Bílasýning 1970

#1
Hér fara leigubílstjórar frá Hreyfli sem óku um á Mercedes-Benz fylktu liði upp Miklubraut að Skeifunni þar sem haldin var bílasýning;

Ekið upp Miklubraut, framhjá blokkunum í Hvassaleiti.


Beygt af Miklubraut, inn Grensásveg og inn í Skeifu.


Ég vona að þið afsakið myndgæðin, en ég kem þessu á betra form seinna. Þetta er bara svona iPhone upptaka af 8mm filmu ...notalegt hljóðið samt í bakgrunninum, eða svona pínulítið eins og í diesel :) Grunar nefnilega að R-222 gæti leynist þarna innan um þessa bíla :roll:


Sveinn

Re: Bílasýning 1970

#7
Bætti við öðru myndskeiði frá sama viðburði í fyrsta innleggið...

Þetta er líka aðeins skárri útgáfa af fyrra myndskeiðinu :roll:

Ef menn geta bent mér á ódýra aðferð við að koma 8mm filmu á stafrænt form, þá má hinn sami endilega láta mig vita. Ég lét flytja nokkrar svona spólur yfir á stafrænt form fyrir einhverjum mánuðum og það kostaði morðfé :(
Sveinn