Re: Hvaða bíl sjáið þið mest eftir að hafa látið frá ykkur?

#21
Benni skrifaði:Sumir myndu e.t.v. halda að ég sæi mest eftir W111 220SEb Coupé 1965:
[img]http://memimage.cardomain.com/member_im ... 3_full.jpg[/img]
En ég er reyndar svo ánægður með kaupandann að ég er sáttur við að hafa látið hann frá mér í góðar hendur :tumbsup2:
- en ég sakna hans samt :cry: en veit að ég hefði ekki gert hann upp eins og á að gera við svona eðalgripi :oops:

Ég sé sennilega mest eftir "Tunglfaranum" :x
[img]http://dl.dropbox.com/u/1260886/Efni%20 ... all%29.JPG[/img]
W124 diesel, seldur vegna smá tjóns (sem lítið mál var að laga) auk þess að einhver leki var kominn á vélina sem ég gat ekki fundið út úr né gert við. Kom reyndar í ljós að bilunin var bara smávægileg en ég var dottinn í "beinskipta ASD gírinn" (W124 230E) og lét þennan því flakka :evil:
Hef því alltaf augun opin þegar ég sé 124 diesel til sölu :wink:
Það verður gaman að sjá coupé-inn koma úr klössun frá Gunna rabbvirkja. :D
En þessi 300D var góður og ótrúlega heill þrátt fyrir háa kílómetratölu. Það er alveg ótrúlegt að sjá hvað þessir Benz grútarbrennarar fara langt á þessum vélum. :tumbsup2:
Annars er einn lítið ekinn W124 dísel auglýstur í söluþræðinum. Benni nú er lag. :D


Jón Birgir Valsson
GSM:6990019

Re: Hvaða bíl sjáið þið mest eftir að hafa látið frá ykkur?

#22
JBV skrifaði:
gmg skrifaði:w140 500SE árg 92, sem að ég gaf sjálfum mér í 30 ára ( árið 2000 ) afmælisgjöf, fyrsti bíllinn minn með einkanúmerið GMG ( konan mín gaf mér númerið )

[img]http://www.stjarna.is/bitmaps1/yngribilar_on.jpg[/img]

Eina myndin sem að ég fann í bili !
Þú hefur ekki átt þá fáa Benzana GMG í gegn um tíðina. :D Veistu eitthvað hvað varð um þennan ?
Maður hefur átt þá nokkra og í seinni tíð á maður erfitt með að láta þá frá sér, en fastanúmerið á þessum w140 sem að ég átti er NP-462, skilst á Rúnari að hann sé í góðum höndum fyrir norðan ( búið að gera helling fyrir hann ).
Mercedes Benz 280 SE w108 V8 3.5 árg 1972 R-71

Jaguar XJS 3.6 árg.1989 GMG

BMW 735i e32 árg. 1989

Gunnar Már Gunnarsson ( GMG )
GSM 690-2222



http://www.cardomain.com/id/GMG_ICELAND

Re: Hvaða bíl sjáið þið mest eftir að hafa látið frá ykkur?

#23
JBV skrifaði:Þessi er askoti flottur, skil vel að þú sjáir eftir honum. Er þessi enn á götunni ?
Hann hefur ekki verið skoðaður síðan ég átti hann, og staðan er "Úr umferð".

Ég seldi hann í febrúar 2004, en myndin hér fyrir neðan er tekin haustið 2003. Ég átti þennan bíl í tæp 6 ár og hann var algerlega ódrepandi, óryðgaður og leit mög vel út. Ég skil bara ómögulega hvers vegna hann virðist bara hafa verið keyrður út árið sem ég seldi hann... :roll: :? :? :? :? :cry:

[img]http://dl.dropbox.com/u/1264580/misc/G4331a.JPG[/img]

...þessir bílar eru ein aðal ástæðan fyrir því að vörumerkið Mercedes-Benz er það sem það er í dag. Bílarnir sem voru á undan (w114/w115) og þeir sem komu á eftir (w124) voru einnig vel heppnaðir og reyndust vel, en ég held að þetta hafi verið toppurinn hvað varðar gæði og áreiðanleika.
Sveinn

Re: Hvaða bíl sjáið þið mest eftir að hafa látið frá ykkur?

#25
Ég hef alltaf séð eftir þessum og reyndi lengi að kaupa hann aftur. Fyrsti bíllin minn þegar ég var 16 ára. 40 ár síðan. Kannski kaupi ég hann af Rúnari þegar hann verður tilbúinn.

