Ég hef mikið verslað á netinu, ef þú hefur efasemdir um vefsíðu sem þú íhugar að verzla af farðu þá á google og skrifaðu nafnið á henni, svo "scam" , eða einfaldlega "reviews" fyrir aftan nafnið og getur lesið til um hana, ef margar niðurstöður koma um scam með þessari síðu er mjög hæpið að díla við hana, en annars dugar að lesa sig smá til, eina sem þarf að gera er að fullvissa sig um að þeir sendi til íslands, það getur verið smá höfuðverkur að láta menn gera það, ég hef svosem lent í því og sent þá skilaboð á aðilann úti og athuga hvort hann sé til í að senda þetta beint til íslands, það hefur ekki verið vandamál.
Ég hef svona verið að safna eitthvað af þessum 1:18 módelbílum, á 10-12 stykki af frekar flottari og dýrari tegundunum, Ferrari, Lamborghini, Porsche, og fl.
Aldrei hef ég séð 500E W124 í 1:18, aðeins þennan E320, væri til í að fá annaðhvort AMG W124 eða 500E að lágmarki í svona módeli.
Annars mæli ég með því að kaupa SLS AMG módelið, 300SL Gullwing og W126 myndi nú sæma sér vel hvar sem er. Það er einnig séns að þeir séu ódýrari ef þú leitar á ebay.de
Hér t.d. :
http://www.ebay.de/sch/Modellautos-/222 ... b=1%253A18" onclick="window.open(this.href);return false;