Metan/bensín breytingar á M. Benz

#1
Var svona að velta þessu fyrir mér þar sem magnið sem þarf til þess að fá jafn mikila orku og 1L bensíns kostar 98kr (bensín 95oct 191-7kr/l). Ég er búinn að skoða aðeins á netinu og hef fundið
http://www.ecofuel.com/default.aspx
og
http://www.bigas.it/en/sistemi_sequenziali.aspx
og einhverjar fleiri síður sem selja svona kit í bíla. Hafa menn hér eitthverja gullmola um þetta í sínum fórum?

Kostir eru nokkrir við þetta t.d
bruni á gastegund sem er c.a 20X meira mengandi en koltvísýrringur
ódýrara en bensín
íslensk framleiðsla = sparast gjaldeyrir = atvinnuskapandi

galli
bara ein stöð sem selur metan á höfuðborgarsvæðinu

Hvað hafa menn að segja um þennan kost ?


Aron G

arg10@hi.is
Mazda 6 2.0 ´03 UT445 (frúarbíllinn)
SY Musso 2.9 TD ´98 YY150 35" Einræðisherran
Toyota Avensis 1.8 ´99 Blár AY836 seldur
Menzedes Benz 230E ´91 w124 Svatur/grár SO884 ek 314 þús (Blakkurinn) Seldur
Merzedes Benz 190E (2.0) 17.2.1983 nr7133 af w201 Gull HP685 Seldur
Merzedes Benz 300CE 1989 vínrauði YT228 (Seldur)

Merzedes Benz.......... því annað er bara fúsk

Re: Metan/Benzín breytingar á M. Benz

#2
Metan er bara snilld og það fyndna er hversu umhverfisbætandi það er að brenna því í stað þess að það sleppi út í andrúmsloftið.. Ég hef miklu meiri trú á þróun metantækja en til að mynda vetnis því á sumum stöðum í heiminum er rándýrt og mjög umhverfisspillandi að búa það til.
Rúnar Sigurjónsson
Herr Doktor
http://www.doktorinn.is" onclick="window.open(this.href);return false;
s. 552-5757

Þeir gagnrína ávallt Benzann mest, þeir sem hafa ekki efni á að eiga hann... ;)

Re: Metan/Benzín breytingar á M. Benz

#3
hef mikið verið að pæla í þessu þar sem maður er nú á tiltölulega einföldum bíl sem ætti að vera auðvelt að breyta. Hefuru fundið e-a prísa fyrir kerfin?
Stebbi
m.benz 190e sportline 2,0 ´92 (sec wannabe)

bmw e34 m5 3,6. seldur
bmw e34 535i bsk. seldur
kawasaki 650sx stand-up jet ski. selt

Re: Metan/Benzín breytingar á M. Benz

#4
Ég sendi þeim hjá http://www.gamur.is/ og þeir segja að það kosti um 400000 kall að breyta mínum w124 230E og það sama fyrir Toyota Avensis 1.8 sem ég á. þetta verð er með því að hafa áfyllingastút undir húddlokinu en það er vegna þess að það vilja ekki allir bora gat á hlið bílsins og segir hann að það kosti 40000 auka að hafa stútinn á hlið bílsins. Hann áttaði sig kannski ekki á því að það er pláss fyrir annan stút á w124 hliðina á bensínfyllingastútnum. Það er ekki í boði að kaupa kitið án ísetningar hjá þeim.

Ég sendi þeim hjá http://www.bigas.it/en/sistemi_sequenziali.aspx og þeir segja að ekki sé selt kit til einstaklinga heldur bara lögbundinna fyrirtækja sem sjá um slíkar breytingar. Hann sagði mér líka að þeir hafi ekki lengur umboðsaðilla í Ísrael en ég geri ráð fyrir því að hann hafi lesið Ísland vitlaust :mrgreen:
Aron G

arg10@hi.is
Mazda 6 2.0 ´03 UT445 (frúarbíllinn)
SY Musso 2.9 TD ´98 YY150 35" Einræðisherran
Toyota Avensis 1.8 ´99 Blár AY836 seldur
Menzedes Benz 230E ´91 w124 Svatur/grár SO884 ek 314 þús (Blakkurinn) Seldur
Merzedes Benz 190E (2.0) 17.2.1983 nr7133 af w201 Gull HP685 Seldur
Merzedes Benz 300CE 1989 vínrauði YT228 (Seldur)

