Síða 2 af 4

Innsent: 25 Jan 2005, 14:55
frá Spiderman
Þetta líkar mér, ég hvet þig til þess að fá þér blæjara. Ég á 2 blæjubíla eins og er og hef átt einn í viðbót. Eftir að maður eignast blæjubíl er ekkert aftur snúið, þetta er sjúkdómur. Sérstaklega gaman í sumar þegar hitinn fór uppí 27 gráður á Reykjanesbrautinni SL er sérstaklega spennandi kostur og er í raun sá bíll sem kveikti í þessu hjá mér, eða réttara sagt Bobby Ewing á sínum bíl Ég held að það sé ekkert vit í því að flytja þetta inn. Ef þú villt pre 1989 þá eru 2-3 til sölu sem ættu að fást fyrir rúma milljón. Hitt boddýið hefur lækkað miklu meira hér og hafa bílar verið að fara á fáránlegum verðum. Ekki láta ásetta verðið blekkja þig, t.d rauði SL 600 fór á þessu ári fyrir tæpar 2,5 Það er bíll sem var lengi til sölu á 8 milljónir Sá bíll myndi kosta að lágmarki 4 milljónir í innflutningi. Ég myndi skoða þennan gráa sem var lengi til sölu með ásett verð uppá 1690 þús sem er náttúrulega bara grín. SL 300 bíllinn er mjög flottur, maður er farinn að sjá hann svolítið aftur( held að hann sé skráður á eitthvað fyrirtæki á Siglufirði). Þann bíl átti bróðir vinar míns og þetta er mjög töff eintak. Aðrir bílar sem ég mæli með er svartur bíll með númerið BV***, vinur minn átti þann bíl og hann var þá allavega í góðu standi. Miðað við verðið á þeim gráa og rauða SL 600 þá er þessi markaður ansi breyttur, ég myndi ekki hika við að bjóða 1500 þús í bíl með ásett verð uppá 4 milljónir

Gangi þér vel

Innsent: 25 Jan 2005, 16:22
frá Stinnitz
...akveg sammála þér Spiderman. Þessir bílar eru þungir í sölu og þessi vínrauði SL600 fór á algeran djók pening. Ég myndi persónulega kíkja eftir C43AMG eða E500E ef ég væri að flytja inn bíl í augnablikinu, en náttúrulega ef menn eru að leita sér að bíl sem þeir ætla að eiga ættu þeir susum ekkert að vera pæla í endursölunni

Innsent: 25 Jan 2005, 18:21
frá siggi_runar
Skil ekki af hverju SL´inn er svona erfiður í endursölu þarsem þetta er svo fallegur bíll... En E500E er auðvitað pæling. Það er bara svo erfitt að fjárfesta í nýjum... það er til svo mikið og flott...

Innsent: 25 Jan 2005, 18:22
frá Stinnitz
...en hvað um C43AMG. 306 hö og virkar.

Innsent: 25 Jan 2005, 19:04
frá Spiderman
siggi_runar skrifaði:Skil ekki af hverju SL´inn er svona erfiður í endursölu þarsem þetta er svo fallegur bíll... En E500E er auðvitað pæling. Það er bara svo erfitt að fjárfesta í nýjum... það er til svo mikið og flott...
Mér finnst þetta mjög töff bílar, verðið á þessum bílum hefur bara verið sky high oft á tíðum. Er það ekki líka bara stimpillinn sem þessir bílar hafa... Fat guys with thin wallets...eins og t.d Andrés Pétur fasteignasali og Guffi bílasali

Innsent: 25 Jan 2005, 20:40
frá Stinnitz
Spiderman skrifaði: Fat guys with thin wallets...eins og t.d Andrés Pétur fasteignasali og Guffi bílasali
...hefur það ekki einmitt verið málið með þessa bíla. Svo hafa þeir margir verið að grotna niður og illa hugsað um þá. Einnig hafa þeir oftar en ekki staðið á bílasölum á einhverjum sky high prís

Innsent: 25 Jan 2005, 21:41
frá Stinnitz
...ég átti við SL-bílana þarna að ofan