Re: ML 320 já eða nei ?

#11
Þetta eru fallegir og sportlegir jepplingar, hef reyndar aldrei átt svona og ekki Þröstur heldur, gaman væri að heyra frá mönnum sem að hafa átt svona bíla til að heyra alvöru reynslu sögur.

Leiðast svona fullyrðingar frá mönnum eins og Þresti sem hafa ALREI átt svona bíla bara lent í að laga einn og einn bíl, allir bílar þurfa jú viðhald, bara mismikið.


Mercedes Benz 280 SE w108 V8 3.5 árg 1972 R-71

Jaguar XJS 3.6 árg.1989 GMG

BMW 735i e32 árg. 1989

Gunnar Már Gunnarsson ( GMG )
GSM 690-2222



http://www.cardomain.com/id/GMG_ICELAND

Re: ML 320 já eða nei ?

#14
Þessi hérna er á helv. góðu verði : http://bilasolur.is/CarDetails.aspx?bid ... &schpage=1" onclick="window.open(this.href);return false;

Þetta getur nú ekki verið drasl ef að það er hægt að keyra þetta 178.xxx km og þetta lítur svona vel út, góð kaup sýnist mér allavega.
Mercedes Benz 280 SE w108 V8 3.5 árg 1972 R-71

Jaguar XJS 3.6 árg.1989 GMG

BMW 735i e32 árg. 1989

Gunnar Már Gunnarsson ( GMG )
GSM 690-2222



http://www.cardomain.com/id/GMG_ICELAND

Re: ML 320 já eða nei ?

#16
Allir bílar hafa sína kosti og galla,og ef eingöngu væri horft á alla galla í bílum þá værum við líklega enn á hestum :)
Ml er ekki gallalaus,enn á móti kemur frábær akstursbíll og góð stærð að jeppaling,stór kostur ef hann er útbúinn með háa lága drifinu,eyðsla á svona bíl er ekkert svakaleg,sérstaklega miðað við t.d Rav 4 ssk sem er með skv reynslu um 17 l á hundraði miðað við að Ml hjá mér var um 15 l eins og ég keyri innan bæjar báða bíla,veit ekki með eyðslu á þessum 350 bíl,enn sýnist vera fantagóð kaup þar
MERCEDEZ S 500 ÁRG 94
MERCEDES 230 E COUPE ÁRG 90 í uppgerð
RENAULT KANGOO ÁRG 2011/SVARTUR

GET ALDREI Keyrt eins og Rafynjan
ÞARF Mikið TIL!!!!!
SVONA TVO

Re: ML 320 já eða nei ?

#17
Við skulum líka muna það að Ml 270cdi bílarnir voru allir framleiddir i Austuriki og er himinn og haf milli ameríku bílana og þeirra .. Mundi aldrei kaupa ameríku bílinn .
270cdi bíllinn er mjög góður og hef ég augastað á einum sem verður verslaður eftir áramót (ef hann verður enn til )

Re: ML 320 já eða nei ?

#18
ég hef átt ML270 '00, fannst þetta mjög góður bíll í akstri, eyddi um 11ltr í bæjarakstri, bilaði ekki alvarlega meðan ég átti hann.

Það sem klikkaði á einu ári var centrallás í bílstjórahurð, brakaði í spindlum sem var lagað með því að sprauta olíu með nál í allar kúlur og ég reif rúðuþurrkumabóið úr og smurði það allt upp.

Ég myndi HIKLAUST kaupa 2003 ML á þessu fáránlega lága verði sem þessi bíll er boðinn á, þetta eru alvöru bílar, öruggir og mjög rúmgóðir, sérstaklega afturí sé aftursætinu rennt í öftustu stöðu. Ef menn bera svona kagga saman við td RAV4 og Hyundai, sem er ekki fjarri verðlega séð og sem eru vart fokheldir samanborið við Benzann þá er þetta nobrainer að velja. Vissulega eyðir þetta nokkrum lítrum meira en einhver talsvert minni bíll, en þetta er vel búinn og öruggur BÍLL sem menn geta ekið um stoltir.

