga þá stundina. Heldur var verið að fara með ,,confidential hardware":crash: í eyðingu hjá Hringrás.
[img]http://memimage.cardomain.net/member_im ... 5_full.jpg[/img]
Verið að fara með notuð kynlífsleikföng í eyðileggingu :D :D :lol:
Sigurður Rúnar Birgisson but you can call me Siggi.
S. 847-6196

Mercedes Benz (w203) C32 AMG - 2001 - Seldur
Mitsubishi 3000GT SL - 1994 - Seldur
Suzuki Baleno - 1998
Mercedes Benz (W202) C36 AMG - 1996 - Seldur
Mercedes Benz (W124) E220 - 1994 - Seldur

#10
siggi_runar skrifaði:Verið að fara með notuð kynlífsleikföng í eyðileggingu :D :D :lol:
Var það fyrsta sem þér datt í hug, þarna pornodoggurinn þinn :x :lol: :lol:
:ohno: Nei, þarna var um að ræða diskar úr tölvum og tölvu þjónum.
Jón Birgir Valsson
GSM:6990019