Re: M.Benz E220 W124

#11
Cons` skrifaði:Sælir!
Ég er nýr hér á spjallinu og er ekki Benz eigandi eins og er.
Ég er búinn að finna ágætist E220 sem er 94 módel og ekki ekinn nema 200þúsund sem er rétt tilkeyrsla fyrir Benz ;)

Enn spurningin er, hvað er rétt verð fyrir svona grip?
Það sem þarf er að gera er ýmislegt eins og sprauta að framan og bletta í ryð, ekki búið að skipta um tímakeðju og svo er eitthvað drif vandamál, þeas vittlaust drif í honum.

Ýmislegt smátt sem þarf að gera en það er fljótt að koma í peningum, hvað haldiði að rétt verð sé fyrir hann?

Eru þetta ekki annrs solid bílar? Borgar sig ekki að skipta um tímakeðju? Er mikið mál að redda sér tímakeðju kitti og er auðvelt að redda sér réttur drifi?

Vona að einhverjir snillingar hérna geti svarað einhverjum af þessum spurningum. Einnig þætti mér gaman að heyra reynslu sögur af E220 W124 ;)

Kv, einn Benz áhugamaður sem vonast til að eignast sinn fyrsta Benz.
Á einn, hef átt í 4 ár, ekið á um í 6 ár, áður í minni fjölskyldu í 6 ár og eina sem ég hef að segja um þennann frábæra bíl er að HANN ER EKKI TIL SÖLU!!! :D

Eins og Benni bendir á eru þetta með skemmtilegri 4 cyl mótorum frá Mercedes. Það er ekki af ástæðulausu að þessi mótor hefur verið í fjölda bíla frá Mercedes, W124, 210, 202 og 203 (með kompressor).

Tímakeðjuskipti væri viturlegt að nálgast í svona 230-250 þúsund. Það er þó tvöföld keðja í honum svo ef þú heyrir ekki í henni má hún vera í mun lengur. En, slysin gera ekki boð á undan sér svo betra er að skipta um fyrr en seinna öryggisins vegna.


Andri Hrafn
---



Mercedes Benz E220 W124 1995
Subaru Forrester 2005,
Yamaha WR 450 F 2004

Re: M.Benz E220 W124

#13
rosalega eru menn tens á þessum keðjum...

Hef átt nokkra benza sem voru með upprunalegu keðjuna að mér best vitandi.

300e, ekin 270þ
190e, ekin 350þ
190e, ekin 310þ
220e, ekin 270? man það ekki
280se, ekin 140...

Ekkert glamur eða leiðindi í þeim...

En jújú...þú tapar svo sem engu nema peningum á því að skipta...

Re: M.Benz E220 W124

#14
Þórður A. skrifaði:rosalega eru menn tens á þessum keðjum...

Hef átt nokkra benza sem voru með upprunalegu keðjuna að mér best vitandi.

300e, ekin 270þ
190e, ekin 350þ
190e, ekin 310þ
220e, ekin 270? man það ekki
280se, ekin 140...

Ekkert glamur eða leiðindi í þeim...

En jújú...þú tapar svo sem engu nema peningum á því að skipta...
Þetta er nú oftast kallað fyrirbyggjandi viðhald, þ.e. fyrirbyggja að keðjan slitni með því að skipta um hana, því að ef hún slitnar geta menn nánast hent mótornum, svo mikla steik getur hann farið í. Og það kostar miklu meiri peninga en að skipta um keðju :wink:
Hjalti Guðmundsson
Sími: 897-0370

Mercdes-Benz E220 CDI 2011
Mercedes-Benz ML320 2000

Re: M.Benz E220 W124

#15
Þórður A. skrifaði:rosalega eru menn tens á þessum keðjum...

Hef átt nokkra benza sem voru með upprunalegu keðjuna að mér best vitandi.

300e, ekin 270þ
190e, ekin 350þ
190e, ekin 310þ
220e, ekin 270? man það ekki
280se, ekin 140...

Ekkert glamur eða leiðindi í þeim...

En jújú...þú tapar svo sem engu nema peningum á því að skipta...
Alls ekkert panic í gangi, samt sem áður er betra að vera með vaðið fyrir neðan sig! :wink:

Eins og hann Hjalti sagði, bara fyrirbyggja vandræði :D

Re: M.Benz E220 W124

#16
Cons` skrifaði:Þakka góð svör, þau ýta bara undir kaupin á þessum fák! Hvernig er það samt, er mikið mál að kaupa tímakeðju í hann? Er þetta bara Askja eða?
Þekki ekki til um varahlutinn en það eru fleiri aðilar en Askja sem getbæði D&C og Bíla-Doktorinn ættu að geta skipt um þetta fyrir þig.

