Datt í hug að bera Stjörnuna saman við aðra spjallvefi. Á forsíðu þeirra fimm bílaspjallvefja sem ég skoðaði eru birtar tölur um heildarinnlegg og skráða notendur. Þessar upplýsingar er hægt að nota sér til að bera saman umfang og virkni spjallvefjanna.
En þó hér sé verið að bera saman spjallvefi, þá voru þeir ekki stofnaðir samtímis og hafa því sumir fengið meiri tíma en aðrir til að bera út fagnaðarerindið.
Stofndagsetningar spjallvefja:
ágúst 2001 - Kvartmíla
ágúst 2002 - bmwkraftur
janúar 2003 - Live2Cruise
ágúst 2003 - Stjarna
ágúst 2004 - Blýfótur
Hvað er þetta með ágústmánuð og stofnun spjallvefja?
Þegar tekið er saman fjöldi skráðra notenda er Kvartmíluspkjallið með þá langflesta. Tími skiptir auðvitað máli hér því t.d. var Kvartmílan stofnuð þremur árum fyrr en Blýfóturinn. Sé samt ekki að henni yrði skákað í fjölda notenda þótt aðrir fengju þau ár sem upp á vantar.
[img]http://easy.go.is/crises83/spjallvirk01okt.JPG[/img]
Þegar hinsvegar er borið saman heildarfjöldi innleggja kemur í ljós að Live2Cruise er með flest innlegg. Bmwkraftur ekki langt þar undan. Kvartmílan kemur á óvart og er með færri innlegg en Stjarnan, þó að skráðir notendur Kvartmílunnar séu um 5 sinnum fleiri.
[img]http://easy.go.is/crises83/spjallvirk02okt.JPG[/img]
Að lokum deildi ég fjölda notenda í fjölda innleggja til að fá meðaltal innleggja á hvern skráðann notanda. Þá sést að bmwkraftur er með virkustu notendurnar en Kvartmílan með þá óvirkustu.
[img]http://easy.go.is/crises83/spjallvirk03okt.JPG[/img]
Tölurnar á bak við gröfin (staða frá 20-10-04):
[img]http://easy.go.is/crises83/spjallvirk04okt.JPG[/img]
Helstu niðurstöður:
1. Kvartmílan með langflesta notendur
2. Live2Cruise með flest innlegg
3. bmwkraftur með mestu póstvirkni per notanda
4. Kvartmílan með minnstu póstvirkni per notanda
Í stuttu máli má því segja að bmwkraftur og Live2Cruise séu aktífustu bílaspjalls vefirnir í dag. Kvartmílan kemur hinsvegar út sem risi á brauðfótum miðað við póstvirkni. Stjarnan og Blýfótur eru með ágætis póstvirkni hjá sér en miklu færri notendur á bak við sig en aðrir.
Annað sem ég tók eftir að hafa verið að logga mig inn á hina vefina er að þar eru miklu fleiri notendur online heldur en hérna á Stjörnunni. Þetta er í samræmi við það að það hefur verið frekar rólegt hér á Stjörnunni undanfarið.
Spjallvefir í misjöfnum ham
#1Arinbjörn Gunnarsson
Mercedes Benz W124 E220 1992
[img]http://dl.dropbox.com/u/14423282/Jan201 ... tom%29.jpg[/img]
Mercedes Benz W124 E220 1992
[img]http://dl.dropbox.com/u/14423282/Jan201 ... tom%29.jpg[/img]