Jæhja drengir, piltar og stúlkur... Nýtt sumar, nýr bíll, nýjir möguleikar, hvað er betra ?
Ég er orðinn ansi heitur fyrir því að festa kaup á nýjum bíl og er búinn að senda honum Smára nokkur mail en ég þarf samt hjálp.
Ég hef takmarkað fjármagn útaf aldri en það lagast nú þegar maður er búinn með sveinsprófið í múrnum þannig að fjármagnið eru 2.000.000kr.- og er það nánast toppurinn.
Ég er heitur fyrir öllu sem stjarna er á en bara mis spenntur.
Ekki væri amarlegt að finna einhver blæjubenz eða einhvern með hardtop því það hefur verið draumur lengi að geta verið með allt opið uppá gátt þessa nokkra daga á ári sem það er hægt
Hestastóðið væri svo best þegar við værum að tala um 200hp+
Talaði um SL´inn aðeins við hann þar sem ég hef mikinn áhuga á þeim og þessu svaraði hann meðal annars:
það eru nokkrar týpur þarna sem koma til greina 300SL, 300 SL24v, 500 SL.
320 og 280 koma svo seinna.
600 er líka til en mun dyrari.
Ég hugsa að til að ná almennilegum bíl inn þá er 2 millur alveg í neðstu mörkum.
En það má reyna, aldrei að vita hvað finnst.
Þessir W129 sería kom á götuna fyrst árið 1989, tók þá við af W107 sem var búinn að vera lengst allra bíla í framleiðslu hjá Mercedes ( ef ég man rett).
Við yrðum þá að finna bíl sem væri einn af fyrstu árgerðunum.
Hinir yrðu of dyrir.
Svo er líka auðveldara að finna góð verð í JAnuar og februar af því að nú er vetur og þessir bílar hækka alltaf í verði á sumrin.
Ég er opinn fyrir öllu og auðvitað er gaman að vera svona " sérstakur " dáldið í umferðinni á fallegum bíl þannig að ef einhver rekst á eitthvað flott og gott þá mætti sá hinn sami alveg leggja fram tillögu hérna á þessum þræði. Ég met allar upplýsingar og staðreyndir mjög vel þarsem að þetta mun nú vera ökutæki sem ég mun vera á í einhvern " x " tíma.
Maður á allavegana að hafa gaman tvisvar sinnum á daginn... þ.e.a.s. keyra í vinnu og úr vinnu Heyrði þetta einhverntíman.
Endilega ekki binda sig neitt við SL´inn þarsem svo margt annað er líka fallegt.
En ef einhver sem þið kannist við eða tja... þið sjálfir eruð að spá í að færa ykkur yfir á eitthvað nýtt í byrjun sumars eða aðeins fyrr, þá þarf minn bíll auðvitað að fara undan mínum verndarvæng og til einhvers annars og ekkert er betra en að vita að gullmoli mans sé í góðum höndum.
Samkvæmt heimasíðu Bílgreiningarsambandsins þá er bílinn minn metinn á um 1.000.000kr.- einsog hann stendur núna, auðvitað alltaf farið vel með hann einsog allir stjörnumeðlimir gera auðvitað, svo aukalega eru auðvitað felgur og sonna en hvað um það... Aðalmálið er að spá í hvað maður ætti að fá sér til þess að verma bílastæðið næstu mánuðina svo.
Ný stjarna á eyjuna í byrjun sumars
#1Sigurður Rúnar Birgisson but you can call me Siggi.
S. 847-6196
Mercedes Benz (w203) C32 AMG - 2001 - Seldur
Mitsubishi 3000GT SL - 1994 - Seldur
Suzuki Baleno - 1998
Mercedes Benz (W202) C36 AMG - 1996 - Seldur
Mercedes Benz (W124) E220 - 1994 - Seldur
S. 847-6196
Mercedes Benz (w203) C32 AMG - 2001 - Seldur
Mitsubishi 3000GT SL - 1994 - Seldur
Suzuki Baleno - 1998
Mercedes Benz (W202) C36 AMG - 1996 - Seldur
Mercedes Benz (W124) E220 - 1994 - Seldur