Ég splæsti í E320 CDI 2001.

Ég lenti reyndar í óhappi örfáum dögum eftir að ég keypti hann. Ég keyrði á dráttarbeisli af dráttarvél. Bíllinn sem var á undan mér slapp yfir það en ég lenti á því. ca 10cm hátt 40-50kg járnstykki sem fór illa í benz. Braut vatnskassa og tjónaði hjólabúnað. Beygði spyrnu og spyrnufestingu. Reikna með að fá það útúr tryggingum, en ekki ekki er enn búið að úrskurða.
Ég er búinn að fá vatnskassa en vantar vinstri framspyrnu ef einhver veit um slíkt handa mér á góðu verði.
En pælingar um þennan bíl.
Hann heitir 210, er það ekki S210? Er ekki munurinn á W210 og S210 að S er wagon og W er með skotti, eða sedan eins og sumir kalla það? Munar einhverju öðru?
Mig vantar líka dekk undir hann, það eru frekar döpur dekk undir honum núna og svo vantar mig náttúrulega vetrardekk þegar vetur nálgast. Undir honum eru 16" felgur, komast 15" undir hann? Ætla að kaupa mér annan felgugang og eiga til skiptanna, sumar og vetur.
Síðan er túrbínan með stæla í honum. Hún er "inni" fyrstu 2-3 mín eftir að sett er í gang, síðan yfirgefur blásturinn partýið. Ég hef lítið skoðað þetta ennþá, en ég held að það sé variable vane í honum og þetta vandamál er væntanlega tengt því. Þekkir þetta einhver?
Síðan er bara þetta klassíska, ABS og það allt virkar ekki, mér skilst að það séu líklegast bilaðar rásir í heilanum og Maríus nokkur kunni ráð við því. Tékka á því þegar tími vinnst til.
Boddyið er aðeins farið að þreytast, komið svolítið ryð í hann en vonandi næ ég að gera eitthvað að gera fyrir það í náinni framtíð.
Annars er ég nokkuð lukkulegur með þennan vagn, rudda tog í honum þó túrbínan sé í einhverju allt öðru partýi. OM613 ku vera good stuff.