Bróðursonur minn var á ferðinni á Miklubrautinni með tengdapabba sínum. Hann ekur E320T CDI, held það sé árgerð 2004.
Allt í einu byrjaði bíllinn að hægja á sér og stöðvaðist að lokum. Vélin gekk eðlilega. Þeir fóru að spá í hvað gæti verið að.
Þeir sáu ekkert athugavert og bíllinn gerði ekkert í D Eða R. Þeir heyrðu skruðning og fóru að athuga hvaðan hann kom.
Þá tóku þeir eftir því að bremsudiskur á öðru afturhjóli snérist en bíllinn hreyfðist ekki og ekki heldur hjólið.
Bróðir minn hringdi í mig og spurði hvað þetta gæti verið.
Ég sagði að þetta gæti varla staðist. Ekki nema að allir felguboltar væru farnir en þá hefði ég búist við því að hjólið hefði farið líka. En það var á sínum stað.
Þeir voru búnir að hringja í Krók og farnir af staðnum. Þegar Krókur var að taka bílinn upp á pall þá datt hjólið af.
Þeir snéru við og ákváðu að kíkja eftir felguboltunum og fundu 4 bolta ekki langt frá bílnum.
Furðulegt að allir felguboltar skulu fara úr á sama tíma og enn furðulegra að hjólið haldist á.
Okkur dettur helst í hug að einhver hafi ætlað að ná sér í ódýra felgu og dekk en verið truflaður. Verið búinn að losa alla bolta og ekki getað klárað.
Re: Sérkennilegt atvik.
#2Heppnir segi ég nú bara !
Mercedes Benz 280 SE w108 V8 3.5 árg 1972 R-71
Jaguar XJS 3.6 árg.1989 GMG
BMW 735i e32 árg. 1989
Gunnar Már Gunnarsson ( GMG )
GSM 690-2222
http://www.cardomain.com/id/GMG_ICELAND
Jaguar XJS 3.6 árg.1989 GMG
BMW 735i e32 árg. 1989
Gunnar Már Gunnarsson ( GMG )
GSM 690-2222
http://www.cardomain.com/id/GMG_ICELAND
Re: Sérkennilegt atvik.
#4Ég held ég taki hring á boltana áður en ég legg af stað heim...
Voru felguboltarnir alveg heilir?
Voru felguboltarnir alveg heilir?
S211 E280 CDI '04
W201 2.3L 8v '92 - Seldur
W201 2.0L 8v '90 - Klesstur
W201 2.3L 8v '92 - Seldur
W201 2.0L 8v '90 - Klesstur
Re: Sérkennilegt atvik.
#5Mjög heppilegt að hjólið hafi ekki farið undan bílnum.
Hefur ekki gleymst að herða alla boltana, eða of lítið hertir ?
Hefur ekki gleymst að herða alla boltana, eða of lítið hertir ?
Hlynur S. - - - Sími: 869-6226
Mercedes Benz - E220
Mercedes Benz - E420 Sportline V8 - - - ///AMG kit, Eilfíðarverkefni
\\\Bón, Mössun, Alþrif
Fyrri bílar: Toyota Corolla Si, 7x W124, Justy, Volvo.
amigo.is
Mercedes Benz - E220
Mercedes Benz - E420 Sportline V8 - - - ///AMG kit, Eilfíðarverkefni
\\\Bón, Mössun, Alþrif
Fyrri bílar: Toyota Corolla Si, 7x W124, Justy, Volvo.
amigo.is
Re: Sérkennilegt atvik.
#6Felguboltarnir voru heilir.
Þetta getur víst gerst ef það eru álfelgur er mér sagt.
Ef það hefur gleymst að herða boltana þá ættu þeir að fara fljótlega eftir dekkjaskipti. En það er ekki í þessu tilfelli.
Þetta getur víst gerst ef það eru álfelgur er mér sagt.
Ef það hefur gleymst að herða boltana þá ættu þeir að fara fljótlega eftir dekkjaskipti. En það er ekki í þessu tilfelli.
Jón Ketilsson S. 8662773
Að eiga Benz eru trúarbrögð.
Að eiga Benz eru trúarbrögð.