Ef við skoðum þetta í samhengi við innflutning þá lítur dæmið svona út:
Hér er dæmi um bíl á eBay.de sem er lítið ekinn, aðeins yngri en ekki með 4matic sem ætti að vera dýrara:
http://cgi.ebay.de/MERCEDES-BENZ-300-E- ... _500wt_924" onclick="window.open(this.href);return false;
Það tilboð sem komið er í þennan bíl er 2243 evrur o
g nær það ekki uppsettri lágmarksupphæð sem augljóslega óskað er eftir.
Sé þetta skoðað í réttu samhengi sbr. reiknivélina á BMWkraftur síðunni (sem er n.b. ekki með rétt gengi svo að ég þurfti að laga það, langt síðan þeir hafa uppfært síðuna

) þá er þetta verð alls ekkert "út úr kú":
Verð ökutækis í EUR: 2.243
Gengi á EUR: 178,09 ISK
Samtals m. gengi 29.01.10 399.456 ISK
Flutningskostnaður: 115.000 ISK (sennilega of lágt í dag)
Stofn til Tolls og virðisauka: 514.456 ISK
Tollur (45%): 231.505 ISK
Virðisauki (
25,5%): 190.220 ISK
Samtals aðflutningsgjöld: 421.725 ISK
Stofn til aðflutningsgjalda: 514.456 ISK
Aðflutningsgjöld: 421.725 ISK
Ýmis kostnaður við skráningu: 21.864 ISK (veit ekki hvort þetta hefur hækkað)
Samtals: 958.045 ISK
Hér er annar í USA sem er jafngamall þessum sem er auglýstur hérna heima en áfram ekki 4matic og Benzar í USA eru að jafnaði ódýrari en í Evrópu:
http://cgi.ebay.com/ebaymotors/1988-Mer ... 500wt_1182" onclick="window.open(this.href);return false;
Verðið á þessum bíl væri, m.v. sömu forsendur og hér að ofan nema USD 127,98
kr. 556.019 kominn til Íslands (
leiðrétt verð, reiknilíkanið stóð á sér 
)
Reikna má þó með að flutningskostnaður til Íslands frá Summerville South Carolina sé eitthvað hærri en frá Þýskalandi (a.m.k. mín reynsla að flutningur frá USA sé alltaf hærri

) og gæti verðið alveg verið nálægt 650.000,-.
Hins vegar eru þessir tveir bílar (sá þýski og sá bandaríski) eins og svart og hvítt, sá þýski finnst mér miklu meira spennandi valkostur en USA með MB-Tex. Hvorugur er 4matic svo að samanburður við þennan á Íslandi er ekki beint raunhæfur.