Þórður A. skrifaði:Haha hvaða viðkvæmni er í gangi?
Maður gagnrýnir ömurlega stjórn hér og vinir stjórnarinnar hópast til og rakka mann niður...
Horfið aðeins á þetta frá öðru sjónarhorni. Ég gerði mistök og var ekki lengi að viðurkenna þau.
Kanski ekki hægt að búast við öðru frá fólki sem velur benz til að keyra um á! Snar klikkað...
Já, þú viðurkennir mistök þín. En biðst þú afsökunar á því að hafa ásakað ranga menn, nei. Þetta hér fyrir neðan myndi ég alla vega ekki telja afsökunarbeiðni. Það er stór munur þar á.
Þórður A. skrifaði:
Jahh... Í raun ekki, og eftir á að hyggja sé ég það að hann hefur sennilega eytt þessu út sjálfur... Hljóp aðeins á mig.
Eitt skil ég þó ekki, og það er það að hann skuli setja inn link til þess að eyða honum út eins og virðist gerast með síðara skiptið.
En það breytir þó ekki mínum kvörtunum yfir þessari "stjórn" sem maður ætti nú ekki að kalla... Meira svona "félagsskapur ómálefnalegra manna" þó að vissulega séu fínir menn þarna inn á milli...
Þröstur getur kallað sig stjórnanda. Þú líka. En það segir ekkert um það hvort það sé rétt. En þú ræðst á alla stjórnendur spjallsins, mig þar á meðal, og hef ég ekki komið að málinu fyrr. Hvers á ég að gjalda?
Hvað er svona ömurlegt við stjórnina hér Þórður? Rökstuddu það.
Og hver er með stórar ásakanir á eiginlega alla spjallverja hér núna?
Hvað ert þú að vilja með snarklikkuðu fólki sem velur Benz til að keyra á, mér þar á meðal?
Mér er sama þó sett sé út á mína umræðu hér eða bílinn minn. En þegar er ráðist á mig persónulega eða konuna mína (sem hefur gerst hér á spjallinu og gat hún ekki varið sig) þá er mér alls ekki sama.
Er ekki kominn tími til að setja skottið á milli lappana (
duck tail) og forða sér frá þessu snarklikkaða liði? Góðlátleg hugleiðing hjá mér.
Jón Ketilsson S. 8662773
Að eiga Benz eru trúarbrögð.