Merzedes Benz.......... því annað er bara fúsk

Re: Metan/Benzín breytingar á M. Benz

#5
Spurning hvort að doktorinn sé nógu löglegur til þess að breyta bílum með svona kiti? Hvað segir þú um það yfirdoktor á Kársnesspítala ? Mér finnst 400000 svolítið mikið fyrir þennan búnað en auðvitað verður þetta að vera löglegt 8)
Aron G

arg10@hi.is
Mazda 6 2.0 ´03 UT445 (frúarbíllinn)
SY Musso 2.9 TD ´98 YY150 35" Einræðisherran
Toyota Avensis 1.8 ´99 Blár AY836 seldur
Menzedes Benz 230E ´91 w124 Svatur/grár SO884 ek 314 þús (Blakkurinn) Seldur
Merzedes Benz 190E (2.0) 17.2.1983 nr7133 af w201 Gull HP685 Seldur
Merzedes Benz 300CE 1989 vínrauði YT228 (Seldur)

Merzedes Benz.......... því annað er bara fúsk

Re: Metan/Benzín breytingar á M. Benz

#6
Mér reiknast til að þú þurfir að keyra 40.000 km á metani í það minnsta til þess að þessi breyting borgi sig.

Þá er ég að miða við að bíllinn eyði 10l/100 km og að hann komist jafn langt á 1 lítra bensíns og því magni af metani sem svarar til 1 líters af bensíni.
Einnig miða ég við að verðmunur á metani og bensíni haldist 100 kr.

Þetta er tveggja til þriggja ára keyrsla, kannski ekki svo slæmt.

Hefurðu athugað með einhverja niðurgreiðslu hjá ríkinu? Er t.d. ekki ódýrara að kaupa metan/diesel Benz hjá Öskju heldur en sambærilegan diesel?

Re: Metan/Benzín breytingar á M. Benz

#7
Af gaumur.is; "Vélamiðstöðin býður nú áhugasömum um að breyta bensínbifreiðum sínum í tvíorkubifreiðar með bæði bensíni og metani."

Bílnum er semsagt breytt þannig að hann gengur fyrir bæði bensíni og metan. Þá fer maður að velta því fyrir mér hversu mikið bensíneyðslan minnkar og hvað miklu mentan hann eyðir í staðin. Hvað er bíllinn að eyða miklu bensíni/metan á 100km eftir breytingu? þetta verður að taka inn í hagkvæmniútreikninga, því bíllinn eyðir áfram bensíni. Ekki er aðeins um að ræða brennslu á metan.

Er kannski bensínið aðeins notað í ræsingu og á meðan vélin er köld, síðan skipt yfir í metan? Svona svipað og þegar diesel bílum er breytt fyrir lífræna olíu.

(Benni, þessi sjálfvirka b-e-n-s yfir í b-e-n-z leiðrétting getur verið dálítið þreytandi stundum, t.d. þegar maður skrifar b-e-n-s-í-n, þá breytist það í B-e-n-z-í-n :lol: )
Sveinn

Re: Metan/Benzín breytingar á M. Benz

#8
Afsakið "off topicið"
sveinn skrifaði: (Benni, þessi sjálfvirka b-e-n-s yfir í b-e-n-z leiðrétting getur verið dálítið þreytandi stundum, t.d. þegar maður skrifar b-e-n-s-í-n, þá breytist það í B-e-n-z-í-n :lol: )
Hvaða hvaða, bara að viðhalda gamalli og góðri íslenzku og nota zetu regluna aftur ;) :lol:
Reyndar skrifa ég oftast Diesel líka enda er það réttara en Dísel því að Rudolf Diesel hét Diesel en ekki Dísel og að mínu mati á maður ekki að íslenska mannanöfn :wink:

Annars skal ég skoða þetta með leiðréttinguna, átti bara að tiltaka Benz með s-i í stað z en virðist vera á algjöru leiðréttingarfylleríi :?
Benedikt Hans Rúnarsson

Re: Metan/Benzín breytingar á M. Benz

#9
Benni skrifaði:Afsakið "off topicið"
...
Annars skal ég skoða þetta með leiðréttinguna, átti bara að tiltaka Benz með s-i í stað z en virðist vera á algjöru leiðréttingarfylleríi :?
Þetta var nú bara smá grín, við skulum frekar hafa þetta inn því annars fer Uncle-Benz brandarinn alræmdi að dúkka inn aftur :wink: :lol: :lol:
Sveinn

Re: Metan/Benzín breytingar á M. Benz

#10
sveinn skrifaði:
Benni skrifaði:Afsakið "off topicið"
...
Annars skal ég skoða þetta með leiðréttinguna, átti bara að tiltaka Benz með s-i í stað z en virðist vera á algjöru leiðréttingarfylleríi :?
Þetta var nú bara smá grín, við skulum frekar hafa þetta inn því annars fer Uncle-Benz brandarinn alræmdi að dúkka inn aftur :wink: :lol: :lol:
Ég skoða þetta við tækifæri :wink:
Benedikt Hans Rúnarsson
cron