Re: W123 Coupe , staðan á skerinu !

#53
TX-084 hefur tekið smá breytingum síðustu ár !
frá því að vera svona , þegar hann var upp á sitt besta!
[img]http://img59.imageshack.us/img59/3748/dsc08316qq4.jpg[/img]

yfir í þetta , þar sem hann stóð svona sennilega í ca 3ár :cry:
[img]http://img232.imageshack.us/img232/3104 ... 9large.jpg[/img]

Og svo núna er hann svona , nýmálaður og fínn ! :clapping: (skoðaði reyndar ekki vinnubrögðin) Rétt náði einni símamynd !
En allavega fjarska fallegur !
[img]http://img402.imageshack.us/img402/3096/mynd0046.jpg[/img]
Kveðja
Guðmundur R.


W201 ´90
Ford Focus

Re: W123 Coupe , staðan á skerinu !

#55
sveinn skrifaði:Er búið að sprauta bílinn silfur-gráan?

...hvenig fer það við ljós-gula innréttingu? :hmm:
.
Mikil synd að skipta út fyrri lit, var MIKLU fallegri svona grænblár....
Björgvin Pétursson
280 SEL W126
E420 W124
230CE W123
230C W123
S320 W140
190E 2.6 W201
C36 AMG W202
C320 Brabus W203
E320 W124
230CE W124

http://www.cardomain.com/ride/3891358/1 ... nz-e-class" onclick="window.open(this.href);return false;

Re: W123 Coupe , staðan á skerinu !

#56
Sá þennan uppá höfða í morgun , og skoðaði aðeins !
Bíllinn er vægast sagt orðinn dapur :(
Kominn krabbi í hann út um allt og sjúskaður að utan sem innan !
[img]http://img843.imageshack.us/img843/7346/r9128.jpg[/img]

Tók lélegar símamyndir
[img]http://img109.imageshack.us/img109/4551/mb230ce.jpg[/img]
[img]http://img148.imageshack.us/img148/4323/230ce.jpg[/img]

En þær sína nú ekki hvað hann er orðinn slæmur !
Bíllinn er ekinn ca 266000km og er beinskiptur 4gíra
Kveðja
Guðmundur R.


W201 ´90
Ford Focus

Re: W123 Coupe , staðan á skerinu !

#57
Ronny skrifaði:TX-084 hefur tekið smá breytingum síðustu ár !
frá því að vera svona , þegar hann var upp á sitt besta!
[img]http://img59.imageshack.us/img59/3748/dsc08316qq4.jpg[/img]

yfir í þetta , þar sem hann stóð svona sennilega í ca 3ár :cry:
[img]http://img232.imageshack.us/img232/3104 ... 9large.jpg[/img]

Og svo núna er hann svona , nýmálaður og fínn ! :clapping: (skoðaði reyndar ekki vinnubrögðin) Rétt náði einni símamynd !
En allavega fjarska fallegur !
[img]http://img402.imageshack.us/img402/3096/mynd0046.jpg[/img]
Fór og skoðaði þennan í kvöld eftir krúserkvöldið á Bílalind Bílasölu, og þvílíka bónusvinnan á þessum bíl, gömul slitin drulluskítug leðurinnrétting sem hefur einhvern veginn verið troðið á sætin, sprautuvinnan er léleg, illa sparslað, illa slípað, liturinn fínn en glæran virðist alveg hafa mislukkast og hvað í ósköpunum var maðurinn að hugsa að skipta um lit á þessum bíl, algjört slys þessi bíll að mínu áliti.... :(

kveðja
Björgvin Pétursson
280 SEL W126
E420 W124
230CE W123
230C W123
S320 W140
190E 2.6 W201
C36 AMG W202
C320 Brabus W203
E320 W124
230CE W124

http://www.cardomain.com/ride/3891358/1 ... nz-e-class" onclick="window.open(this.href);return false;

Re: W123 Coupe , staðan á skerinu !

#58
Ég er eiginlega bæði mjög hissa á því að maðurinn skyldi breyta litnum á bílnum og hinsvegar skipta um sætaáklæði. Þetta var nefnilega bæði mjög flott eins og það var. Þessi ljósbrúni sætalitur fer engan vegin við silfurgráan en fór hinsvegar mjög vel við græan litinn. Auk þess voru sætin mjög flott með þessari velúrklæðningu, fallegri þannig en leðruð, finnst mér :roll: ...en það hefur víst hver sinn smekk.
Sveinn

Re: W123 Coupe , staðan á skerinu !

#59
sveinn skrifaði:Ég er eiginlega bæði mjög hissa á því að maðurinn skyldi breyta litnum á bílnum og hinsvegar skipta um sætaáklæði. Þetta var nefnilega bæði mjög flott eins og það var. Þessi ljósbrúni sætalitur fer engan vegin við silfurgráan en fór hinsvegar mjög vel við græan litinn. Auk þess voru sætin mjög flott með þessari velúrklæðningu, fallegri þannig en leðruð, finnst mér :roll: ...en það hefur víst hver sinn smekk.

Ég er hjartanlega sammála síðasta ræðumanni.

Þessi bíll sem var sem nýr, utan þess að hafa orðið fyrir smávægilegu umferðaróhappi sem þurfti að laga, manni langar bara til að skæla.
w463 G300td 2000
w111 220 SEb/C 1965