Hvað er svona spes við þetta????

#1
Hvers vegna er þessi bíll svona dýr? Eftir sem áður er þetta ágætt eintak af hinum ágæta 190 bíl. Bara mjög lítið ekinn og þá kanski mikið staðinn og með sprækum mótor. Hvað gerir þennan bíl 10-12.000 evrum dýrari en venjulegar 190E bíl? Er ekki 14.500 júrur glæpaverð fyrir svona bíl? Eða er ég kanski bara svona vitlaus að fatta ekki hvað er svona merkilegt við þennan kostagrip?

[img]http://bilder.mobile.de/images/autos/52 ... 620_1.bild[/img] [img]http://bilder.mobile.de/images/autos/52 ... 620_4.bild[/img]

[img]http://bilder.mobile.de/images/autos/52 ... 620_3.bild[/img]

http://www.mobile.de/SIDsHDxzk2NogI.9IY ... 149864737&


Rúnar Sigurjónsson
Herr Doktor
http://www.doktorinn.is" onclick="window.open(this.href);return false;
s. 552-5757

Þeir gagnrína ávallt Benzann mest, þeir sem hafa ekki efni á að eiga hann... ;)

#2
ég man eftir einum Top Gear þætti þar sem talað var um þennan bíl ásamt VW Corrado sem svona "cult" bílar, þ.e. bíla sem vert væri að kaupa og eiga. Þetta eru semsagt eftirsóttir bílar og þvi leyfir fólk sér að setja hærri verðmiða á gripinn en ella.

það held ég amk.

kv, P

#4
Bíllinn er vissulega mjög dýr en það skýrist kannski mest af því að hann er mjög lítið ekinn og góð eintök af þessum bílum eru mjög eftirsóknarverð þar sem þetta er "collectors item" ef svo mætti segja.

Merkilegheitinn felast svo auðvitað líka í því að COSWORTH (Í uppáhaldslandinu ykkar, BRETLANDI) smíðaði 16 ventla topp á vélina ásamt einhverjum fleiri breytingum sem ég kann ekki skil á. Þessi bíll er líka með "dog leg" gírkassa sem er auðvitað afskaplega keppnis enda bíllinn smíðaður eingöngu með þann tilgang að etja kappi við BMW E30 M3. Þessir bílar voru "hómólógeraðir" og slíkt skilar í flestum tilfellum afskaplega harðsoðnum og merkilegum bílum. Bremsur, fjöðrun, já nánast allt nema stell og innrétting er öðruvísi í þessum bíl en í venjulegum 190E...

Ég nennti nú ekki að fletta þessu öllu upp, þannig að það gætu vel verið staðreyndarvillur í þessu hjá mér, en svona er þetta gróflega eftir minni.

Það er líka mjög gaman frá því að segja að COSWORTH breyttu vélarnar endast mun betur og eru áreiðanlegri en hinar 4 strokka vélarnar þrátt fyrir að meira sé úr þeim tekið...
Ingvar Örn Ingvarsson
http://www.blyfotur.is

#5
Jáhh ég var semsagt bara svona vitlaus að fatta þetta ekki. Takk fyrir ábendingarnar

Varðandi Cosworth að þá eru það alveg gæjar sem ég hef trú á. Bretar geta verið góðir vélsmiðir ef hlutirnir meiga kosta svolítið, eða eru sérsmíðaðir fyrir rall eða keppnisakstur. Bróðir minn átti eitt sinn Ford Escort rallybíl með 2000 Cortina vél, sem var breitt með eitthverju Cosworth kitti, og það var alveg að virka. Venjuleg bresk almúgafjöldaframleiðsla er hinsvegar ekki alveg að virka alltaf.
Rúnar Sigurjónsson
Herr Doktor
http://www.doktorinn.is" onclick="window.open(this.href);return false;
s. 552-5757

Þeir gagnrína ávallt Benzann mest, þeir sem hafa ekki efni á að eiga hann... ;)

#6
jebb, ætli þetta sé ekki 2.3 Cosworth útgáfa.

Ég er alveg veikur fyrir þeim bílum, þeir voru í Top gear að testa þetta.

Ég veit ekki meira um þetta en hann átti að vera mjög sambærilegur við M3 (gamlann að sjálfsögðu)

#8
W201 Cosworth útgáfan þarna var í Top Gear sagt eftir einhverjum góðkunnum blaðamanni eða álíka að þessi benz væri með eitt besta sedan chassey handling ever made.

Kann ekki að þýða þetta chassey orð.

#9
Hvað er svona spes við þetta????
að þú skulir láta svona vitleysu uppúr þér
Hörður
MB E 230 Avantgarde ´96
MB 280 SE ´72