En hvernig var það, þarf að skipta um keðjuna sjálfa eða er það ekki einhverjir "strekkjarar" eða eitthvað annað sem er í raun skipt um?
N.b. ég hef auðvitað ekkert vit á þessu :fyndid2: en mig minnir að ég hafi séð umræðu um slíkt hérna á spjallinu einhvern tímann :roll:
Benedikt Hans Rúnarsson

Re: M.Benz E220 W124

#17
Þórður A. skrifaði:rosalega eru menn tens á þessum keðjum...

Hef átt nokkra benza sem voru með upprunalegu keðjuna að mér best vitandi.

300e, ekin 270þ
190e, ekin 350þ
190e, ekin 310þ
220e, ekin 270? man það ekki
280se, ekin 140...

Ekkert glamur eða leiðindi í þeim...

En jújú...þú tapar svo sem engu nema peningum á því að skipta...
hvað veistu um hvort keðjurnar voru orginal? flestir þessara bíla eru eldri en þú sjálfur.. svo er annað að þessar fullyrðingar eru rangar, mjög gott að hafa vit á hlutunum áður en maður fer að ráðleggja öðrum

p.s ekki bögg
w124 400E Widebody (500 clone)
Camaro lsx/6spd
------------------
w203 C32 AMG 19" seldur
w210 E230 avantgard seldur
w210 E240 classic (moli) seldur

Re: M.Benz E220 W124

#18
ivar skrifaði:
Þórður A. skrifaði:rosalega eru menn tens á þessum keðjum...

Hef átt nokkra benza sem voru með upprunalegu keðjuna að mér best vitandi.

300e, ekin 270þ
190e, ekin 350þ
190e, ekin 310þ
220e, ekin 270? man það ekki
280se, ekin 140...

Ekkert glamur eða leiðindi í þeim...

En jújú...þú tapar svo sem engu nema peningum á því að skipta...
hvað veistu um hvort keðjurnar voru orginal? flestir þessara bíla eru eldri en þú sjálfur.. svo er annað að þessar fullyrðingar eru rangar, mjög gott að hafa vit á hlutunum áður en maður fer að ráðleggja öðrum

p.s ekki bögg
Þórður A. skrifaði:Hef átt nokkra benza sem voru með upprunalegu keðjuna að mér best vitandi.
Þórður A. skrifaði:að mér best vitandi.
Þórður A. skrifaði:að mér best vitandi.
Pósta þessu 3 í viðbót þá. Lestu kallinn minn áður en þú ferð að ibba þig!

Það var engin nóta fyrir neinum tímakeðjuskiptum í neinum þessara bíla þó svo að oft hafi verið allskona kvittanir.

Re: M.Benz E220 W124

#19
þú engu síður fullyrðir að hann þurfi ekki að spá í henni strax,


þótt það sé keðja þá er ekki þar með sagt að það þurfi ekki að spá í henni, þær geta feilað eins og annað, og búið að skemma marga mótora vegna trassaskaps á keðju
w124 400E Widebody (500 clone)
Camaro lsx/6spd
------------------
w203 C32 AMG 19" seldur
w210 E230 avantgard seldur
w210 E240 classic (moli) seldur

Re: M.Benz E220 W124

#20
hef oft spáð í þessu með svona fyrirspurnir...

td. "er með w124 230e '91, ekinn 240 þús, þarf ég að skipta um keðju?"

Svo svarar einhver snillingurinn já eða nei.


Aldrei myndi ég treysta bara einhverjum gaur á einhverju spjalli fyrir svona mikilvægum hlutum. Ég vona að fólk passi sig á því hverjir svara.

Svona spjöll eru full af töppum sem þykjast vita allt en vita kannski ekki neitt. En svo inná milli eru miklir snillingar. Þannig að í guðanna bænum fólk ekki taka allt hér inni sem heilagan sannleik.
Ásgeir Yngvi Ásgeirsson

W202 Mercedes Benz C 180 ´99 #Frúarbíllinn
W116 Mercedes Benz 280 SE '80 #Fyrsta ástin
Range Rover 4,0 SE ´01 #aldrei lærir maður
Subaru 1800 DL ´92 #Forstjórabifreiðin