Re: Ganga w210 felgur á w202?

#11
Logi skrifaði:
valdi skrifaði:ég hef notað sömu felgur á milli w124,w201,w202,w210 og allt fittað fínt á milli, 15", 16", 17" og 18" felgur... bara prófa ;)
Já þetta passar allt á milli, en lúkkar stundum ekkert of vel :mrgreen:
Það er alls ekki rétt. Annars væru menn ekki í milliklossahugleiðingum. Ég hef keypt felgur, með þetta hugarfar, og svo komust þær ekki undir út af stærri bremsudælum.

Ekki nema að nota milliklossa og það vil ég ekki. Líkur á skjálfta og það breytir líka álagi á legur og annað.


Jón Ketilsson S. 8662773

Að eiga Benz eru trúarbrögð.

Re: Ganga w210 felgur á w202?

#12
Hvernig breytir spacerinn álagi á hjólalegur?

Ég hef oft heyrt menn halda þessu fram en ég skil það ekki alveg. Sömu menn segja að í stað þess að setja spacerinn eigi heldur að færa miðjurnar í felgunum (er hér að vitna í umræður um stál jeppafelgur) eða finna aðrar með öðru ET númeri því það verndi legurnar.

Ef ég færi miðjuna í felgu inn eða út um þykkt spacersins í stað þess að hafa hann á milli er ég með nákvæmlega sömu afstöðu á milli nafs og felgu ekki satt?

Eini munurinn er að mínu viti þyngd spacersins. Þyngd spacersins getur varla verið mikill áhrifavaldur í þessu. Hann er tæplega mikið þyngri en munurinn sem er á dekkja og felgutýpum.

Ég skil vel að það að færa dekkið utar á nafinu eykur álagið á legurnar en ég sé ekki hversvegna það munar að gera það með spacer eða felgum með annari ET tölu.
Hafliði Jónsson

s124 280TE 1995

Re: Ganga w210 felgur á w202?

#13
Já ég sem sagt setti þessar felgur undir og það kemur bara voða vel út :mrgreen:

Fór úr 15" 195/65 í 16" 215/55 :Driverauto:
Ásgeir Yngvi Ásgeirsson

W202 Mercedes Benz C 180 ´99 #Frúarbíllinn
W116 Mercedes Benz 280 SE '80 #Fyrsta ástin
Range Rover 4,0 SE ´01 #aldrei lærir maður
Subaru 1800 DL ´92 #Forstjórabifreiðin