Re: 300sel 6.3l á leiðini til landsins

#24
Benzari skrifaði:
cobrasvt skrifaði:Loksins kominn Orginal Mercedes-Benz 300SEL 6.3 til landsins
Veit eigandinn ekki að það er búinn að vera svona bíll hérna í tugi ára eða er bíllinn hans Sveins ekki original 6,3?
Nei, Teddi, það veit það hver sem viljað hefur og er alþekkt að bílnum mínum var breytt af Ræsi fyrir hartnær 30 árum. Einhver umfangsmesta gæluverkefni þar á bæ og tók um ár í framkvæmd. Þetta er jafnframt eitt af því sem mér finnst skemmtilegt við langa og þekkta sögu bílsins hérlendis og dálítið i anda þess sem gerði það að verkum að vélin úr 600 bílnum endaði í W109 bílnum í upphafi, fyrir þá sem þekkja. Þetta var örugglega dýrari aðgerð en að kaupa slíkan bíl til að byrja með og hef ég stundum hugleitt hvers vegna Geir Þorsteinsson, þáverandi forstjóri Ræsis, valdi að fara þessa leið :roll: Sennilega var það þó aðallega að hann átti þennan bíl fyrir og hann komst yfir tjónaðan 6.3L bíl í Þýskalandi fyrir tilviljun.

Mig langar að óska þessum manni til hamingju með að vera búinn að fá bílinn til landsins, og vona jafnframt að honum takist einhvern tíman að koma honum á götuna. Miðað við þær myndir sem ég hef af bílnum, þá hugsa ég að það verði ærið kostnaðarsamt og kannski hefði verið ódýrara að kaupa betra eintak þegar uppi er staðið. Það er svona mín tilfinning.

Ég verð að segja að mér finnst dálítið broslegt hvað manninum er umhugað um að koma því á framfæri að bíllinn hans sé original :lol:
Sveinn

Re: 300sel 6.3l á leiðini til landsins

#26
Alpina skrifaði:
sveinn skrifaði:
Ég verð að segja að mér finnst dálítið broslegt hvað manninum er umhugað um að koma því á framfæri að bíllinn hans sé original :lol:
Þetta er Alþekkt ef menn eru með HÉGÓMA,,,,

ég hef helling af slíku :lol: :lol: :rofl:
Já, við hér á bílaspjöllunum erum örugglega allir með nóg af slíkum hégóma, enda er frumtilgangur bifreiða aðeins sá að flytja okkur frá A til B, óháð því hvort gerðin er t.d. Benz, BMW eða annað. Annað er hégómi :wink: :)

En, ég var svona meira að skýrskota til samhengisins sem hlutirnir eru sagðir... :wink:
Sveinn
cron