Re: hvað má w124 e220 draga mörk kg?

#21
Ég stalst nú nokkrum sinnum til þess að draga rúmlega 3.5 tonn á 230e bílnum mínum. Fór meðal annars upp ártúnsbrekkuna. Þessu lauk reyndar á því að ég braut annan öxulinn að aftan inn á miðju plani hjá SORPU. Skiptingin hélt alveg og ég veit ekki betur en bíllinn sé í góðum málum enn þann dag í dag.

Þess vegna efast ég ekki um að skiptingin ráði við 2000 kg ef að varlega er ekið.

Heyrði einhvern tíman að þegar verið væri að draga þunga kerrur á sjálfskiptum bílum væri best að skipta honum sjálfum upp, þ.e. setja skiptinguna í lægsta gír og fikra sig áfram. Veit ekkert hvað er til í því.


Re: hvað má w124 e220 draga mörk kg?

#22
Ég myndi hafa meiri áhyggjur af hita á vélinni.

Ég keyrði mikið um Suður Evrópu 2006-08 og þá var mjög algengt t.d. að sjá bíla, sérstaklega AUDi og VW með hjólhýsi í eftirdragi út í kant með opið húddið og rjúkandi úr vatnskassanum. Alltaf í brekkum.

Ég kom heim á S320 (W220) frá Slóveníu haustið 2008 með kerru sem var um 2000 kg og fann ekki fyrir því. Flaug upp Fjarðarheiðina á leiðinni frá Seyðisfirði og er þar frekar bratt (einnig var kominn snjór). Reyndar mjög góð kerra og tekur ekki á sig mikinn vind (straumlínulöguð) og rennur vel.

Hinsvegar, fljótlega eftir að ég kom heim fór að bera á smá skjálfta í bremsudiskum að framan. Gæti hafa ofhitað þá og þeir verpt sig. Þeir voru ekki svo slitnir.
Jón Ketilsson S. 8662773

Að eiga Benz eru trúarbrögð.

Re: hvað má w124 e220 draga mörk kg?

#23
MERC_230E skrifaði:Ég stalst nú nokkrum sinnum til þess að draga rúmlega 3.5 tonn á 230e bílnum mínum. Fór meðal annars upp ártúnsbrekkuna. Þessu lauk reyndar á því að ég braut annan öxulinn að aftan inn á miðju plani hjá SORPU. Skiptingin hélt alveg og ég veit ekki betur en bíllinn sé í góðum málum enn þann dag í dag.

Þess vegna efast ég ekki um að skiptingin ráði við 2000 kg ef að varlega er ekið.

Heyrði einhvern tíman að þegar verið væri að draga þunga kerrur á sjálfskiptum bílum væri best að skipta honum sjálfum upp, þ.e. setja skiptinguna í lægsta gír og fikra sig áfram. Veit ekkert hvað er til í því.
Var einmitt að velta þessu fyrir mér. Maður myndi einmitt halda að það væri betra.
Ásgeir Yngvi Ásgeirsson

W202 Mercedes Benz C 180 ´99 #Frúarbíllinn
W116 Mercedes Benz 280 SE '80 #Fyrsta ástin
Range Rover 4,0 SE ´01 #aldrei lærir maður
Subaru 1800 DL ´92 #Forstjórabifreiðin

Re: hvað má w124 e220 draga mörk kg?

#24
BaraBenz skrifaði:Ég myndi hafa meiri áhyggjur af hita á vélinni.

Hinsvegar, fljótlega eftir að ég kom heim fór að bera á smá skjálfta í bremsudiskum að framan. Gæti hafa ofhitað þá og þeir verpt sig. Þeir voru ekki svo slitnir.

Góður punktur. Það þarf auðvitað að geta stoppað líka!
Ásgeir Yngvi Ásgeirsson

W202 Mercedes Benz C 180 ´99 #Frúarbíllinn
W116 Mercedes Benz 280 SE '80 #Fyrsta ástin
Range Rover 4,0 SE ´01 #aldrei lærir maður
Subaru 1800 DL ´92 #Forstjórabifreiðin

Re: hvað má w124 e220 draga mörk kg?

#26
Einn félagi minn í vinnunni er hestadellugaur :lol: og hann sagði mér að hestamenn ættu ekki að vera á sjálfskiptum bílum því að skiptingarnar færu svo fljótt.
Hann hefur hins vegar ekki átt Benz svo að ég veit ekki hvort að hann hafi eitthvað vit á þessu :lol:

Eru annars ekki þessi hræðulegu stóru trukkar frá Ameríkuhreppi sem ansi mikið er af hérna allir sjálfskiptir ? :roll:
Benedikt Hans Rúnarsson

Re: hvað má w124 e220 draga mörk kg?

#27
Benni skrifaði:Einn félagi minn í vinnunni er hestadellugaur :lol: og hann sagði mér að hestamenn ættu ekki að vera á sjálfskiptum bílum því að skiptingarnar færu svo fljótt.
Hann hefur hins vegar ekki átt Benz svo að ég veit ekki hvort að hann hafi eitthvað vit á þessu :lol:

Eru annars ekki þessi hræðulegu stóru trukkar frá Ameríkuhreppi sem ansi mikið er af hérna allir sjálfskiptir ? :roll:
Heyrðu jú mig grunar nú að það séu fleiri ssk bílar sem draga hestakerrur heldur en bsk.
En það eru þá líka jeppar og pallbílar. Sjálfur hef ég ekið Ford 250 með 5 hesta og hann fór létt með það... enda framleiddur til að bera og draga. Og þeir bílar eru allir ssk.

En ssk fólksbíll með hestakerru er eitthvað sem fáir stunda... :mrgreen:
Ásgeir Yngvi Ásgeirsson

W202 Mercedes Benz C 180 ´99 #Frúarbíllinn
W116 Mercedes Benz 280 SE '80 #Fyrsta ástin
Range Rover 4,0 SE ´01 #aldrei lærir maður
Subaru 1800 DL ´92 #Forstjórabifreiðin

Re: hvað má w124 e220 draga mörk kg?

#29
Sergio skrifaði:1000kg? sem sagt má eingöngu draga Subaru Justy á E220? :roll:

haha já það virðist vera ! :mrgreen:

Ég sé ekki fram á annað en að ég verði að fórna mér í þetta verkefni... bara testa w124 E220 sem dráttarbíl :mercedes:

Menn eru að segja svo ólíka hluti hérna.
Ásgeir Yngvi Ásgeirsson

W202 Mercedes Benz C 180 ´99 #Frúarbíllinn
W116 Mercedes Benz 280 SE '80 #Fyrsta ástin
Range Rover 4,0 SE ´01 #aldrei lærir maður
Subaru 1800 DL ´92 #Forstjórabifreiðin

Re: hvað má w124 e220 draga mörk kg?

#30
Þessar vangaveltur minna mig á þetta myndband:
http://www.youtube.com/watch?v=lAfZ1N56qjY
Delorean 1981_______________Swift 1992 Cabrio
[img]http://myndir.5aur.net/gallery2/d/39785-2/dmc.jpg[/img][img]http://myndir.5aur.net/gallery2/d/13305 ... Dsmall.jpg[/img][img]http://myndir.5aur.net/gallery2/d/36714 ... 3small.jpg[/img]
______________Benz 300D 1977______________
Stefán Örn Stefánsson - 869-6852 - ztebbi@simnet.is