RA skrifaði:Mercedes-Benz skrifaði:Ég vissi allavega um eitthvað í kringum 40 bíla sem búið var að selja í síðustu viku, frá því að ASKJA hóf sína starfsemi, og þá bæði fólksbíla og atvinnubíla. Það eru mjög góðar líkur fyrir að sú tala hafi hækkað eitthvað því eitthverjir voru að spá.
Ertu eitthvað tengdur Öskju? Hvernig er þetta núna td með blöðin sem við félagsmennirnir fáum er það ennþá í gegnum Ræsi? Eða eru þið í klubbnum að færa tengslin meira til Öskju? Hvernig liggur þetta nú allt saman .......

Já ég er starfsmaður hjá ÖSKJU.
Blöðin sem þú talar um verða framvegis send beint frá DC í þýskalandi en hvorki í gegnum Ræsi eða ÖSKJU. Búið er að senda lista yfir viðtakendur blaðanna til DC
Það hefur engin stefna verið tekinn um það að tengjast ÖSKJU neitt frekar en Ræsi á meðan að báðir aðilar vinna að sama verkefninu. ASKJA mun líklega lítið sem ekkert koma að málefnum klúbbsins fyrr en búið er að opna formlega.
Réttar upplýsingar um þessa bílasölu er hinsvegar sú að það eru 23 bílar seldir en eitthvað hefur gengið brösulega að fá framleiðslu á 20 A bílum til viðbótar, sem pantaðir hafa verið, vegna mikilla vinsælda á bílnum í Evrópu. Verið er að reyna að leysa það mál og vonandi að farsæl lausn finnist.
Rúnar Sigurjónsson
Herr Doktor
http://www.doktorinn.is" onclick="window.open(this.href);return false;
s. 552-5757
Þeir gagnrína ávallt Benzann mest, þeir sem hafa ekki efni á að eiga hann...
