Á einn, hef átt í 4 ár, ekið á um í 6 ár, áður í minni fjölskyldu í 6 ár og eina sem ég hef að segja um þennann frábæra bíl er að HANN ER EKKI TIL SÖLU!!!Cons` skrifaði:Sælir!
Ég er nýr hér á spjallinu og er ekki Benz eigandi eins og er.
Ég er búinn að finna ágætist E220 sem er 94 módel og ekki ekinn nema 200þúsund sem er rétt tilkeyrsla fyrir Benz
Enn spurningin er, hvað er rétt verð fyrir svona grip?
Það sem þarf er að gera er ýmislegt eins og sprauta að framan og bletta í ryð, ekki búið að skipta um tímakeðju og svo er eitthvað drif vandamál, þeas vittlaust drif í honum.
Ýmislegt smátt sem þarf að gera en það er fljótt að koma í peningum, hvað haldiði að rétt verð sé fyrir hann?
Eru þetta ekki annrs solid bílar? Borgar sig ekki að skipta um tímakeðju? Er mikið mál að redda sér tímakeðju kitti og er auðvelt að redda sér réttur drifi?
Vona að einhverjir snillingar hérna geti svarað einhverjum af þessum spurningum. Einnig þætti mér gaman að heyra reynslu sögur af E220 W124
Kv, einn Benz áhugamaður sem vonast til að eignast sinn fyrsta Benz.
Eins og Benni bendir á eru þetta með skemmtilegri 4 cyl mótorum frá Mercedes. Það er ekki af ástæðulausu að þessi mótor hefur verið í fjölda bíla frá Mercedes, W124, 210, 202 og 203 (með kompressor).
Tímakeðjuskipti væri viturlegt að nálgast í svona 230-250 þúsund. Það er þó tvöföld keðja í honum svo ef þú heyrir ekki í henni má hún vera í mun lengur. En, slysin gera ekki boð á undan sér svo betra er að skipta um fyrr en seinna öryggisins vegna.