#11
Ég lét setja svona Volet kerfi í Toyotu hjá mér, í Nesradíó.

Svo kemur einhver draugur í kerfið, Ég gat t.d ekki læst, bíllinn opnaði sig sjálfur eftir ca 10 sek. Þegar ég var að keyra tók hann upp á því að vera alltaf að læsa sér og opna til skiptis. Svo hætti þetta alltí einu og hefur verið til friðs.

Ég spurði Leó M. Jónsson ráða hann svaraði mér "Þetta er bilun í kerfinu sem var sett í bílinn. Sams konar kerfi voru sett
æi fjölmarga Daewoo-bíla og mörg þeirra hafa verið til vandræða."

Þetta mun vera ítalskt kerfi, algjört drasl.

Ekki vildi samt konan þarna í Nesradíó meina það og mælti eindregið með þessu...


#13
Benz skrifaði:Ég myndi nú fara aftur til þeirra og sýna þeim þetta.Þeir laga þetta örugglega, hef sjálfur skipt mikið við þá
Ég er sammála því. Þetta er ekki alveg venjulegt fyrir vinnubrögð frá þeim samkvæmt minni reynslu. Þeir settu fyrir mig fjarstýringu í C bílinn minn á dögunum og það er allt annar standard á því en þetta. Hann Guðmundur í Nesradíó er öðlingur að eiga við og einstaklega kurteis og samvinnuþýður. Ef þú ferð til hans þá segir hann örugglega "Nú kondu með bílinn hérna inn við skulum bara laga þetta snöggvast" Þetta er eitthvað óvenjulegt og eitthvað sem ég hef aldrei séð frá þessu fyrirtæki fyrr.
Rúnar Sigurjónsson
Herr Doktor
http://www.doktorinn.is" onclick="window.open(this.href);return false;
s. 552-5757

Þeir gagnrína ávallt Benzann mest, þeir sem hafa ekki efni á að eiga hann... ;)

#14
Björgvin skrifaði:Myndi eindregið mæla með að þú farir til þeirra og látir þá kíkja á þetta þannig að þeir hafi möguleika að lagfæra þessi fúsk vinnubrögð sem hafa farið fram þarna því það er nú oft innan þessara fyrirtækja sem fúskarar koma inn til starfa sem geta skilað slæmu verki og komið óorði á fyrirtæki sem venjulega er ekki þekkt nema af góðu!

Kveðja
Í einu fyrirtæki gerðist það nú að þar réð maður sig til vinnu og var látinn tengja fjölmargar samlæsingar og fleira en svo þegar uppi var staðið þá kom það í ljós að hann hefði látið einhverja víra undir eitthvað brettið sem tengdist samlæsingunni á bílnum og fór þá sá maður á kvöldin og tæmdi það sem var í bílnum.
Sigurður Rúnar Birgisson but you can call me Siggi.
S. 847-6196

Mercedes Benz (w203) C32 AMG - 2001 - Seldur
Mitsubishi 3000GT SL - 1994 - Seldur
Suzuki Baleno - 1998
Mercedes Benz (W202) C36 AMG - 1996 - Seldur
Mercedes Benz (W124) E220 - 1994 - Seldur

#15
...ja hérna
Mercedes Benz W123 230E árg. 1982 -húsbóndabíllinn-
Toyota Land cruiser 120 VX -frúarbíllinn-
Honda CB600 -leikfangið-
-Brynjar Sigmundsson-
atligu skrifaði: ...veifað til nágrannans á sínum Toyota Yaris sem kæmist í hólfið milli framsætanna hjá þér!!!

#16
Fór og spjallaði við Guðmund, sem var hinn liðlegasti og sagði mér bara að koma á föstudaginn og Þetta yrði lagað. Kannski mun ég birta "eftir" myndir til að bæta fyrir skapillskuna um hlegina.
Sveinn

#17
sveinn skrifaði:Fór og spjallaði við Guðmund, sem var hinn liðlegasti og sagði mér bara að koma á föstudaginn og Þetta yrði lagað. Kannski mun ég birta "eftir" myndir til að bæta fyrir skapillskuna um hlegina.
Sagði ég ekki.
Rúnar Sigurjónsson
Herr Doktor
http://www.doktorinn.is" onclick="window.open(this.href);return false;
s. 552-5757

Þeir gagnrína ávallt Benzann mest, þeir sem hafa ekki efni á að eiga hann... ;)