CLK 200/230 samanburður

#1
Sælir Benz-félagar
Hvað er það helsta sem aðgreinir CLK 200 og CLK 230 týpurnar annað en vélarstærðin, eru þeir að einhverju leyti mismunandi hvað búnað varðar eins og eitthvað sem ekki var fáanlegt í aðra hvora týpuna; er að hugsa um árgerðirnar þetta 1998-2003/04? CLK 320 er svo líklega öllu frábrugðnari hinum tveim, geri ég ráð fyrir.

Kv. Þ.


Re: CLK 200/230 samanburður

#2
thor_man skrifaði:Sælir Benz-félagar
Hvað er það helsta sem aðgreinir CLK 200 og CLK 230 týpurnar annað en vélarstærðin, eru þeir að einhverju leyti mismunandi hvað búnað varðar eins og eitthvað sem ekki var fáanlegt í aðra hvora týpuna; er að hugsa um árgerðirnar þetta 1998-2003/04? CLK 320 er svo líklega öllu frábrugðnari hinum tveim, geri ég ráð fyrir.

Kv. Þ.
Oft var það með Benz að þú gast nánast keypt hvaða aukahluti sem þú vildir í allar gerðirnar. Veit ekki hvernig þetta er í dag (hef bara ekkert pælt í því :lol: ) en maður hefur sérstaklega tekið eftir þessu í auglýsingum erlendis C124 (forvera CLK) þar sem sumir höfðu augljóslega valið þann kostinn við pöntun að taka minni vélina og kaupa frekar aukahluti (s.s. leður, rafstýrð sæti o.s.frv.).

Hvað CLK 200 og 230 varðar þá reikna ég með að þeir séu mjög sambærilegir fyrir utan vélastærðina. Spurning frekar hvaða útfærsla var keypt (Elegance, Avantgarde o.s.frv.).
Benedikt Hans Rúnarsson

Re: CLK 200/230 samanburður

#4
thor_man skrifaði:CLK 200 136 hp ssk, er það vélarvana bíll og hvernig ætli eyðslan sé?
Kíktu á http://www.mercefreaken.com" onclick="window.open(this.href);return false; , það er ágæt norsk síða sem hefur helstu upplýsingarnar um eyðslu og tæknilegar útfærslur á Benzum nokkra áratugi aftur í tímann.
Þetta er ekki vélarvana þó svo að nýrri bílar í dag séu öflugri m.v. sömu stærð af vél í (4cyl 2L).
Benedikt Hans Rúnarsson

Re: CLK 200/230 samanburður

#5
munurinn á milli þeirra er enginn, þ.e.a.s fyrir utan vélfræðilegu hliðina.

aukabúnaður og annað slíkt er sá hinn sami, og það er enginn munur á því að aka bílnum

200 bíll án blásara (136hö) er bara mjög fínn. svipað power og í öðrum normal bílum bara. vakti athygli hjá mér hvað minn eddi littlu
Alpina B3 | Bmw 318i

Re: CLK 200/230 samanburður

#6
Takk fyrir svörin, þau skýrðu þetta allt býsna vel. Norski vefurinn er akkurat það sem á vantaði, einfaldur og skýr og kemst að kjarnanum án mikilla vífilengja. Hef augastað á einum clk200 136 hp, skráður 1/2001 en er sennilega 2000 árg., ef marka má norska vefinn. Ekki sérlega ásjálegur reyndar, en einhversstaðar er best að byrja...

Re: CLK 200/230 samanburður

#7
thor_man skrifaði:Takk fyrir svörin, þau skýrðu þetta allt býsna vel. Norski vefurinn er akkurat það sem á vantaði, einfaldur og skýr og kemst að kjarnanum án mikilla vífilengja. Hef augastað á einum clk200 136 hp, skráður 1/2001 en er sennilega 2000 árg., ef marka má norska vefinn. Ekki sérlega ásjálegur reyndar, en einhversstaðar er best að byrja...
Nákvæmlega :wink:
Benedikt Hans Rúnarsson

Re: CLK 200/230 samanburður

#8
ef þú ert að skoða þessa bíla að þá er gott að vita að með CLK sem og aðra benza, að bílarnir sjálfir eru alltaf þeir sömu óháð vélarstærðinni,

þú getur keypt clk200 non kompressor með gjörsamlega öllu, en CLK320 með engum búnaði nánast.
þeir hlutir sem fást standard án þess að borga aukalega fyrir því stigmagnast yfirleitt því betur vélaðir sem þeir verða. en það er engu síður í óverulegu magni. bílarnir eru búnir eins og upprunalegur kaupandi týmdi að blæða í hann.

af þessum árgerðum voru 3 megin búnaðapakkar, classic, elegance og avantgarde, ofan á þessa pakka eru bílarnir pantaðir eftir séróskum.

ég átti 99 CLK200, með 136hö mótornum, eða á öðru máli grunnmótorinn, ég var mjög ánægður með hann, hann virkar náttúrulega ekki blautann, en hann er skemmtilega gíraður og léttur á sér og eyðir afar littlu. ég man ekki eftir einu skipti þar sem ég var ósáttur við bílinn vélarlega séð
Alpina B3 | Bmw 318i

Re: CLK 200/230 samanburður

#9
Eru einhverjir ákveðnir staðir á undirvagni eða innri brettum sem skoða þarf sérstaklega m.t.t. ryðsækni? Finnst sem ég hafi séð nokkra með allverulegar lakkskemmdir við lista og samskeyti ýmis, það leynir sér nú vart en ryð í holrúmum er erfiðara að uppgötva fyrr en sér í gegn..
cron