15% afsláttur af varahlutum hjá Öskju?

#1
Sælir.

Nú þarf ég að fara með eina gæðastjörnu í 40 þús. þjónustuskoðun hjá Öskju. Eins mikla óbeit sem ég hef af því ágæta fyrirtæki, þá þori ég ekki öðru til að viðhalda ábyrgðinni.

Nú spyr ég sem góður og gildur stjörnumeðlimur. Með hvaða hlutum er átt við með ,,varahlutir" - er t.d. olía inn í þeim pakka, eða eru það bara síur og annað slíkt sem skipt er um í slíkri skoðun?

Kv.
JKH


__________________________________
Jóhann Karl Hermannsson

Audi TT '03 - Quattro ABT
Lexus RX300 '03
8 Ball Lowrider 20"

Re: 15% afsláttur af varahlutum hjá Öskju?

#2
Hmm... það er nú reyndar ekki tilgreint sérstaklega hvort olía sé hluti af þessu :? heldur aðeins talað um varahluti.

Ef maður horfir á þetta út frá "lógíkinni" þá er olía rekstrarvara (svona eins og benzín) en ekki varahlutur svo að þeir hjá Öskju verða sjálfsagt að svara því hvort olían beri einnig afslátt :roll:
Benedikt Hans Rúnarsson

Re: 15% afsláttur af varahlutum hjá Öskju?

#3
Sælir

Askja gefur ekki aflsátt af aðkeyptum olíu sem seld er eftir lítratali (smurolíu, sjálfskiptivökvi, drifolíum og frostlegi). Það er hinsvegar afsláttur af sumum olíuvörum sem koma frá Mercedes-Benz og eru seldar í lítraumbúðum yfir borðið.

Það er svo gefinn afsláttur af öllum varahlutum og síum.
Rúnar Sigurjónsson
Herr Doktor
http://www.doktorinn.is" onclick="window.open(this.href);return false;
s. 552-5757

Þeir gagnrína ávallt Benzann mest, þeir sem hafa ekki efni á að eiga hann... ;)