Re: Formula 1 2010, Hver verður meistari ???

#32
:x sprungið dekk hjá Hamilton þegar 2 hringir voru eftir.

Næst þegar útlit verður fyrir rigningu mun maður horfa á keppni, annars er þetta lítið meira spennandi en skákmót í beinni.

Gunnlaugur Rögnvaldss. hlýtur að vera að pikka inn uppkast af fréttapistli í miðri útsendingu, "pennatikkið" hljómar meira eins og það sé hamast á lyklaborði. :crash:
Teddi :mercedes:

Re: Formula 1 2010, Hver verður meistari ???

#33
Benzari skrifaði::x sprungið dekk hjá Hamilton þegar 2 hringir voru eftir.

Næst þegar útlit verður fyrir rigningu mun maður horfa á keppni, annars er þetta lítið meira spennandi en skákmót í beinni.

Gunnlaugur Rögnvaldss. hlýtur að vera að pikka inn uppkast af fréttapistli í miðri útsendingu, "pennatikkið" hljómar meira eins og það sé hamast á lyklaborði. :crash:
Virkilega pirrandi að hlusta á þetta lyklaborða pikk, er að spá í hvort að hann sé ekki bara á msn ? :haha:
Mercedes Benz 280 SE w108 V8 3.5 árg 1972 R-71

Jaguar XJS 3.6 árg.1989 GMG

BMW 735i e32 árg. 1989

Gunnar Már Gunnarsson ( GMG )
GSM 690-2222



http://www.cardomain.com/id/GMG_ICELAND

Re: Formula 1 2010, Hver verður meistari ???

#38
Mikið skelfing er þessi formúla orðin leiðinleg, ég held barasta að það hafi ekkert gerst síðustu 40 hringina, nema eitthvað óhapp í neðstu sætunum. :roll:

Þetta hefur sloppið til með Monaco hingað til, sem mér finnst annars óspennandi braut kappaksturslega, vengna þess að menn hafa verið með mismunandi herbrögð varðandi þjónustuhléin og bensínáfyllingar. En því er ekki að heilsa lengur. :(

Ég legg til að FIA banni bara framúrakstur til að jafna leikinn enn frekar, þá getur maður líka bara alveg hætt að horfa á þetta! :evil:
Sveinn

Re: Formula 1 2010, Hver verður meistari ???

#40
sveinn skrifaði:Mikið skelfing er þessi formúla orðin leiðinleg, ég held barasta að það hafi ekkert gerst síðustu 40 hringina, nema eitthvað óhapp í neðstu sætunum. :roll:

Þetta hefur sloppið til með Monaco hingað til, sem mér finnst annars óspennandi braut kappaksturslega, vengna þess að menn hafa verið með mismunandi herbrögð varðandi þjónustuhléin og bensínáfyllingar. En því er ekki að heilsa lengur. :(

Ég legg til að FIA banni bara framúrakstur til að jafna leikinn enn frekar, þá getur maður líka bara alveg hætt að horfa á þetta! :evil:
Sammála Sveini.

Er alveg hættur að nenna að horfa á þetta, sérstaklega eftir að þjónustuhléin voru þurrkuð út þá er eiginlega öll spenna farin úr "pakkanum" :evil:
Benedikt Hans Rúnarsson