[img]http://dl.dropbox.com/u/14423282/taumotta.JPG[/img]
Þetta er klassa motta en gallinn er bara að hún er varla nothæf fyrir vetur eða slabb. Þá kemur ekkert í staðinn fyrir gúmmí.
En það er ekki sama hvernig það er, venjulega eru þetta frekar flatar mottur með litlum sem engum kanti og snjórinn / slabbið flýtur yfir og niður í taumottuna undir og að lokum gólfið.
Það var svo í vetur að ég datt niður á mottu í N1 sem var svarið við þessum vandamálum.
Þetta er standard motta sem smellpassar í W124 (ekki 4matic).
Hér sést að þetta eru alvöru kantar.
[img]http://dl.dropbox.com/u/14423282/n1_kantar.jpg[/img]
Til að hún passaði varð ég að „Van Gogh-a“ hana en miðað við raufarnar í henni er beinlínis gert ráð fyrir að sumar mottur þyrftu á þessari andlitslyftingu að halda.
[img]http://dl.dropbox.com/u/14423282/n1_vangogh.jpg[/img]
Og svo er bara að henda henni í bílinn.
Fyrir:
[img]http://dl.dropbox.com/u/14423282/inni_fyrir.jpg[/img]
Eins og sniðin fyrir W124!
[img]http://dl.dropbox.com/u/14423282/inni_eftir.jpg[/img]
Til að gæta samræmis varð ég auðvitað að kaupa aðra farþegamegin. Þar var engin skurðaðgerð nauðsynleg enda ekki um bensínfót að ræða þar.
[img]http://dl.dropbox.com/u/14423282/motta2.JPG[/img]
Ef einhverjir aðrir W124 eigendur hafa áhuga að skoða þetta hjá N1, þá er þetta miðinn sem fylgdi mottunni:
[img]http://dl.dropbox.com/u/14423282/spjald.jpg[/img]
Framleiðandinn er hér á netinu:
http://www.lampa.it/en/prod-101-580-138 ... er_mat.asp
Nú er komið fram í maí og enn bíður taumottan eftir að fá að komast í vinnuna. Sjáum til hvað gerist í júní
PS
Eins og ég minntist á áður, þá passar þessi motta ekki í 4matic.
Áður en ég keypti taumottuna var slitin 4matic motta í bílnum (frá því þegar ég keypti hann).
Munurinn á þessum mottum (4matic og ekki 4matic) er, eins og myndin sýnir, talsverður.
[img]http://dl.dropbox.com/u/14423282/4matic.JPG[/img]