Re: Hvað tekur langan tíma að skrá mann í M Benz klúbbinn

#3
gullisig skrifaði:Ég borgaði 4000 kr. 30.11.2009 og hef ekkert heyrt né séð frá klúbbnum.
Ef við höfum fengið sent netfangið þitt, eftir að þú gekkst frá greiðslunni, þá hefðir þú átt að fá staðfestingu frá okkur í formi tölvupósts.
Hafi það ekki gerst þá getum við lítið annað en beðist velvirðingar á því.

Því miður kom ekki MB ClubCard skírteinið með þínu nafni í þeirri sendingu sem við vorum að fá til okkar (og verður sent í pósti innan skamms) en íslensku skírteinin koma úr prentun í dag og ættu að berast félagsmönnum í næstu viku.

MB ClubCard skírteini, áprentað með þínu nafni, fáum við væntanlega ekki fyrr en í mars :(

Kveðja,
f.h. stjórnar MBKÍ
Benedikt Hans Rúnarsson

Re: Hvað tekur langan tíma að skrá mann í M Benz klúbbinn

#4
MERC_230E skrifaði:Ég hef verið meðlimur nú í amk. 2 ár og aldrei fengið félagsskírteini sem er frekar pirrandi þegar maður er að krúnka út afslátt á þetta.

Lenti síðast í því í gær að fá ekki afslátt af því ég var ekki með félagsskírteini :evil: .
Sendu okkur póst á vefstjorn@stjarna.is og við skoðum þetta mál.
Get ekki séð hver þú ert út frá notandanafninu hérna á spjallinu.

Við höfum, a.m.k. frá því í haust, verið að senda út staðfestingarpósta til þeirra aðila sem hafa greitt félagsgjöld um að þeir séu greiðandi meðlimir og hafa þeir geta notfært sér afsláttinn út á þá staðfestingu.

Kveðja,
f.h. stjórnar MBKÍ
Benedikt Hans Rúnarsson

Re: Hvað tekur langan tíma að skrá mann í M Benz klúbbinn

#5
það tók 2klukkutima fyrir mig að fá svar og 2daga að fá numerarammana held ég :)

þannig að ég kannast ekki við þetta vesen sem þið hafið lent í :)

get ekkert annað sagt en gott um stjórn klúbbsins.

hef reyndar ekki fengið skirteinin min, en ég var látin vita að ég fengi ekki erlenda skirteinið fyrr en í mars liklegast. en hver veit nema að mitt hafi komið með seinustu sendingu, þá verður maður bara að krossleggja fingur ;)
Fannar Daði Hreinsson
1987 M.Benz 230TE 8)
1992 M.Benz E220 seldur
cron