Gamlir Íslenskir Benzar

#1
Ég er búinn að setja í loftið nýjan vef sem mig langar að biðja ykkur um að kíkja á;

http://fornbill.mbclub.is

En þetta er ný útgáfa af gamla vefnum, sem nú hefur ekki verið uppfærður um árabil. Aðallega hefur þessi skortur á uppfærslu verið vegna þess að ég hef ekki haft neitt tól til að viðhalda vefnum :roll: :oops: Ég er núna að prófa mig áfram með slík tól og þið verðið að hafa þolinmæði ef auglýsingar koma upp. En ef ég kaupi hugbúnaðinn sem ég nota núna hverfa þær, ...bara ekki búinn að ákveða það. Eins eru allar hugmyndir um svona hugbúnað vel þegnar :wink:

Þessi vefur inniheldur mun fleiri myndir eða um 1500, og flestar eru þær í betri upplausn en áður. Fullt af myndum af bílum sem ekki voru komnir á gamla vefinn.

Það vantar allan texta um bílana, en ég ætla ekki að eyða vinnu í það fyrr en ég hef valið tól fyrir vefinn, en ég ætla þó sennilega ekki að eltast við það fyrir hvern einasta bíl engu að síður.

95% af þessum myndum hef ég tekið sjálfur, og einhverjar hef ég fengið sendar. Einnig eru þarna nokkrar myndir sem ég er ekki klár á upprunanum. Ef einhver hefur athugasemdir, þá bara endilega senda mér póst með athugasemdum.

Þarna er engan vegin tæmandi listi fyrir W123 bílana, heldur bara myndir af þeim bílum sem ég hef tekið á síman að undanförnu, svona einskonar upphaf af svona lista.


Sveinn Þorsteinsson
GSM: 899-5277

Mercedes-Benz 190Dc, 1964, R-222
Mercedes-Benz 300SEL 6.3, 1967, R-22
Mercedes-Benz 300GE, 1990
Mercedes-Benz 300SL, 1990

[img]https://zveinn.updog.co/R22/banner33.jpg[/img]

Re: Gamlir Íslenskir Benzar

#8
Takk fyrir góðar undirtektir :)

Þessar auglýsingar eru svolítið böggandi, en það kom ekki í ljós fyrr en ég setti þetta á netið :? ...Það kostar reyndar ekki nema rúmar 4000kr að losna við þær, og ég er að hugsa um að splæsa í það. Það er í lagi að borga stundum fyrir hugbúnað sem maður notar, ekki satt? :lol: Þetta er nefnilega ágætis kerfi, og auðvelt að viðhalda svona vef með því.

Kemur flott út í snjallsímum eins og iPhone... :tumbsup2:
BaraBenz skrifaði:En er ekki takmarkað hvað er hægt að hafa mikinn testa?
Jú, það fannst mér fyrst, en það er hægt að vista Word skjöl (eins og í möppunni fyrir Gerlach bílinn) og svo má líka birta texta sem tool-tip (eins og ég prófaði í möppunni fyrir gula hekkarann minn, getur prófað að setja músina yfir fyrstu myndina).
Sveinn Þorsteinsson
GSM: 899-5277

Mercedes-Benz 190Dc, 1964, R-222
Mercedes-Benz 300SEL 6.3, 1967, R-22
Mercedes-Benz 300GE, 1990
Mercedes-Benz 300SL, 1990

[img]https://zveinn.updog.co/R22/banner33.jpg[/img]

Re: Gamlir Íslenskir Benzar

#10
Flott síða Sveinn en er Gerlach Benzinn ekki árg 1936 eða 37 ?.Skv þessu er hann 1936

Skráningarnúmer: RE 37
Fastanúmer: OHF25
Verksmiðjunúmer: 135984
Tegund: MERCEDES BENZ
Undirtegund: 290 Cabriol B
Litur: Grár - tvílitur
Fyrst skráður: 01.01.1936
Staða: Í lagi
Næsta aðalskoðun: 01.07.2010
C02 losun (gr/km):
Eiginþyngd (kg): 1500
Sigurbjörn H.