Hvert fór Guðjón Magnússon?

#1
Sælir félagar

Opnaði Gaui í Ræsi ekki eigið verkstæði einhvers staðar eftir fall Ræsis á dögunum? Veit einhver hvað það heitir og hvar það er ef það fyrirfinnst enn þá? Karl faðir minn þarf að láta skipta um spindilkúlu í sínum forláta C 200 Kompressor og vill helst fá Gauja í málið ef hann er að stússast í Benz-viðgerðum einhvers staðar. Bestu kveðjur á Frónið annars. -Atli Steinn


Auk þess legg ég til að Karþagóborg verði lögð í eyði.

Re: Hvert fór Guðjón Magnússon?

#3
Það er ekki lengi verið að því að sækja sér upplýsingar hér! Bestu þakkir, Gunnar. Ég hlakka til að verða Benz-eigandi aftur og liggja hérna á spjallinu. C 230 Kompressor 2005 eða 2006 er á fjárlögum fyrir vorið 2013. Þokkaleg eintök af þessu fást ekki undir 250.000 norskum.
Auk þess legg ég til að Karþagóborg verði lögð í eyði.