Síða 3 af 4

Innsent: 08 Feb 2005, 23:37
frá Benzari
Askja er dótturfyrirtæki HEKLU, húsnæðið hýsti áður vinnubíla og Skoda(minnir mig)

Innsent: 08 Feb 2005, 23:44
frá Björgvin
RA skrifaði:
Benzari skrifaði:Askja er dótturfyrirtæki HEKLU, húsnæðið hýsti áður vinnubíla og Skoda(minnir mig)


PS Benzari ég var rétt í þessu að jafna innleggjafjöldann þinn........ 8)
Asskoti ert þú ötull í innslætti hérna 8)

Innsent: 08 Feb 2005, 23:58
frá Benzari
RA skrifaði:
Benzari skrifaði:Askja er dótturfyrirtæki HEKLU, húsnæðið hýsti áður vinnubíla og Skoda(minnir mig)
Já ég vissi að það væri dótturfyrirtæki Heklu var bara sona að spá hvar Askja yrði ...........!

PS Benzari ég var rétt í þessu að jafna innleggjafjöldann þinn........ 8)
:cheers:

Innsent: 09 Feb 2005, 00:16
frá Mercedes-Benz
JBV skrifaði:Er komin dagsetning á opnun ÖSKJU ehf :?:
Já það er kominn eitthver dagsetning í endaðan mánuðinn. Ég þarf að fá það fullkomlega staðfest áður en ég byrti það hér. Þetta var eitthvað á reyki hvernig þetta átti að vera þegar ég forvitnaðist um það síðast.

Innsent: 09 Feb 2005, 00:30
frá Mercedes-Benz
RA skrifaði:
Benzari skrifaði:Bílaumboðið ASKJA ehf. Laugavegi 170
Nú spyr maður einsog kota-bóndi ......... en er það ekki Hekla??? Askja hlýtur að fá sér húsnæði :shock:
Hekla er að Laugavegi 172, en mun nýta hluta af bakhúsi að Laugavegi 170 eitthvað um óákveðin tíma. Bílaumboðið ASKJA ehf mun verða með sýningarsal fyrir nýja fólksbíla og jeppa í framhúsinu á númer 170, en aðkoma að verkstæði, hraðþjónustu (smurstöð og smáviðgerðum) og varahlutaverslun fyrir þá bíla mun verða Brautarholtsmeiginn á horni Brautarholts og Nóatúns með innkeyrslu gengt Föndurkofanum. Í sumar er svo fyrirhugað að reisa nýtt húsnæði í Klettagörðum á bakvið hús Vélasviðs Heklu fyrir þjónustu við atvinnubílana frá DC. Þangað mun þá söludeild, varahlutaverslun og verkstæði fyrir sendibíla, vörubíla og hópferðabíla og önnur atvinnautæki fara, og verður því fyrirtækið á tveim stöðum með aðskilda starfsemi fyrir aðskilda áhersluhópa í rekstrinum. Þar til að húsið í Klettagörðum mun rísa mun varahlutaverslunin á Laugavegi verða samnýtt fyrir alla bílana.

Ef þið hafið frekari spurningar skal ég reyna að svara þeim eftir fremsta megni.

Innsent: 09 Feb 2005, 09:30
frá sveinn
Þetta eru frábærar sölutölur ef þær eru réttar! ...það verður spennandi að sjá hvernig árið kemur út. Mér hefur alltaf fundist hludeild Mercedes-Benz á þessum markaði allt of lítil! Hálfpartinn aldrei skilið þetta.

Innsent: 12 Feb 2005, 09:53
frá Haffi
Nei mikið djéskoti er W169 rennilegur :shock:

Innsent: 12 Feb 2005, 12:30
frá Björgvin
Keyrði nú þarna framhjá í gær og sá að það virðist nú allt vera tilbúið fyrir opnun inní salnum og meira að segja komið eitt stk A benz í reynsluakstur sem bíður bara fyrir utan 8)

Verður ekki frumkynning fyrir Stjörnumenn á þessum bílum???

Kveðja

Innsent: 12 Feb 2005, 16:36
frá Stinnitz
Björgvin skrifaði:
Verður ekki frumkynning fyrir Stjörnumenn á þessum bílum???
þess er óskað að þetta mál fari fyrir "yfir-Stjörnu" nefnd :wink: