Ágætu félagar,
Þá er komið að því: Ég er loksins búinn að ákveða að láta SEL-inn minn – ef einhver er reiðubúinn að greiða fyrir hann sanngjarnt verð. Hann er 600SEL, árgerð 1991, svartur og ekinn 101 þús. mílur, þar af 93 þús. í USA. Þaðan flutti ég hann inn 2006. Það er búið að gera ýmislegt fyrir hann síðan, m.a. lækna “barnasjúkdóma” sem stundum gera vart við sig í raf- og rafeindakerfi þessara bíla. Við það naut ég m.a. aðstoðar góðra félaga í klúbbnum okkar. Ég tel að þetta sé fágætt eintak að gæðum og útliti, en það verður auðvitað hver og einn að meta fyrir sig.
Ég byrja á að láta vita hér á síðunni áður en ég auglýsi hann í opinberum fjölmiðlum, en hef líka látið vita um hann í Þýskalandi og Hollandi.
Ég hef ekki í bili um þetta öllu fleiri orð, veit að MB-menn vita alveg hvað hér er um að ræða. Bíllinn hefur ekki verið mikið á götunum, en einhverjir kunna að hafa séð hann og fleiri vita af honum. Hann er búinn að standa inni í skúr í vetur (og oft lengi vel) – fyrir utan reglulega hreyfingu til að ekkert stirðni – og ég finn að ég tími bara ekki að nota hann, á tvo aðra Benza (W124), hef ekki þörf fyrir þennan, hann safnar bara ryki og er betur kominn í höndum einhvers sem langar að fylgja honum inn í framtíðina.
Ég veit að menn spyrja fyrst um verð og myndir. Ég set á bílinn 1.900 þús. og er ekki tilbúinn að víkja sérlega mikið frá því. Þá bíð ég bara. Og mig vantar ekki fleiri/aðra bíla. Ég á fullt af myndum, pdf-skjöl af viðgerðareikningum og frekari lýsingar á bílnum, en veit ekki hvernig ég á að koma þessu efni inn á síðuna. Getur einhver leiðbeint mér með það (er ekki til einhver einfaldari leið en lýst er í leiðbeiningum á síðunni, t.d. að ég sendi einhverjum þessar upplýsingar í tölvupósti og þannig rati þær rétta leið?). Það efni myndi þá væntanlega fara inn á “Mercedes Benz til sölu”.
Ásgeir Sigurgestsson
Re: Er að hugsa um að láta SEL-inn minn
#2Ekki það að ég hafi áhyggjur af því að það verði slegist um þennan á þessu verði, en hefði ekki verið eðlilegast að setja þetta bara beint í "til sölu" flokkinn?
E46 330d Touring
(E36 318is)
(w124 E420 ´95)
(w126 300SE ´87)
(E36 318is)
(w124 E420 ´95)
(w126 300SE ´87)
Re: Er að hugsa um að láta SEL-inn minn
#3ef mig misminnir ekki þá var ég eitthvað viðriðin umræðum um þennan sem enduðu með að hann fór í ræsir?
glæsilegur bíll, vægast sagt
glæsilegur bíll, vægast sagt
w124 400E Widebody (500 clone)
Camaro lsx/6spd
------------------
w203 C32 AMG 19" seldur
w210 E230 avantgard seldur
w210 E240 classic (moli) seldur
Camaro lsx/6spd
------------------
w203 C32 AMG 19" seldur
w210 E230 avantgard seldur
w210 E240 classic (moli) seldur
Re: Er að hugsa um að láta SEL-inn minn
#4Það væri einkar forvitnilegt að sjá myndir af þessum...
Mercedes Benz W123 230E árg. 1982 -húsbóndabíllinn-
Toyota Land cruiser 120 VX -frúarbíllinn-
Honda CB600 -leikfangið-
-Brynjar Sigmundsson-
Toyota Land cruiser 120 VX -frúarbíllinn-
Honda CB600 -leikfangið-
-Brynjar Sigmundsson-
atligu skrifaði: ...veifað til nágrannans á sínum Toyota Yaris sem kæmist í hólfið milli framsætanna hjá þér!!!