Varahlutaverð er vissulega hátt í þessa bíla en þökk sé varahlutasölum hér heima, eBay og póstþjónustunni þá er það yfirstíganlegt ef bullverðskráin er dregin fram fyrir eitthvað sem þarf í Öskju. Held að ef menn hugsa um að halda þessu í lagi hjá aðilum sem vita hvað þarf að gera, þrífa og láta ryðverja húdd, skott og hurðir sérstaklega vel og láta bílinn ekki drabbast mikið niður heldur laga strax það sem upp kemur þá er alveg hægt að notast við þetta og vel það.

Bottom line, þetta er mikið af flottum bíl fyrir algjöra smápeninga. Hann mun þurfa sitt viðhald en það þurfa allir bílar, ekki gleyma því.
Bjarni Þorgilsson
S 772-7722

Re: ML 320 já eða nei ?

#19
Gizmo skrifaði:ég hef átt ML270 '00, fannst þetta mjög góður bíll í akstri, eyddi um 11ltr í bæjarakstri, bilaði ekki alvarlega meðan ég átti hann.

Það sem klikkaði á einu ári var centrallás í bílstjórahurð, brakaði í spindlum sem var lagað með því að sprauta olíu með nál í allar kúlur og ég reif rúðuþurrkumabóið úr og smurði það allt upp.

Ég myndi HIKLAUST kaupa 2003 ML á þessu fáránlega lága verði sem þessi bíll er boðinn á, þetta eru alvöru bílar, öruggir og mjög rúmgóðir, sérstaklega afturí sé aftursætinu rennt í öftustu stöðu. Ef menn bera svona kagga saman við td RAV4 og Hyundai, sem er ekki fjarri verðlega séð og sem eru vart fokheldir samanborið við Benzann þá er þetta nobrainer að velja. Vissulega eyðir þetta nokkrum lítrum meira en einhver talsvert minni bíll, en þetta er vel búinn og öruggur BÍLL sem menn geta ekið um stoltir.

Varahlutaverð er vissulega hátt í þessa bíla en þökk sé varahlutasölum hér heima, eBay og póstþjónustunni þá er það yfirstíganlegt ef bullverðskráin er dregin fram fyrir eitthvað sem þarf í Öskju. Held að ef menn hugsa um að halda þessu í lagi hjá aðilum sem vita hvað þarf að gera, þrífa og láta ryðverja húdd, skott og hurðir sérstaklega vel og láta bílinn ekki drabbast mikið niður heldur laga strax það sem upp kemur þá er alveg hægt að notast við þetta og vel það.

Bottom line, þetta er mikið af flottum bíl fyrir algjöra smápeninga. Hann mun þurfa sitt viðhald en það þurfa allir bílar, ekki gleyma því.
Akkúrat svona innlegg sem að þurfti að koma, flott svar Bjarni :tumbsup2:
Mercedes Benz 280 SE w108 V8 3.5 árg 1972 R-71

Jaguar XJS 3.6 árg.1989 GMG

BMW 735i e32 árg. 1989

Gunnar Már Gunnarsson ( GMG )
GSM 690-2222



http://www.cardomain.com/id/GMG_ICELAND

Re: ML 320 já eða nei ?

#20
Já ég missti af þessum 320 ML bíl.

Það var búið að samþykkja skipti á bíl sem ég á með þeim forvara að vélarljós sem logaði hjá mér væri ekki alvarleg bilun. Þetta var á föstudegi. Ég kom því í bæinn á mánudegi til að fara með bílinn í lestur í toyota. Meðan ég sit þar og bíð hringir bílasalan, Lýsing sem átti Benzann er hætt við skiptin. Þessi bíll er síðan horfin af sölunni. Hann hefur því líklega selst beint og hvorki LýsingLitla bílasalan höfðu pung til að segja mér það.

Mér finnst þessi vinnubrögð léleg og illa var komið fram við landsbyggðarmanninn þarna verð ég að segja.
Ásgeir Yngvi Ásgeirsson

W202 Mercedes Benz C 180 ´99 #Frúarbíllinn
W116 Mercedes Benz 280 SE '80 #Fyrsta ástin
Range Rover 4,0 SE ´01 #aldrei lærir maður
Subaru 1800 DL ´92 #Forstjórabifreiðin