[img]http://fornbilar.stjarna.is/images/ponton/Ponton18a.jpg[/img]

En svona á seinni tímum sé ég eftir þessum G400 CDI sem ég átti í Slóveníu. Nema ég kunni ekki við vélina.

[img]http://jonket.net/benz/G400_CDI_2001.jpg[/img]
Jón Ketilsson S. 8662773

Að eiga Benz eru trúarbrögð.

Re: Hvaða bíl sjáið þið mest eftir að hafa látið frá ykkur?

#26
ég sé eftir öllum benzunum mínum en það eru þó 2 benzar sem ég sé mest eftir...
það eru
w211 E270cdi árg02 sem var seldur á uppboði eftir að kunningi minn velti honum
[img]http://www.cardomain.com/ride/2964599/2 ... 9645990081[/img]
[img]http://www.cardomain.com/ride/2964599/2 ... 9645990113[/img]

og svo E230 w210 árg98
[img]http://carphotos.cardomain.com/ride_ima ... iginal.jpg[/img]
[img]http://carphotos.cardomain.com/ride_ima ... iginal.jpg[/img]

svo var C230kompressor bíllinn sem ég átti helvíti góður. bara ekki nógu mikill benz einhvernveginn :s
[img]http://carphotos.cardomain.com/ride_ima ... iginal.jpg[/img]

en ég á núna án alls vafa lang besta benz sem ég hef átt. og ef ég sel hann þá á ég eftir að sjá rosalega eftir honum, og þessvegna sel ég hann ekki :)
Fannar Daði Hreinsson
1987 M.Benz 230TE 8)
1992 M.Benz E220 seldur

Re: Hvaða bíl sjáið þið mest eftir að hafa látið frá ykkur?

#27
E-cdi skrifaði:ég sé eftir öllum benzunum mínum en það eru þó 2 benzar sem ég sé mest eftir...
það eru
w211 E270cdi árg02 sem var seldur á uppboði eftir að kunningi minn velti honum
[img]http://www.cardomain.com/ride/2964599/2 ... 9645990081[/img]
[img]http://www.cardomain.com/ride/2964599/2 ... 9645990113[/img]
Ég sé ekki þessar tvær myndir svona, en vonandi virkar þetta betur...

[img]http://carphotos.cardomain.com/ride_ima ... _large.jpg[/img]

[img]http://carphotos.cardomain.com/ride_ima ... _large.jpg[/img]
Sveinn

Re: Hvaða bíl sjáið þið mest eftir að hafa látið frá ykkur?

#28
Nr 1. Seat Ibiza Sxi árg 1990.Keypti þennan nýjan og þetta var skemmtilegur og frískur bíll enda vélin hönnuð í samstarfi við Porsche.Reyndi að eignast hann aftur en þá var búið að henda honum

[img]http://i239.photobucket.com/albums/ff2/ ... ns2011.jpg[/img]


Nr 2. Saab 9000 CSE,turbo árg 1994.Kannski maður kaupi einn svona aftur einn daginn.

[img]http://i239.photobucket.com/albums/ff2/ ... SE1994.jpg[/img]
Sigurbjörn H.

Re: Hvaða bíl sjáið þið mest eftir að hafa látið frá ykkur?

#30
Eini bíllinn sem ég sé eftir að hafa selt er E34 525i árg '92. LANG besti bíll sem ég hef átt.
Stútfullur af búnaði (nánast með öllu, en samt beinskiptur :Drivermanual: ). Fínn kraftur
og eyðslan mjög hófleg. Átti þennan í rúm 2 ár frá des 2004 til jan 2007.
[img]http://myndasafn.bmwkraftur.is/d/28715- ... n+2006.jpg[/img]

Vélinni var stútað stuttu eftir að ég seldi hann (var í toppstandi) og síðan var hann
keyrður í klessu á Gullinbrúnni árið 2008.

Síðan þykir mér leiðinlegt að hafa selt græna E320, en ég sé svosem ekkert eftir því.
Mjög góður bíll að flestu leiti.
[img]http://myndasafn.bmwkraftur.is/d/90795-1/IMG_8433.JPG[/img]

Vélarnar í þessum tveim bílum eru þær skemmtilegustu sem ég hef kynnst og mjög líkar í
rauninni - BMW M50 og Mercedes-Benz M104. Alveg frábærir mótorar!
Logi Sigurjónsson
cron