Kannast einhver við þessa Benza ?

#1
Góðan daginn allir,

Ég hef verið að stunda smá fornleifauppgröft fyrir forvitnissakir.
Faðir minn átti á sínum tíma þrjá benza. Ég hef komist að því hvaða bílar það eru og hvaða fastanúmer þeir bera.
Mér datt í hug að einhverjir hér hefðu einhverjar upplýsingar um afdrif þessara bíla eða hvort einhver hafi komist í tæri við þá almennt :wink:
Bílarnir eru eftirfarandi:

KC-865 - W116 280 SE árgerð 1980, Hvítur
Bar númerin: Ö2632, G25956 og síðast KC-865
Staða: Afskráður 06.03.2002

HE-539 - W126 380 SE árgerð 1981, Blár
Bar númerin: R6128, R62266, Y809, R2597, Y2029, L244, L1969, Ö2632 og síðast HE-539
Staða: Innlögð númer (eyðilögð) en ekki afskráður

HH-980 - W126 280 SE árgerð 1984, Grár
Bar númerin: R1156, R29072, G6350, Ö11092, Ö2000 og síðast HH-980
Staða: Á götu og skráður á Seltjarnarnesi

Feitletruð númer eru númerin sem þeir báru þegar faðir minn átti þá.
Ef einhver gæti gefið upplýsingar um þessa bíla fyrir forvitnina í mér væri allt vel þegið :)


Skúli R.

#3
HH 980 var í góðu standi hérna 02 minnir mig enn hefur farið alveg ógeðslega ílla síðann
Hörður
MB E 230 Avantgarde ´96
MB 280 SE ´72
cron