#18
fráGizmo
ég hef átt ML270 '00, fannst þetta mjög góður bíll í akstri, eyddi um 11ltr í bæjarakstri, bilaði ekki alvarlega meðan ég átti hann.
Það sem klikkaði á einu ári var centrallás í bílstjórahurð, brakaði í spindlum sem var lagað með því að sprauta olíu með nál í allar kúlur og ég reif rúðuþurrkumabóið úr og smurði það allt upp.
Ég myndi HIKLAUST kaupa 2003 ML á þessu fáránlega lága verði sem þessi bíll er boðinn á, þetta eru alvöru bílar, öruggir og mjög rúmgóðir, sérstaklega afturí sé aftursætinu rennt í öftustu stöðu. Ef menn bera svona kagga saman við td RAV4 og Hyundai, sem er ekki fjarri verðlega séð og sem eru vart fokheldir samanborið við Benzann þá er þetta nobrainer að velja. Vissulega eyðir þetta nokkrum lítrum meira en einhver talsvert minni bíll, en þetta er vel búinn og öruggur BÍLL sem menn geta ekið um stoltir.
Varahlutaverð er vissulega hátt í þessa bíla en þökk sé varahlutasölum hér heima, eBay og póstþjónustunni þá er það yfirstíganlegt ef bullverðskráin er dregin fram fyrir eitthvað sem þarf í Öskju. Held að ef menn hugsa um að halda þessu í lagi hjá aðilum sem vita hvað þarf að gera, þrífa og láta ryðverja húdd, skott og hurðir sérstaklega vel og láta bílinn ekki drabbast mikið niður heldur laga strax það sem upp kemur þá er alveg hægt að notast við þetta og vel það.
Bottom line, þetta er mikið af flottum bíl fyrir algjöra smápeninga. Hann mun þurfa sitt viðhald en það þurfa allir bílar, ekki gleyma því.
Bjarni Þorgilsson
S 772-7722