Bifreiðagjöld lækkun

#1
Ég er rukkaður um 17.854 kr bifreiðagjöld af W210 E230 árg 1996

Ég fann ekki í fljótheitum tölur um CO2 útblástur E230 en ef ég miða við E240 af W211
þá er bifreiðagjald af slíkum bíl, reiknað út frá CO2 losun 15.480

V6 240 eyðir meira en 230 bíll og því þykir mér líklegt að Steingrímur sé að snuða mig um 5.000 kall á ári.

Ef stjörnumenn geta fundið viðurkenndar CO2 tölur fyrir Benza eldri en árg 2000 þá er kominn góður tekjugrunnur að rekstri http://www.stjarna.is" onclick="window.open(this.href);return false;

Re: Bifreiðagjöld lækkun

#3
Gizmo skrifaði:það er ekki ólíklegt að 230 mengi mun meira en 240. Sitthvor kynslóð véla og himinn og haf milli mengunarkrafna 1990 og 2000.

Þú getur gleymt því að þú fáir reikning uppá 2x 12.000 fyrir svona bíl eða finnir einhver rök sem myndu styðja það.
Ég náði þessu ekki með 12.000 kallinn! -Ég átti frekar von á því að verða á svipuðu róli og E240 W211.

Ég kasta þessu fram hér þar sem ég reikna með að ALLIR diesel benzar eldri en árg 2000 og allir 4 cyl bensín benzar frá 1985 komi til með að lækka um e-h þúsundkalla ef hægt er að finna opinbera tölu fyrir CO2 losun þessara gerða. Eins virðist munur á því hvernig gjöldin eru reiknuð, eftir því hvort bílar eru fluttir inn nýjir eða notaðir.
Þessi 5.000 kall skiptir engu máli í heildar rekstrrkostnaði hjá mér en gæti skipt máli fyrir e-h tugi notenda vefjarins.

Þetta er ekki spurning um það hvort vélar uppfylli e-h mengunarstaðla þar sem CO2 er alltaf í beinu samhengi við eldsneytisnotkun, óháð því hvort mikið myndast af NOx, sóti oþh.

Re: Bifreiðagjöld lækkun

#4
Sælir félagar,
ég er með W210 E240 bensín árg.98 og er að velta fyrir mér bifreiðagjöldum af honum.
Seðillinn frá skattinum er bifreiðagjald kr.18.368. eiginþyngd 1520kg. co2 óþekkt.

Ef ég set inn í reiknivél á skattur.is co2 losun 245gr.(uppl.um losun teknar af mobile.de) fer bifreiðagjaldið í kr.19.880. þannig fyrir mig borgar sig að vera með óþekkta losun co2. á þessum bíl.

Kv.Elías
Kv.Elías
MB 300

Re: Bifreiðagjöld lækkun

#6
MB 300 skrifaði:Sælir félagar,

Þetta er rétt hjá þér, -ég hef gleymt að bæta við 5000 kr fasta gjaldinu af losun upp að 121g/Km.
Skv þessu er hagkvæmara að aka E500 ef þeir eru frá síðustu öld!
mobile.de virðist vera ágætur staður til að finna uppgefna CO2 losun. Með því að fletta upp nokkrum E230 kom upp talan 219g/Km2.
Skv því eru bifreiðagjöld 5.000 + (219-121)x120 = 16.760 kr
Mismunurinn er því ekki nema e-h klink.

Þetta getur þó skipt máli fyrir þá sem eru á þungum grútarbrennurum en CO2 losun 1760 kg E320CDI-T árg 1999 er ekki nema 211 g/Km og bifreiðagjald því 15.560

Tollur og bensíngjald eru skiljanlegir skattar. Bifreiðagjald er hinsvegar einn fáránlegasti skattur sem til er. Þar er verið að skattleggja það að eiga bíl heima á plani, óháð notkun.

Ef markmið stjórnvalda er að minka mengun og eldsneytisnotkun, er eðlilegra að skattleggja eldsneytið meira en hætta að skattleggja bíla óháð akstri. Þekki marga sem aka í vinnu á mikið breyttum og óhagkvæmum jeppum því þeir vilja ekki borga gjöld af auka bíl.

Re: Bifreiðagjöld lækkun

#7
Ég henti upp í töflu samanburði á bifreiðagjöldum eftirtalinna bíla af árgerð 1996-8.
Við allar tölur bætist úrvinnslugjald.

Gerð þyngd kílógjald gCO2/Km CO gjald Mismunur/ári
E230 1.460 17.480 219 16.760 1.440
E240 1.520 18.368 245 19.880 -3.024
E320CDI-T 1.760 21.800 209 15.560 12.480

Niðurstaðan: -kílóagjaldið vs. CO2 gjald er hagstætt fyrir 6 og 8 cyl bensínvélar en óhagstætt fyrir díselbíla.
4cyl bensínvélar koma út á sléttu.
Menn geta svo leikið sér að því að reikna sína bíla út frá forsendum á bakhlið rukkunarinnar.

Re: Bifreiðagjöld lækkun

#10
MB 300 skrifaði:Sælir félagar,
ég er með W210 E240 bensín árg.98 og er að velta fyrir mér bifreiðagjöldum af honum.
Seðillinn frá skattinum er bifreiðagjald kr.18.368. eiginþyngd 1520kg. co2 óþekkt.

Ef ég set inn í reiknivél á skattur.is co2 losun 245gr.(uppl.um losun teknar af mobile.de) fer bifreiðagjaldið í kr.19.880. þannig fyrir mig borgar sig að vera með óþekkta losun co2. á þessum bíl.

Kv.Elías

Já alveg eins bíll hér nema árg.99 þyngd 1.520kg co2 óþekkt KR.18.368

Samt er ég með passat árg.99 þyngd 1.464 co2 228/km KR.18.210

passatinn er 4motion 1800vél... er þetta samt ekki full mikið ?
:?:
Ford F-150 98' seldur
subaru impreza 00' drasl seldur
M.Benz C250 Disel 96' seldur
VW Passat 4Motion 99´ Family Wagon
M.Benz E240 99' í notkun!
cron